Athygli ehf. er útgefandi Útiveru. Útivera hóf göngu sína árið 2003 en útgáfan lagðist af árið 2008. Athygli keypti útgáfuréttinn í ársbyrjun 2010 og það ár komu út þrjú tölublöð. Á þessu ári (2011) verða gefin út fjögur tölublöð; í febrúar, apríl, september og nóvember.
Athygli hefur langa reynslu af útgáfustarfsemi en auk Útiveru gefur fyrirtækið út sjávarútvegstímaritið Ægi en það hefur komið út í meira en eina öld og er eitt helsta fagtímarit um sjávarútveg á Íslandi. Gefin eru út 11 tölublöð á ári.
Þá stendur Athygli að útgáfu kynningarblaða um margvísleg efni sem fjármögnuð eru með sölu auglýsinga.