Forsíða Um Athygli
Athygli ehf. Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Almannatengslafyrirtækið Athygli ehf. var stofnað 15. mars 1989. Lengst af voru starfsmenn fjórir til fimm talsins en á síðustu árum hefur fyrirtækið þróast í alhliða ráðgjafar- og útgáfufyrirtæki sem þjónustar einkum fyrirtæki, félagasamtök, sveitarfélög og ríkisstofnanir.

Ráðgjafar Athygli eru flestir þrautreyndir blaða- og fréttamenn og hafa áratuga reynslu í fjölmiðlun. Þeir eru sérfræðingar á sviði almannatengsla sem hafa nýtt menntun sína og reynslu til að bæta og byggja upp ímynd fjölda viðskiptavina Athygli á liðnum árum.

Auk þess að þjónusta viðskiptavini sína er Athygli með umsvifamikla útgáfu, ýmist á eigin vegum eða í samstarfi við aðra.

Athygli ehf. á 50% hlut í Athygli ráðstefnum  á móti þeim Birnu B. Berndsen og Þórunni Dögg Árnadóttur sem þar starfa.

Athygli er með höfuðstöðvar að Suðurlandsbraut 30 í Reykjavík en rekur einnig starfsstöð að Hafnarstræti 82 á Akureyri.

Kennitala Athygli er: 600389-1229.

Framkvæmdastjóri Athygli er Valþór Hlöðversson.