Forsíða Fréttir Fréttir 2009
Kristínarsjóður gefur Barnaspítala Hringsins Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 22. Desember 2009
Jakob, Sigrún og hressir krakkar á dagdeild

Stjórn Kristínarsjóðs, minningarsjóðs í vörslu Krabbameinsfélags Íslands, hefur ákveðið að gefa Barnaspítala Hringsins veglega jólagjöf; sex sjónvarpsflatskjái ásamt DVD spilurum og Playstation leikjatölvum að andvirði um ein milljón króna, í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá fæðingu Kristínar Björnsdóttur, fyrrverandi starfsmanns Sameinuðu þjóðanna, sem lagði sjóðnum til fjármagn.

Lesa meira...
 
Maður vikunnar og ófriður við Reykjavíkurhöfn Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 16. Desember 2009

hafnarsAUGL_mynd_litilBinni í Vinnslustöðinni í Eyjum er maður dagsins í DV í dag vegna humars, sem VSV gaf hjálparsamtökum á höfuðborgarsvæðinu í vikunni og vegna myndarlegs jólabónuss sem starfsmenn VSV hreppa fyrir hátíðar. Starfsmenn Faxaflóahafna fengu yfir sig holskeflu fyrirspurna í kjölfar auglýsinga um verbúðir til leigu við Reykjavíkurhöfn. Í öllum tilvikum kom Athygli ehf. að því að kveikja eldana....

Lesa meira...
 
KPMG styrkir Geðhjálp Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 16. Desember 2009

KPMG styrkir GeðhjálpFulltrúar KPMG á Íslandi og Geðhjálpar hafa undirritað styrktarsamning um að KPMG gerist aðalstyrktaraðili Geðhjálpar næstu tvö árin. Styrkur KPMG nemur samtals 3 milljónum króna og vill félagið með því stuðla að eflingu geðheilbrigðis og gera Geðhjálp kleift að auka aðstoð við þá er kljást við geðræn vandamál.

Lesa meira...
 
Magma Energy með 40,94% hlut í HS Orku Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 15. Desember 2009

Kanadíska jarðhitafyrirtækið Magma Energy (Magma), Orkuveita Reykjavíkur (OR), Hafnarfjarðarbær og Sandgerðisbær hafa lokið viðskiptum vegna kaupa Magma á 32,32% hlut í HS Orku. Magma á nú 40,94% hlut í HS Orku og þess er vænst að samningum um kaup fyrirtækisins á 2,16% hlut til viðbótar í HS Orku ljúki í mars á næsta ári. Ennfremur á Magma kauprétt á frekari hlut í HS Orku með hlutafjáraukningu að upphæð 15 milljón dollarar fyrir 1. nóvember 2011.

Lesa meira...
 
2.000 humarpokar frá VSV til Fjölskylduhjálpar og Mæðrastyrksnefndar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 14. Desember 2009

Vinnslustöðin í Vestmannareyjum afhenti í dag Fjölskylduhjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur að gjöf samtals 900 kg af humri til dreifingar meðal skjólstæðinga samtakanna fyrir jólin. Humarinn er frosinn í 450 gramma pokum. Hvor samtök fengu 1.000 poka til ráðstöfunar. Fulltrúar samtakanna tveggja þökkuðu fyrir sendinguna og báðu fyrir góðar kveðjur til Eyja. Samtökin hafa ekki áður dreift humri til skjólstæðinga sinna.

Lesa meira...
 
Forstjóraskipti hjá Geysi Green Energy Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 14. Desember 2009
GGE

Stjórn Geysis Green Energy hefur, í samráði við viðskiptabanka félagsins, tekið ákvörðun um að vinna markvisst að lækkun skulda félagsins með sölu eigna þess á næstu misserum. Í tengslum við þá stefnumótun hefur Ásgeir Margeirsson ákveðið að hætta sem forstjóri félagsins. Alexander K. Guðmundsson, fjármálastjóri Geysis, hefur verið ráðinn í hans stað.

Lesa meira...
 
Skoskur sigur í hugmyndasamkeppni fagfólks um Gömlu höfnina í Reykjavík Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 11. Desember 2009

Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs og hafnarstjórnar og formaður dómnefndar óskar vinningshöfunum, Graeme Massie, Robin Sutherland til hamingju.  Myndir: Hreinn MagnússonArkitektastofa í Edinborg í Skotlandi, Graeme Massie Architects, hlaut fyrstu verðlaun í A-hluta hugmyndasamkeppni sem Faxaflóahafnir sf. efndu til vegna skipulags Gömlu hafnarinnar og Örfiriseyjar í Reykjavík. Samstarfsaðili hennar á Íslandi er ráðgjafarfyrirtækið Alta ehf. Úrslitin voru tilkynnt við athöfn í Víkinni sjóminjasafni nú síðdegis um leið og sigurlaunin voru afhent, 7,5 milljónir króna.

Lesa meira...
 
Kolefnisspor Reykjavíkur 20 - 80 falt minna en annarra höfuðborga Norðurlanda Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 11. Desember 2009

Fundur í HafnarhúsinuSvokallað kolefnisspor Reykjavíkur er 20-80 falt minna en annarra höfuðborga Norðurlanda og hitaveita sparar þjóðarbúinu um 40 milljarða króna á ári í gjaldeyri. Þetta kom fram á fundi um vistvæn hverfi og byggingar í Hafnarhúsinu í gær og var hann hluti af fundarröð með fagfólki, hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum um endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur.

Lesa meira...
 
Nýrri sendingu bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) dreift til heilsugæslustöðva eftir helgi Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 11. Desember 2009

Ný sending bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) berst heilsugæslustöðvum um land allt á mánudag og þriðjudag, 14. og 15. desember, og þá verður unnt að taka þráðinn upp að nýju og bólusetja fólk sem skráð hefur sig á biðlista.

