Útivera - tímarit um útivist

 
Þú ert hérna: Fréttir

Fjögur tölublöð 2011!

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

4tbl2011Síðasta tölublað Útiveru þessa árs er komið út og hefur því verið dreift til áskrifenda og á sölustaði. Margir skrifa í blaðið að þessu sinni en sem betur fer hafa margir áhuga á að koma efni á framfæri sem tryggir auðvitað fjölbreytt og læsilegt efni.

Tölublöð þessa árs eru fjögur eins og til stóð og á næsta ári liggur fyrir samskonar útgáfuætlun. Hvert blað er á bilinu 70-80 síður og skiptir miklu fyrir blaðið að áhugafólk um útivist og ferðalög leggi því til efni. Við hvetjum sem fyrr alla til að senda okkur efni, texta og myndir.

Nánar...

Nýtt tölublað Útiveru

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

3tbl2011 af ÚtiveruÞriðja tölublað Útiveru þessa árs er komið út og er það eins og venjulega fullt af fróðlegu efni fyrir alla þá sem áhuga hafa á útivist og ferðalögum.

Fjórða og síðasta tölublað þessa árs fer í dreifingu í byrjun desember og við hvetjum auðvitað alla til að senda okkur efni, texta og myndir. Útivera fæst á sölustöðum N1 um land allt, í Hagkaupsverslunum og hjá Pennanum Eymundsson og nú fæst blaðið einnig á völdum bensínstöðvum Skeljungs. Þeir sem óska eftir að gerast áskrifendur geta gert það hér á vefnum eða hringt í síma 515 5200.

Nánar...

Yfirgripsmikil Útivera

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Fyrsta tölublað 2011Fyrsta tölublað Útiveru á því herrans ári 2011 hefur litið dagsins ljðós og er verið að dreifa því til áskrifenda og í verslanir. Í blaðinu er gnótt efnisríkra greina og víða komið við að venju. Forsíðuna prýðir mynd af skonnortunni Hildi frá Húsavík en í blaðinu er grein sem segir frá ferð hennar til Kangertittivaq á Grænlandi eða Scoresbysunds sem mun vera lengsti fjörður í víðri veröld.

Nánar...

Útivera – stærsta blaðið!

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Útivera 3. tbl. 2010Þriðja tölublað Útiveru á þessu ári er komið út en það er 84 bls að stærð – efnismeira en nokkru sinni fyrr. Þar með lýkur fyrsta útgáfuárinu eftir að Athygli tók við sl. sumar en þetta er 3ja tölublað ársins. Á næsta ári verða tölublöðin fjögur talsins.

Útivera er, eins og jafnan, stútfull af góðu efni, bæði viðtölum við áhugavert fólk og ekki síður greinum eftir ferðagarpa sem lagt hafa land undir fót, bæði á Fróni og erlendis. Aðalgrein blaðsins nú er frásögn af ferð þeirra Hilmars Egils Sveinbjörnssonar og Gunnars Júlíusar Helgasonar sem gengu þvert yfir Ísland frá Fonti suður á Reykjanestá, 670 km leið. Í blaðinu er dagbók þeirra félaga birt og fjöldi frábærra mynda úr ferðinni.  Þá má nefna afar áhugavert viðtal við Helga Björnsson jöklafræðing um rannsóknir hans á íslenskum jöklum, ferðar er um Perú, Geysisslysið 1950 rifjað upp, sagt frá kortlagningu spungusvæða á jöklum og birtar frábærar ljósmyndir af eyfirskum fossum í Ljósbroti. Þá er í blaðinu að finna grein um þær fjölmörgu gönguleiðir sem hægt er að fara út frá hinum eiginlega Laugavegi, fréttir eru af vestfirskum verðlaunum og í máli og myndum eru rifjuð upp minningarbrot úr göngu á Dyrfjöll. – Og ýmislegt fleira er að finna.

Nánar...

Síða 1 af 16