Síðasta tölublað Útiveru þessa árs er komið út og hefur því verið dreift til áskrifenda og á sölustaði. Margir skrifa í blaðið að þessu sinni en sem betur fer hafa margir áhuga á að koma efni á framfæri sem tryggir auðvitað fjölbreytt og læsilegt efni.
Tölublöð þessa árs eru fjögur eins og til stóð og á næsta ári liggur fyrir samskonar útgáfuætlun. Hvert blað er á bilinu 70-80 síður og skiptir miklu fyrir blaðið að áhugafólk um útivist og ferðalög leggi því til efni. Við hvetjum sem fyrr alla til að senda okkur efni, texta og myndir.
Útivera fæst á sölustöðum N1 og Skeljungs um land allt, í Hagkaupsverslunum og hjá Pennanum Eymundsson. Langþægilegast er þó að vera áskrifandi að Útiveru en þá fá menn blaðið sent heim til sín sér að kostnaðarlausu. Hvert blað kostar aðeins 950 krónur í kortaáskrift og eru þá póstgjöld innifalin. Þeir sem óska eftir að gerast áskrifendur geta gert það hér á vefnum eða hringt í síma 515 5200.
Meðal efnis í 4. tölublaði Útiveru 2011:
Kajaksportið í sókn
Kayakklúbburinn gaf nýlega út veglegt rit í tilefni af 30 ára afmæli sínu og höfundur bókarinnar, Örlygir Steinn Sigurjónsson, segir frá þessu vinasæla sporti í máli og myndum.
Er rétt að byrja
Kaupmaðurinn knái, Ragnar Sverrisson á Akureyri, tók fjallgöngubakteríuna með trompi fyrir átta árum og fer í tugi fjallgangna á hverju ári. Og hann segist vera rétt að byrja!
Á Kazbek í Kákasus
Nú í sumar hélt hópur Íslendinga í ævintýraför á fjallið Kazbek í Kákasusfjallgarðinum í Georgíu. Fjallið er yfir 5.000 m hátt og þykir tæknilega erfitt að klífa. Anna Kristín Kristjánsdóttir segir frá.
Snæfellsnesið á 33 tímum!
Sigurður Þórarinsson og Haukur Friðriksson gengu í sumar á yfir 20 fjöll á Snæfellsnesfjallgarðinum á 33 klukkustundum, samtals meira en 100 kílómetra þar sem heildarhækkun var um 8.000 m!
Í guðsgrænni náttúrunni
Hinn þjóðkunni og orðheppni prestur Óháða safnaðarins í Reykjavík er í viðtali og kveðst lengi hafa klifið yfir stokka og steina, mela og móa. Hann heldur m.a. gönguguðsþjónustu á hverju sumri.
Fatlaðir fái að njóta náttúrunnar
Í áhugaverðu viðtali við Ragnheiði Davíðsdóttur blaðamann, segir Svanur Ingvarsson trésmiður og kennari frá því þegar hann skaddaðist á mænu og hvernig hann hefur yfirstigið erfiðleikana og tekist á við hverja áskorunina á fætur annarri.
Stikuferð um Gljúfurleitarleið
Ferðaklúbburinn 4x4 hefur í tvo áratugi staðið fyrir skipulögðum stikuferðum um hálendi Íslands. Hér segir Sæbjörg Richardsdóttir okkur frá einni slíkri sem farin var í haust.
Ferðin sem aldrei gleymist
Fátt er skemmtilegra en að vera í glöðum hópi á fögrum slóðum sem ekki hafa áður verið kannaðar. Hér segja Kristín Sigfúsdóttir og Sigurbergur Árnason frá sannkallaðri fjölskylduferð um Hornstrandir.
Án vegabréfs
Einn víðförlasti ljósmyndari landsins er Einar Falur Ingólfsson en hann hefur víða um heiminn ratað á liðnum árum. Við fengum leyfi til að birta nokkrar myndir hans af ókunnum slóðum þar sem staðir og viðburðir eru skoðaðir í nærmynd.
Áramót í Básum
Nú á aðventunni er við hæfi að bregða upp skyndimynd af upplifun fólks sem skrapp í Bása á Goðalandi um sl. áramót. Ferðin var farin á vegum Útivistar.
Fjögur tölublöð 2011!