  • Bólusetning hefst þannig á nýjan leik miðvikudaginn 16. desember og þá ganga þeir fyrir sem hafa skráð sig á biðlista.
  • Tekið er við nýjum pöntunum vegna bólusetningar frá og með mánudegi 14. desember, þ.e.a.s. á þeim heilsugæslustöðvum sem hafa ekki ráðstafað fyrir fram öllu bóluefninu í væntanlegri sendingu.
  • Bóluefni verður næst dreift um landið 6. janúar 2010 og verður tekið við pöntunum í þá sendingu eftir áramótin.
Lesa meira...
 
Alls 8.685 kröfum lýst við slitameðferð Glitnis Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 10. Desember 2009

GlitnirbankSlitastjórn Glitnis hefur birt skrá yfir lýstar kröfur við slitameðferð Glitnis á lokuðu vefsvæði sem kröfuhafar hafa aðgang að á heimasíðu bankans. Kröfuhafar sem lýst hafa kröfum geta einnig nálgast kröfuskrána á skrifstofu Glitnis í Sóltúni 26 í Reykjavík.

Frestur til að lýsa kröfum við slitameðferð Glitnis rann út þann 26. nóvember síðast liðinn og á fundi með kröfuhöfum þann 17. desember n.k. mun slitastjórn fara yfir kröfuskrána og gera grein fyrir þeim ákvörðunum sem þegar liggja fyrir.  Þá gefst kröfuhöfum jafnframt tækifæri til að andmæla afstöðu slitastjórnar til einstakra krafna.

Lesa meira...
 
Rjóður fær afhent viðbótarhúsnæði til listmeðferðar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 09. Desember 2009

Rjóður fær afhent viðbótarhúsnæði til listmeðferðarRjóður; hvíldar- og endurhæfingarheimili fyrir langveik börn, tók í dag formlega í notkun viðbótarhúsnæði til listmeðferðar. Það samanstendur af myndlistarherbergi, nuddherbergi og viðtalsherbergi og er gjöf frá Velferðarsjóði barna.

Listmeðferðaraðstaðan er kærkomin viðbót við það húsnæði sem heimilið hefur yfir að ráða hjá Landspítala–Kópavogi, í húsi nr. 7 við Kópavogsbraut 5-7, en það húsnæði afhenti Velferðarsjóður barna fullbúið fyrir um sex árum. Þar er rými fyrir átta langveik börn í einu í endurhæfingu og aðhlynningu en alls nýta um 50 fjölskyldur á landinu öllu sér þjónustu Rjóðurs, þó ekki samfellt.

Lesa meira...
 
Krabbameinsleit á Selfossi í febrúar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 09. Desember 2009

slaufan09Eins og tilkynnt var um í haust verður leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum í Hveragerði og Selfossi sameinuð, og fer leitin fram í Heilsugæslustöð Selfoss 15.-23. febrúar næstkomandi. Krabbameinsfélag Íslands hefur í fjölda ára leitast við að auðvelda öllum konum að mæta reglulega í leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum, óháð búsetu. Vegna erfiðs efnahagsástands hefur félagið þó þurft að grípa til ýmissa hagræðinga í rekstri, en þar á meðal er að fækka skoðunarstöðum úti á landi úr 42 í 30. Í október var tilkynnt að leit að krabbameini fyrir íbúa Hveragerðis og Selfoss væri frestað um óákveðinn tíma.

 

Lesa meira...
 
VÍS styrkir átak Mænuskaðastofnunar Íslands Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 08. Desember 2009

Auður Guðjónsdóttir formaður Mænuskaðastofnunar Íslands tekur við styrknum úr hendi Guðmundar Ö. Gunnarssonar forstjóra VÍS. VÍS hefur veitt Mænuskaðastofnun Íslands þriggja milljóna króna styrk vegna undirskriftasöfnunar stofnunarinnar sem nú fer fram á Norðurlöndum í tengslum við áskorun Mænuskaðastofnunar á Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO).  


Mænuskaðastofnun Íslands hefur hrint af stað auglýsingaherferð á Norðurlöndum til að vekja athygli á því hve leit að lækningu við mænuskaða miðar hægt.

Lesa meira...
 
Þorbjörn Jensson forstöðumaður Fjölsmiðjunnar fær Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna í ár Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 01. Desember 2009

Frá vinstri eru: Sæunn Kjartansdóttir, sem veitti viðtöku styrk til Miðstöðvar foreldra og barna til fimm ára aldurs, Ingibjörg Pálmadóttir, stjórnarformaður Velferðarsjóðs barna, Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, Þorbjörn Jensson, handhafi barnaverðlauna Velferðarsjóðs barna árið 2009, og Soffía Pálsdóttir, sem veitti viðtöku styrk til ÍTR vegna Sumargleði Velferðarsjóðs barna.Þorbjörn Jensson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar, hlýtur Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna árið 2009 fyrir ómetanlegt starf sitt í þágu ungmenna. Verðlaunaféð, 3,5 milljónir króna, verður nýtt til að efla nýja uppbyggingu meðal annars tónlistardeild Fjölsmiðjunnar. Alls var úthlutað ríflega 26 milljónum króna úr Velferðarsjóði barna í dag en heildarúthlutunin úr sjóðnum í ár nemur alls um 160 milljónum króna.

Lesa meira...
 
Fjöldi góðra hugmynda um framtíðarskipulag miðborgarinnar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 27. Nóvember 2009

Opinn fundur í miðborginniRafknúnir strætisvagnar í miðborginni, fleiri vistgötur, betri leikjaaðstaða og nýting á Hljómskálagarðinum voru meðal áherslumála sem íbúar miðborgarinnar settu fram í opnu húsi í gær um framtíðarskipulag hverfisins í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur.

Lesa meira...
 
Tollstjóri með uppboð á lausafjármunum í Vörumiðstöð Samskipa Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 26. Nóvember 2009

Bílar, útilegubúnaður og veiðigræjur er meðal varnings sem boðinn verður upp af Tollstjóranum í Reykjavík í hádeginu á laugardag, 28. nóvember 2009, í Vörumiðstöð Samskipa við Kjalarvog.

