Þriðja tölublað Útiveru á þessu ári er komið út en það er 84 bls að stærð – efnismeira en nokkru sinni fyrr. Þar með lýkur fyrsta útgáfuárinu eftir að Athygli tók við sl. sumar en þetta er 3ja tölublað ársins. Á næsta ári verða tölublöðin fjögur talsins.
Útivera er, eins og jafnan, stútfull af góðu efni, bæði viðtölum við áhugavert fólk og ekki síður greinum eftir ferðagarpa sem lagt hafa land undir fót, bæði á Fróni og erlendis. Aðalgrein blaðsins nú er frásögn af ferð þeirra Hilmars Egils Sveinbjörnssonar og Gunnars Júlíusar Helgasonar sem gengu þvert yfir Ísland frá Fonti suður á Reykjanestá, 670 km leið. Í blaðinu er dagbók þeirra félaga birt og fjöldi frábærra mynda úr ferðinni. Þá má nefna afar áhugavert viðtal við Helga Björnsson jöklafræðing um rannsóknir hans á íslenskum jöklum, ferðar er um Perú, Geysisslysið 1950 rifjað upp, sagt frá kortlagningu spungusvæða á jöklum og birtar frábærar ljósmyndir af eyfirskum fossum í Ljósbroti. Þá er í blaðinu að finna grein um þær fjölmörgu gönguleiðir sem hægt er að fara út frá hinum eiginlega Laugavegi, fréttir eru af vestfirskum verðlaunum og í máli og myndum eru rifjuð upp minningarbrot úr göngu á Dyrfjöll. – Og ýmislegt fleira er að finna.
Undirbúningur er þegar hafinn að útgáfu 2. tölublaðs Útiveru 2011 sem kemur út í lok febrúarmánaðar. Þar verður m.a. sagt frá leiðangri skonnortu frá Húsavík til Kangertittivaq eða Scoresbysunds á Grænlandi, sem mun vera lengsti fjörður í heimi, sagt er frá vinnuferð í Hornbjargsvita, ferðast um Núpsstaðarskóga, greint frá gönguhópi um lendur Reykjaness og arkað á Spákonufell á Fellsströnd svo eitthvað sé nefnt. Og margt, margt fleira er í pípunum.
Útivera er auðvitað send til áskrifenda auk þess sem blaðið fæst á sölustöðum N1 um land allt, í Hagkaupsverslunum og hjá Pennanum Eymundsson. Fyrsta tölublað Útiveru á nýju ári kemur út í febrúar en á árinu 2011 verða tölublöðin fjögur eins og fyrr sagði.
Útivera – stærsta blaðið!