|
Starfsmenn Athygli eru fjölhæfir og með margháttaða menntun og reynslu. Þrátt fyrir það taka þeir ekki að sér verkefni sem aðrir geta unnið betur. Þess vegna eru aðrir sérfræðingar oft kallaðir til: ljósmyndarar, auglýsingasalar, prófarkalesarar, þýðendur, lausapennar, kvikmyndagerðarfólk, auglýsingastofur, markaðsfræðingar og prentsmiðir. Og er þá fátt upp talið.
Þegar við veljum undirverktaka til að vinna með okkur að einstökum þáttum berum við samt alla ábyrgð á verkefnum gagnvart okkar viðskiptavinum.
|