Um er að ræða ótollafgreiddar vörur þar sem aðflutningsgjöld eru fallin í gjalddaga og kennir þar margra grasa.

Lesa meira...
 
100 Íslendingum fagnað á Kanaríeyjum! Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 26. Nóvember 2009

Hinir 100kanari3 heppnu Íslendingar sem unnu fría vikudvöl í Kanaríeyjum lentu heilir á húfi á Tenerife í gær þar sem þeim var tekið með kostum og kynjum. Boðið er liður í kynningarherferð á vegum ferðamálayfirvalda eyjanna sem er beint að Norður – Evrópu til að sýna að dvöl á hinum sólríku eyjum geti lagfært skammdegisþunglyndið. Vonast er til að ferðalangarnir deili svo lífsreynslu sinni til vina, vandamanna og víðar með orðum töluðum, félagsneti og bloggi.

Íslensku vinningshafarnir skiptast í fjóra hópa eftir því hvernig ferðir þeir unnu: 27 manns eru í fjölskylduferð, 24 stunda vatnaíþróttir, 24 eru í heilsudekri og 26 í eldfjallaupplifun. Hinir heppnu gista á fjögurra og fimm stjörnu hótelum og ferðast vítt og breitt um eyjarnar vikuna sem ferðin stendur yfir. Fyrst var haldið til Tenerife en síðar verður haldið til Gran Canarie, Lanzarote og að lokum til Fuerteventura. Á öllum stöðunum heimsækja hóparnir áhugaverða staði og stunda íþróttir og aðra afþreyingu út frá þema hvers hóps. Er óhætt að fullyrða að vinningshafarnir komi sælir og allnokkuð fróðari um það sem hinar suðrænu og sólríku Kanaríeyjar bjóða upp á að ferðinni lokinni.

Lesa meira...
 
Golfbúðin styrkir Krabbameinsfélag Íslands Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 26. Nóvember 2009

golfbudinForsvarsmenn Golfbúðarinnar afhentu Krabbameinsfélaginu 300.000 krónur á dögunum sem aflað var með sölu á sérstökum bleikum golfvörum, Pink Ribbon Golf, en 10% af söluandvirði vöruflokksins rennur til styrktar baráttunni gegn brjóstakrabbameini í hverju landi þar sem vörurnar eru seldar.

„Við vildum leggja okkar af mörkum til að styðja við Krabbameinsfélagið,“ segir Kristín Sigurgísladóttir, fjármálastjóri Golfbúðarinnar. „Við höfum fundið fyrir miklum áhuga og ánægju með þessar vörur og á næsta ári ætlum við að vera með mun meira vöruúrval. Þá bætast við hlutir eins og húfur, töskur og sokkar, sem er tilvalin gjafavara fyrir bæði kylfinga og aðra.“ Kristín segir verðið á Pink Ribbon vörunum svipað og á öðrum vörum í sama gæðaflokki en með því að fjárfesta í vörum frá Pink Ribbon Golf sé fólk einnig að leggja góðu málefni lið. „Við höfum lítið auglýst vörurnar hingað til og þær hafa bara fengist hjá okkur í Golfbúðinni, sem og í Erninum. Á næsta ári vonumst við til að koma vörunum að í golfklúbbum víða um land.“

Lesa meira...
 
Húsfyllir á opnu húsi í Vesturbæ Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 25. Nóvember 2009

Stuðningur við hverfisverslanir, gangandi  og hjólandi í forgang, innisundlaug, betri íþróttaaðstaða og tómstundakjarni voru ofarlega í huga Vesturbæinga á opnu húsi um framtíðarskipulag hverfisins sem fram fór í Hagaskóla í gær.   Eins og í fyrri opnum húsum í hverfum borgarinnar kynnti Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs, fyrst stuttlega vinnuna sem nú fer fram við nýtt aðalskipulag og því næst útskýrðu Haraldur Sigurðsson, verkefnisstjóri aðalskipulagsins, og Ólöf Örvarsdóttir skipulagsstjóri aðferðarfræðina og vinnulagið við aðalskipulagsvinnuna.

Lesa meira...
 
Nýtt vörumerki á farsímamarkaði - RING Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 23. Nóvember 2009

Ring Miðvikudaginn 25. nóvember verður Ring, nýju vörumerki Símans á farsímamarkaði, ýtt úr vör. Ring er ný þjónusta sérstaklega sniðin að þörfum ungs fólks sem gerir miklar kröfur um gæði og hagstætt verð. Fyrir 1.990 krónur á mánuði geta viðskiptavinir hringt og sent SMS  innan kerfa Símans fyrir 0 krónur í alla viðskiptavini Símans, 160 þúsund talsins. Innifalin er 990 króna inneign í öll önnur kerfi. Öll þjónusta Ring fer fram hjá Símanum og viðskiptavinir hringja á GSM og 3G kerfum Símans.

Lesa meira...
 
Fjölbreyttar hugmyndir um framtíðarskipulag Breiðholts Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 20. Nóvember 2009

Breiholt_013Stuðningur við enduruppbyggingu á verslunarkjörnum, aukið viðhald og endurbætur á grænum svæðum og byggingum, betri aðstaða við skíðalyftuna og betri tengingar innan hverfisins með stígum og frístundastrætó var meðal þess sem íbúar í Breiðholti settu á forgangslista í opnu húsi í gær um framtíðarskipulag hverfisins.
Opna húsið fór fram í Breiðholtsskóla og var mætingin þokkalega góð en hefði mátt vera betri, miðað við hversu stór hverfi Breiðholtið er. Eins og í fyrri opnum húsum í hverfum borgarinnar kynnti Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs, fyrst stuttlega vinnuna sem nú fer fram við nýtt aðalskipulag og þvínæst útskýrðu Haraldur Sigurðsson, verkefnisstjóri aðalskipulagsins, og Ólöf Örvarsdóttir skipulagsstjóri aðferðarfræðina og vinnulagið við aðalskipulagsvinnuna.

Lesa meira...
 
