Ljósmyndir eru stór hluti af útgáfu hvers blaðs. Þær skipta ekki síður máli þegar kemur að því að gera vefi lifandi og aðgengilega. Starfsmenn Athygli taka sjálfir myndir á stafrænar vélar, m.a. til notkunar fyrir vefsíður og í einfaldari prentgripi en fá atvinnumenn til liðs við sig þegar mikið liggur við.
Athygli hefur milligöngu um að útvega atvinnuljósmyndara við hvers konar tækifæri og sækir efni í myndabanka þeirra þegar það á við. Meðal okkar viðskiptavina eru afburða ljósmyndarar eins og Ragnar Th Sigurðsson, Mats Wibe Lund, Hreinn Magnússon og Lárus Karl Ingason.
|