Þriðja tölublað Útiveru þessa árs er komið út og er það eins og venjulega fullt af fróðlegu efni fyrir alla þá sem áhuga hafa á útivist og ferðalögum.
Fjórða og síðasta tölublað þessa árs fer í dreifingu í byrjun desember og við hvetjum auðvitað alla til að senda okkur efni, texta og myndir. Útivera fæst á sölustöðum N1 um land allt, í Hagkaupsverslunum og hjá Pennanum Eymundsson og nú fæst blaðið einnig á völdum bensínstöðvum Skeljungs. Þeir sem óska eftir að gerast áskrifendur geta gert það hér á vefnum eða hringt í síma 515 5200.
Meðal efnis í þessu nýja tölublaði er:
Víknaslóðir með augum ítalskra
Jón Gauti Jónsson, fyrrum ritstjóri Útiveru skrifar bráðskemmtilega grein um þá upplifun að ganga í fimm daga um Víknaslóðir með ítölskum og fjallhressum feðgum!
Fjallganga og tilurð kvæðis
Kvæðið Fjallaganga er eitt þekktasta kvæði Tómasar Guðmundssonar. Við birtum kvæðið og einnig hugleiðingar Páls Ásgeirs Ásgeirssonar um hugsanlega tilurð þess.
Á miðju landsins
Gunnar H. Hjálmarsson skrifar leiðarlýsingu úr Útivistarferð frá Setrinu, sunnan Hofsjökuls að skála FÍ Í Nýjadal; fjögurra daga bakpokaferð í sex til sjö hundruð metra hæð yfir sjávarmáli.
Einfaldleikinn er svo stórbrotinn
Sumir njóta hálendisins með því að þeysa um á mótorhjólum og hér er rætt við Karl Gunnlaugsson sem leggur áherslu á að ekki sé ekið utan vega og merktra slóða.
Paradís hinna óteljandi eyja
Að sigla um Breiðafjörð er ævintýri líkast. Í þessari grein er staðháttum vestra lýst og rætt við ýmsa ferðaþjóna þar. Greinin er prýdd úrvalsmyndum Róberts A. Stefánssonar.
Á vængjum ævintýrsins
Í Suðursveit eru einhver hæstu og áhugaverðustu fjöll landsins. Í þessari grein fer Gerður Steinþórsdóttir með okkur á Birnudalstind sem hæst rís í 1.326 m.y.s.
Arabísk áhrif á Spáni
Múhameðstrúarmenn réðu ríkjum á Spáni í um 800 ár og áhrifanna af vist þeirra gætir í máli og menningu Spánverja. Í þessari grein fer Svava Jónsdóttir blaðamaður hratt yfir sögu og kemur m.a. við í Córdoba og Granada.
Arkað yfir Grænlandsjökul
Það hlýtur að vera óslökkvandi ævintýraþrá sem fær mann til að ganga 600 km yfir úfinn Grænlandsjökul í ríflega 20 sólarhringa samfleytt! Þetta gerði Álfheiður H. Hafsteinsdóttir sem í þessari grein lýsir ferðinni í máli og myndum.
Af Forsetahóli
Hér er að finna skemmtilega sögu af Litlafelli á Reykjanesi sem gjarnan er kallað Forsetahóll. Af nafngiftinni er til skemmtileg saga sem hér er sögð.
Slökun og ævintýramennska
Bjartur Máni Sigurðsson segir frá ævintýri á gönguferð um Vestur-Lýkíu í Tyrklandi með Göngu-Hrólfi en hann segir ferðina hafa verið skemmtilega blöndu af göngu, siglingu og tyrkneskri matargerð.
Ljósbrot
Ljósbrot í náttúru Íslands að þessu sinni koma úr smiðju Anrons Ísaks Óskarssonar, 15 ára áhugaljósmyndara sem vakið hefur mikla athygli fyrir frábærar myndir. Að þessu sinni sýnir hann okkur nokkrar fuglamyndir.
Nýtt tölublað Útiveru