Þriðjungur þjóðarinnar orðinn ónæmur gagnvart inflúensunni A(H1N1) Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 20. Nóvember 2009

influensa.is20.000 skammtar af bóluefni gegn inflúensunni A(H1N1) eru væntanlegir til landsins um helgina og þeim verður dreift strax til heilsugæslustöðva. Bólusetning almennings ætti því að geta hafist víðast hvar strax eftir helgi, eins og ráð var fyrir gert en nokkur óvissa ríkti um hvort hægt yrði að standa við tímaáætlanir vegna tafa á afhendingu bóluefnis frá framleiðanda ytra.

Lesa meira...
 
Húsfyllir á morgunfundi um betri samgöngur í Hafnarhúsinu Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 19. Nóvember 2009

betrisamgongur1Ef helmingur bílaflota borgarbúa yrði knúinn rafmagni myndi það skila allt að 5,4 milljarða króna sparnaði á ári í eldsneytiskaupum. Þetta kom fram á fundi um betri samgöngur í Hafnarhúsinu í morgun sem er hluti af fundarröð um endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur með fagfólki, hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum. 

Lesa meira...
 
Jólagjöf til Fjölskylduhjálparinnar í stað jólakorta Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 18. Nóvember 2009

Samskip hafa ákveðið að í stað þess að senda viðskiptavinum jólakort fyrir komandi jól renni andvirði þeirra til Fjölskylduhjálpar Íslands.

„Það veitir okkur mikla ánægju að geta lagt okkar af mörkum til þessa góða starfs sem hér er unnið," segir Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa, sem á dögunum afhenti Matthíasi Imsland, stjórnarformanni Fjölskylduhjálparinnar, ávísun að upphæð 250 þúsund krónur til staðfestingar á þessari jólagjöf frá félaginu.

Lesa meira...
 
Hundrað Íslendingar á leið í ókeypis ferð til Kanaríeyja dagana 25. nóvember til 2. desember Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 18. Nóvember 2009

KanaríHundrað Íslendingar á leið í ókeypis ferð til Kanaríeyja dagana 25. nóvember til 2. desember

  • Herferðin á Ísland er fyrsti hluti umfangsmikillar Evrópuherferðar ferðamálayfirvalda á Kanaríeyjum

  • Fjórar tegundir ferða í boði; heilsudekur, eldfjallaupplifun, vatnaíþróttir og fjölskylduferð

Það vakti mikla athygli í október síðastliðnum þegar 100 appelsínuklædd ungmenni frá Kanaríeyjum þutu um stræti Reykjavíkur og gáfu Íslendingum færi á að vinna ókeypis sólarlandaferð mitt í vetrardrunganum, sem þjáir bæði Íslendinga og Norður-Evrópubúa vegna sólarleysis.
Lesa meira...
 
Geysir Green Energy eignast meirihluta í HS Orku Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 17. Nóvember 2009

Geysir Green Energy (Geysir), Reykjanesbær og kanadíska jarðhitafyrirtækið Magma Energy Corporation (Magma) hafa lokið viðskiptum vegna kaupa Geysis á 34% hlut í HS Orku af Reykjanesbæ. Ennfremur kaupir Magma 8,6% hlut í HS Orku af Geysi. Með sölunni lýkur fyrri áfanga af tveimur í sölu Geysis á alls 10,8% hlutafjár í HS Orku til Magma fyrir rúma þrjá milljarða króna sem félagið staðgreiðir og mun hafa áhrif til styrkingar á gengi krónunnar.

Lesa meira...
 
Metár í sölu bleiku slaufunnar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 17. Nóvember 2009

slaufan09Metár var í sölu bleiku slaufunnar , en alls seldust um 43.000 slaufur í átaki Krabbameinsfélagsins í október. Slaufan var að þessu sinni hönnuð af skartgripahönnuðinum Sif Jakobs og þótti hin mesta prýði jafnframt því að sýna stuðning við góðan málstað.  Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands segir fólk kunna að meta þá þjónustu og það starf sem félagið sinni - bæði þeir sem kljást við krabbamein og aðstandendur þeirra. „Þetta er þjónusta sem okkur finnst mikilvægt að sé til staðar.“

„Stuðningur almennings er okkur sérlega mikilvægur, en það er samtakamáttur fólksins í landinu sem hefur náð að gera Krabbameinsfélagið að því sem það er í dag,“ segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands og þakkar þeim ótalmörgu einstaklingum og fyrirtækjum sem keyptu bleiku slaufuna.

Lesa meira...
 
Betri samgöngur og sundlaug á forgangslista íbúa Háaleitis- og Bústaðahverfis Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 13. Nóvember 2009

haaleiti1.jpgGreiðari samgöngur innan hverfis fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, Bústaða- og Réttarholtsveg í stokk og  göng og sundlaug við Seljaveg voru meðal áherslumála sem íbúar Háaleitis- og Bústaðahverfis settu fram í opnu húsi í gær um framtíðarskipulag hverfisins í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur.
Opna húsið fór fram í Réttarholtsskóla og var ágætis mæting. Tóku margir börnin með og tóku þau virkan þátt í hugmynda- og krakkasmiðjunum sem starfræktar voru samhliða umræðu- og vinnuhópum hinna fullorðnu. Sem fyrr kynnti Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs, fyrst stuttlega þá vinnu sem nú fer fram við nýtt aðalskipulag og síðan útskýrðu Haraldur Sigurðsson, verkefnisstjóri aðalskipulagsins, og Ólöf Örvarsdóttir skipulagsstjóri nýja aðferðarfræði og vinnulag við aðalskipulagið.

 

Lesa meira...
 
Umferðar- og útivistarmál í brennidepli hjá íbúum Hlíðahverfis Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 12. Nóvember 2009

Miklubraut í stokk, aukið umferðaröryggi, bætt tengsl hverfisins við Öskjuhlíð, göngubrú yfir Kringlumýrarbraut við Suðurver og meira aðlaðandi Miklatún voru meðal áhersluHlidar_021mála sem íbúar Hlíðahverfis settu fram á opnu húsi í gær um farmtíðarskipulag hverfisins í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur.

