Forsíða Um Athygli Samfélagsverkefni
Samfélagsverkefni Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Krabbameinsfélagið
Í janúar 2009 gekk Athygli til samstarfs við Krabbameinsfélag Íslands um ráðgjöf varðandi ímyndar- og kynningarmál. Samningurinn tryggir Krabbameinsfélaginu aðgang að ráðgjöf Athygli á sérstökum afsláttarkjörum. Með samningnum vill stjórn og starfsfólk Athygli leggja sitt af mörkum til samfélagsmála.

Tilgangur Krabbameinsfélags Íslands er að styðja og efla í hvívetna baráttuna gegn krabbameini, svo sem með því að stuðla að þekkingu og menntun um krabbamein og krabbameinsvarnir, efla krabbameinsrannsóknir, beita sér fyrir leit að krabbameinum á byrjunarstigi og styðja framfarir í meðferð krabbameina og umönnun krabbameinssjúklinga.

Á árunum 2007 og 2008 var Athygli styrktaraðili Barnaheilla – Save the Children á Íslandi.