Opna húsið á Hlíðunum fór fram í Háteigsskóla og var mætingin með besta móti, m.a. fjölmenntu krakkar úr Háteigsskóla og tóku virkan þátt í hugmynda- og krakkasmiðjunum sem starfrækar voru samhliða umræðu- og vinnuhópum hinna fullorðnu. Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs, kynnti fyrst stuttlegu þá vinnu sem nú fer fram við nýtt aðalskipulag og Haraldur Sigurðsson, verkefnisstjóri aðalskipulagsins, og Ólöf Örvarsdóttir skipulagsstjóri útskýrðu síðan nýja aðferðarfræði og vinnulag við aðalskipulagið.

 

Lesa meira...
 
Kjalnesingar áhugasamir um tvöföldun Vesturlandsvegar og göngu- og reiðstíga Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 11. Nóvember 2009

kjalarnes-01Tvöföldun Vesturlandsvegar, veglýsing inn að Kollafirði og göngu- og reiðstígar voru meðal áherslumála sem fram komu á vel sóttu opnu húsi á Kjalarnesi í gær um framtíðarskipulagi hverfisins í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur.  Opna húsið á Kjalarnesi fór fram í Klébergsskóla og var mætingin góð.

Lesa meira...
 
Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ í framboð til forseta Körfuknattleikssambands Evrópu – FIBA Europe Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 11. Nóvember 2009

Olafur RafnssonÓlafur Rafnsson, forseti Íþrótta- og Olympíusambands Íslands (ÍSÍ), hefur ákveðið að bjóða sig fram til forseta Körfuknattleikssambands Evrópu (FIBA Europe) til næstu fjögurra ára, en kjörtímabili núverandi forseta lýkur um miðjan maí 2010. FIBA Europe er eitt af fimm svæðasamböndum körfuknattleiks í heiminum og ber ábyrgð á þróun körfuknattleiksíþróttarinnar í Evrópu auk þess að fara með yfirstjórn allra körfuknattleiksmála í álfunni.

Lesa meira...
 
Öruggari samgöngur milli hverfa ofarlega í huga Árbæinga Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 06. Nóvember 2009

Öryggi hjólandi og gangandi barna, aukin útikennsla og breytt afmörkun hverfisins, þannig að Rauðavatn teljist til Árbæjar, var meðal þess sem íbúar Árbæjar lögðu áherslu á í opnu húsi í Árbæjarskóla í gær um framtíðarskipulag hverfisins í tilefni af endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur 2010-2030.

Lesa meira...
 
Samgöngur, íþróttir og útivist efst í huga Grafarvogsbúa Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 04. Nóvember 2009

Grafarvogur_038Samgöngumál og íþróttir og útivist voru íbúum Grafarvogs efst í huga á opnu húsi í Foldarskóla í gær um framtíðarskipulag hverfisins. Þetta var þriðja opna húsið af 10 sem Skipulags- og byggingarsvið efnir til í hverfum borgarinnar í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur.

 

Lesa meira...
 
Sameiginleg viljayfirlýsing lífeyrissjóða og ríkisstjórnarinnar um nýjan Landspítala Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 04. Nóvember 2009

Fulltrúar tuttugu lífeyrissjóða, og heilbrigðis-, forsætis- og fjármálaráðherrar fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um að hefja samstarf við undirbúning að fjármögnun, útboði og framkvæmdum við nýbyggingu Landspítala við Hringbraut.

Yfirlýsingin sýnir fram á stuðning við verkefnið og skapar nauðsynlegan trúverðugleika þess.

Lesa meira...
 
Barnaheill opna www.heyrumst.is Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 30. Október 2009

Auglýsing fyrir heyrumst.isBarnaheill, Save the Children á Íslandi, opnuðu í dag barna-og unglingavefinn www.heyrumst.is í bíósal Austurbæjarskóla.  Vefurinn er afmælisgjöf til barna og ungmenna á  Íslandi, en í ár fagna Barnaheill 20 ára starfsafmæli.

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra, opnaði vefinn formlega.  Nemendur í 10. bekk skólans kynntu einnig verkefni sem þeir hafa unnið í tengslum við 12. og 13. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna en þær lúta að tjáningarfrelsi og réttinum til að láta skoðanir sínar í ljós og hafa áhrif.

Lesa meira...
 
Hlutfallslega fleiri börn veikjast nú af inflúensu A(H1N1)v 2009 en í upphafi faraldursins Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 30. Október 2009
Langflest inflúensutilfelli hérlendis, undanfarna daga og vikur, greinast hjá börnum á aldrinum 0-9 ára. Þetta er marktæk breyting frá því í júlí og ágúst, þegar flestir sem veiktust voru á aldrinum 15-30 ára. Breytingin birtist skýrt í gögnum sem Guðrún Sigmundsdóttir, yfirlæknir hjá embætti sóttvarnalæknis, hefur tekið saman á grundvelli skráningar heilbrigðisþjónustunnar á inflúensulíkum einkennum.
Lesa meira...
 
Útlit fyrir að almenn bólusetning við inflúensunni geti hafist í síðari hluta nóvember Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 30. Október 2009

Horfur eru á að unnt verði að hefja almenna bólusetningu við inflúensunni A(H1N1)v 2009 fyrr en gert var áður ráð fyrir, þ.e.a.s. í síðari hluta nóvember í stað desember. Ástæðan er sú að meira berst af bóluefni til landsins næstu daga og vikur en reiknað var með í upphaflegum áætlunum.

Lesa meira...
 
Skipulagsstofnun úrskurðar að Suðvesturlínur þurfi ekki í sameiginlegt mat Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 30. Október 2009
Búrfellslína

Skipulagsstofnun úrskurðaði í dag að Suðvesturlínur, styrking raforkuflutningskerfis á Suðvesturlandi skuli ekki metin með öðrum framkvæmdum sem henni eru háðar og/eða eru á sama svæði. Kærufrestur vegna ákvörðunarinnar er til 4. desember næstkomandi.
Sjá nánar á sudvesturlinur.is.

Lesa meira...
 
Líflegar umræður um nýtt aðalskipulag á opnu húsi í Laugardal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 30. Október 2009

Aðalskipulag Reykjavíkur  - fundur í LaugardalÁ sjötta tug búa í Laugardal mættu á opið hús um framtíðarskipulag hverfisins sem fram fór í Laugarlækjarskóla í gær í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur. Þetta var annað opna húsið af 10 sem haldin verða í öllum hverfum borgarinnar en fyrsta opna húsið var sl. þriðjudag í Ingunnarskóla með íbúum Grafarholts og Úlfarsárdals.

Lesa meira...
 
Vel sóttur fundur um gæði byggðar í Hafnarhúsinu í morgun Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Árni Þórður Jónsson   
Fimmtudagur, 29. Október 2009
Frá opnum fundi

Góð mæting og lífleg skoðanaskipti voru á fundi um gæði byggðar sem haldinn var í Hafnarhúsinu í morgun. Fundurinn var hluti af fundarröð um endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur með fagfólki, hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum.

Formaður Skipulagsráðs, Júlíus Vífill Ingvarsson, ræddi í upphafi fundar almennt um áherslur í endurskoðun aðalskipulagsins 2010-2030.

Lesa meira...
 
Viðbúnaður á Landspítala færður á „virkjunarstig“ vegna álags af völdum inflúensunnar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 29. Október 2009

landspítalinnViðbúnaður á Landspítala var í dag færður á svokallað virkjunarstig, samkvæmt viðbragðsáætlun spítalans, vegna aukins álags af völdum inflúensufaraldursins. Þetta er næstefsta stig af fjórum sem skilgreint er í áætluninni; efst er neyðarstig. Á „virkjunarstigi" viðbúnaðar gæti þurft að draga úr innlögnum sjúklinga og fresta þeim aðgerðum sem unnt er að fresta á Landspítalanum.

Lesa meira...
 
Opið hús í Ingunnarskóla í dag um endurskoðun aðalskipulagsins Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 27. Október 2009

GrafarholtFyrsta opna húsið vegna endurskoðunar aðalskipulags Reykjavíkur fer fram í Ingunnarskóla í dag með íbúum Grafarholts og Úlfarsárdals.

Stefnumót 2030, mitt hverfi - mín borg, er yfirskrift opnu húsanna sem eru liður í þeim ásetningi borgaryfirvalda að færa skipulagsmálin nær borgarbúum og vinna þau í nánara samstarfi við íbúana í hverju hverfi.

Lesa meira...
 
1000 konum boðið til veglegrar skemmtunar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 23. Október 2009

slaufan09Krabbameinsfélag Íslands heldur Bleika boðið  í Hafnarhúsinu á föstudag. Þar verður 1000 konum boðið upp á fjölbreytta skemmtun - allt frá veglegri tískusýningu á vegum Fatahönnunarfélags Íslands til fjölbreyttra tónlistaratriða og argentínsks tangó, svo fátt eitt sé nefnt. Þá fer fram happadrætti til styrktar Bleiku slaufunni með glæsilegum vinningum.

Lesa meira...
 
Reykjavíkurborg kallar eftir hugmyndum íbúa og hagsmunaðila Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 21. Október 2009

Skipulag lógó

Aukin gæði byggðar, sjálfbærni og hagkvæmni, fjölbreyttir búsetukostir og atvinnulíf, vistvænar samgöngur, lifandi og skemmtileg miðborg og lífsgæði borgarbúa eru leiðarljós í umfangsmikilli endurskoðun á aðalskipulagi Reykjavíkur sem hefur staðið yfir undanfarin misseri.

Lesa meira...
 
Dauðsfall af völdum inflúensunnar A(H1N1) Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 19. Október 2009

Influensa.isÁtján ára fjölfötluð stúlka lést í morgun á Barnaspítala Hringsins af völdu inflúensunnar A(H1N1). Hún veiktist fyrir um 11 dögum og var lögð inn á spítalann síðastliðinn fimmtudag. Þetta er fyrsta dauðsfallið hérlendis af völdum inflúensunnar A(H1N1). Rétt er að taka fram að öll umönnun og meðferð, sem stúlkan naut í veikindum sínum heima hjá sér og á Landspítala, var mjög góð og í samræmi við aðstæður.

Lesa meira...
 
Stefnt að því að bólusetja 75.000 manns til loka nóvember Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 15. Október 2009

Haraldur Briem sóttvarnarlæknir - Ljósmyndari Sigurður Bogi SævarssonGert er ráð fyrir því að bólusetja alls 75.000 manns til loka nóvembermánaðar, þ.e.a.s. starfsfólk í heilbrigðisþjónustu, starfsmenn í öryggisþjónustu og í lykilhlutverkum af ýmsu tagi í opinberri stjórnsýslu og sjúklinga í skilgreindum forgangshópum.

Bólusetning heilbrigðisstarfsmanna er að hefjast nú síðdegis, röðin kemur að starfsfólki í öryggisþjónustu í næstu viku (viku 43) og því næst að sjúklingum í forgangshópum í fyrstu viku nóvember (viku 45).

Lesa meira...
 
Kröfuhafar eignast 95% hlutafjár í Íslandsbanka Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 15. Október 2009

GlitnirbankSkilanefnd Glitnis hefur, fyrir hönd kröfuhafa, ákveðið að nýta sér ákvæði í samningi við íslenska ríkið og eignast 95% hlutafjár í Íslandsbanka. Þessa ákvörðun tók skilanefnd Glitnis eftir ítarlega áreiðanleikakönnun sem framkvæmd hefur verið af hálfu ráðgjafa Glitnis á rekstri Íslandsbanka.

Lesa meira...
 
Heilbrigðisráðherra opnar nýja heimasíðu Krabbameinsfélags Íslands Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 08. Október 2009

Heilbrigðisráðherra opnar nýjan vef Krabbameinsfélags Íslands. Frá vinstri, Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra, Gísli Þorsteinsson frá TM Software, Guðrún Agnarsdóttir forstjóri KÍ, Jóhanna Símonardóttir frá Sjá og Sigríður Snæbjörnsdóttir formaður KÍ.Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra opnaði í dag nýja og endurbætta heimasíðu Krabbameinsfélags Íslands að viðstöddum stjórnendum og starfsfólki félagsins. Heimasíðan er mikilvægt tæki fyrir þá sem leita upplýsinga um krabbamein og sem þurfa að nýta sér þjónustu Krabbameinsfélagsins.

Lesa meira...
 
Guðrún Agnarsdóttir hættir sem forstjóri Krabbameinsfélags Íslands Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 07. Október 2009
Guðrún Agnarsdóttir

Guðrún Agnarsdóttir lætur af störfum sem forstjóri Krabbameinsfélags Íslands um áramótin að eigin ósk. Ekki hefur verið gengið frá ráðningu nýs forstjóra og verður auglýst eftir umsækjendum á næstunni.
Guðrún hefur verið forstjóri Krabbameinsfélagsins frá árinu 1992, eða í 17 ár, en þar á undan átti hún sæti í framkvæmdastjórn Krabbameinsfélagsins í fjögur ár, frá 1988 til 1992.

Lesa meira...
 
Orkubrunnur á Austurlandi Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 06. Október 2009
Guðmundur Pétursson verkefnisstjóri og Atli Rúnar, höfundur Orkubrunnsins, þegar ritið var kynnt í Fljótsdalsstöð.

Orkubrunnur á Austurlandi, svipmyndir úr sögu Kárahnjúkavirkjunar, er rit sem Landsvirkjun gaf út í tilefni verkloka við Kárahnjúkavirkjun. Atli Rúnar Halldórsson, starfsmaður Athygli, var höfundur texta og ritstjóri útgáfunnar, Athygli hannaði og braut um ritið til prentunar í Odda.

Lesa meira...
 
20 þúsundasti Facebook vinur Bleiku slaufunnar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 06. Október 2009
Ása Hauksdóttir, 20 þúsundasti Facebookvinur Bleiku slaufunnar, tekur við gjöfinni frá Krabbameinsfélagi Íslands úr hendi Guðrúnar Agnarsdóttur. Viðtökur landsmanna við Bleiku slaufunni, söfnunar- og árvekniátaki Krabbameinsfélags Íslands hafa verið mjög góðar. Lager slaufunnar kláraðist á mettíma og smásala hefur farið vel af stað. Mikinn meðbyr hefur einnig mátt merkja á Facebook síðu söfnunarinnar þar sem fólk getur skráð sig sem vini Bleiku slaufunnar.
Lesa meira...
 
Bleika slaufan selst vel Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 06. Október 2009

Bleika slaufanSalan á bleiku slaufunni hefur farið vel af stað það sem af er söfnunarátaki Krabbameinsfélags Íslands í ár. „Lagerinn hjá okkur kláraðist á mettíma, og vonumst við til að smásalan gangi að sama skapi vel,“ segir Gústaf Gústafsson, markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélagsins. Markmiðið er að selja 45.000 slaufur og fer allur ágóði til styrktar leitarstarfi Krabbameinsfélagsins.

Lesa meira...
 
1919 baðað bleiku ljósi Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 03. Október 2009
1919litilHanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri varpaði bleiku ljósi á Radisson SAS 1919 Hótel þann 3. október  í tilefni af árlegu átaki Krabbameinsfélags Íslands gegn brjóstakrabbameini. Efnt var til samkeppni um bestu lýsingarhönnunina í Tækniskólanum og var vinningstillagan sett upp af nemendum lýsingardeildar.
Lesa meira...
 
Bleika slaufan í tíunda sinn hérlendis: Markmiðið að selja 45 þúsund slaufur Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 01. Október 2009

 

Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, og Sif Jakobs, hönnuður bleiku slaufunnar í ár, afhentu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra fyrsta eintakið af bleiku slaufunni. Mynd: Hreinn Magnússon.Bleika slaufan, söfnunar- og árvekniátak Krabbameinsfélags Íslands (KÍ), hófst formlega í dag, 1. október 2009, og hefur félagið sett sér það markmið að selja 45 þúsund slaufur fram til 15. október þegar slaufusölunni lýkur. Þetta er jafnframt í tíunda sinn sem bleika slaufan er seld hérlendis en sjaldan hefur verið meiri þörf á að styðja við starfsemi Krabbameinsfélagsins en nú. 
Lesa meira...
 
Athygli styður við Hopenhagen Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 23. September 2009

Hopenhagen hvetur til breytinga í umhverfismálumLoftslagshreyfingin Hopenhagen hvetur íbúa allra landa til að láta til sín taka og styður SÞ í að knýja fram breytingar í umhverfismálum á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP15) í Kaupmannahöfn í desember. Átakið hefst formlega nú í alþjóðlegri viku loftslagsmála (21.-26. september) en þá eru innan við 80 dagar þar til loftslagsráðstefnan í Kaupmannahöfn (COP15) hefst.

Lesa meira...
 
Viðskiptavinir Byrs spara 140 milljónir á ári Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 22. September 2009
BYR_RGB_merkiÞann 1. ágúst sl hætti Byr að senda út yfirlit reikninga og kreditkorta svo og greiðsluseðla lána og kreditkorta í pósti.  Viðskiptavinir Byrs hafa tekið þessu nýmæli vel en á ársgrundvelli spara þeir sér með þessu um 140 milljónir á ári. Viðskiptavinir Byrs fá eftir sem áður öll yfirlit og greiðsluseðla rafrænt í heimabanka sinn.
Lesa meira...
 
Skilanefnd Glitnis og stjórnvöld semja um eignauppgjör Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 13. September 2009

GlitnirbankSkilanefnd Glitnis og íslensk stjórnvöld hafa undirritað samning um uppgjör vegna eigna sem færðar voru úr Glitni yfir í Íslandsbanka við fall bankanna í október á síðasta ári. Samningurinn er gerður í framhaldi af samkomulagi sem kynnt var 20. júlí síðast liðinn en samkvæmt því ákvað ríkissjóður að leggja Íslandsbanka til 65 milljarða króna í aukið eigið fé þann 14. ágúst síðast liðinn.

Lesa meira...
 
Stefnt að því að byrja að bólusetja gegn inflúensu A (H1N1) í byrjun október Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 04. September 2009
Frá blaðamannafundi vegna bólusetninga

Sóttvarnalæknir gerir ráð fyrir að bóluefni gegn inflúensu A (H1N1) berist til landsins um næstu mánaðamót og að í byrjun október verði unnt að byrja að bólusetja landsmenn gegn veikinni. Stjórnvöld hafa keypt 300.000 skammta sem koma hingað í fjórum sendingum, hinni síðustu um áramót.

Lesa meira...
 
Þrílitu bindin seldust fyrir rúma milljón Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 02. September 2009

Krabbameinsfélagið og HerragarðurinnKrabbameinsfélag Íslands stóð í annað sinn fyrir átakinu „Karlmenn og krabbamein“ í mars. Átakið vakti mikla athygli en því var ætlað að vekja karlmenn til vitundar um krabbamein og þátt heilbrigðs lífsstíls í forvörnum gegn þessum erfiða sjúkdómi. Sölu á bindunum er nú lokið en alls seldust 279 bindi sem skilar einni milljón 115 þúsund og 600 krónum í söfnunarátakið.

Lesa meira...
 
ALM Fjármálaráðgjöf hf. nýtt ráðgjafar-og greiningarfyrirtæki Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 01. September 2009

ALM fjármálaráðgjöfALM Fjármálaráðgjöf hf. er nýtt fyrirtæki á fjármálamarkaði sem sérhæfir sig i eigna- og skuldastýringu og greiningu á helstu fjármálamörkuðum. Meðal þeirrar þjónustu sem ALM Fjármálaráðgjöf veitir er ráðgjöf um skuldastýringu þar sem sérstök áhersla er lögð á myntsamsetningu skulda í ljósi þróunar og horfa á gjaldeyris-og vaxtamörkuðum. Fyrirtækið veitir einnig ráðgjöf um öflun fjármagns á innlendum skuldabréfamarkaði og þá stendur fyrirtækjum og opinberum aðilum til boða ráðgjöf um stefnumótun í áhættustýringu eigna og skulda og hvernig innleiða má hana sem hluta af reglulegri starfsemi.

Lesa meira...
 
Geysir Green Energy og Magma Energy taka upp samstarf Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 23. Júlí 2009

Geysir Green EnergyGeysir Green Energy og kanadíska jarðhitafyrirtækið Magma Energy Corporation (Magma) hafa gert með sér samkomulag um kaup Magma á tæplega 11% hlut í HS Orku af Geysi. Jafnframt er stefnt að samstarfi fyrirtækjanna um frekari þróun og nýtingu jarðvarma, bæði hérlendis og á alþjóðavettvangi. Til að hrinda þeim áformum í framkvæmd leggur Magma HS Orku til umtalsvert nýtt hlutafé. Fjárfestingar Magma á Íslandi nema ríflega fimm milljörðum króna og marka viss tímamót, enda er um að ræða fyrstu umtalsverðu fjárfestingu erlends aðila í íslensku atvinnulífi eftir hrun bankanna.

Lesa meira...
 
Höskuldur Ásgeirsson ráðinn framkvæmdastjóri Portusar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 22. Júlí 2009
HöskuldurÁsgeirssonHöskuldur Ásgeirsson, rekstrarhagfræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Portusar hf, sem á og annast byggingu tónlistar- og ráðstefnuhússins í Reykjavík.

Undanfarið hefur Höskuldur verið starfandi framkvæmdastjóri Iceland Seafood Ltd í Bretlandi. Hann var um ellefu mánaða skeið, frá desember 2007 til nóvember 2008, forstjóri Nýsis hf. Frá árinu 2000 til 2007 var hann framkvæmdastjóri og síðar forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf.

Höskuldur er giftur Elsu Þórisdóttur og eiga þau þrjú börn.
Lesa meira...
 
Bóluefni og lyf gegn heimsfaraldri inflúensu Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 15. Júlí 2009

WHOÍ tilefni af opinberri umræðu um inflúensuna A(H1N1), og tilheyrandi bóluefni og bólusetningu hérlendis, er ástæða til að vekja athygli á eftirfarandi til skýringar og áréttingar:

 

Lesa meira...
 
Þrjú ný tilfelli inflúensu A (H1N1) greind á Íslandi Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 15. Júlí 2009
influensa.isStaðfest eru þrjú ný tilfelli inflúensu A (H1N1) hérlendis og eru þau því alls orðin sjö talsins. Um er að ræða fólk á aldrinum 18-19 ára, karl og konu sem komu heim frá Ástralíu og konu sem kom frá Bandaríkjunum. Öll veiktust eftir heimkomuna en ekki alvarlega. Tekin voru sýni í greiningu. Jákvæð niðurstaða fékkst í gær.
Lesa meira...
 
Íslendingur hlýtur eftirsótt hönnunarverðlaun Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 01. Júlí 2009

Gunnar Gunnarsson tekur við verðlaunum sínum í Essen sl. mánudag.Gunnar Gunnarsson sjóntækjafræðingur og hönnuður hjá Reykjavík Eyes hlaut sl. mánudag evrópsku Red Dot Design verðlaunin fyrir hönnun og þróun gleraugnaumgjarða sem framleiddar eru undir merki Reykjavík Eyes. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Essen í Þýskalandi. Meðal verðlaunahafa í ár voru hönnuðir sem vinna fyrir heimsþekkt vörumerki á borð við BMW, Sony, Tag Heuer, Apple og Dell. Í vor hlaut Gunnar verðlaun Universial Design Awards fyrir þá tækni sem liggur að baki framleiðslu Reykjavík Eyes umgjarðanna.

Lesa meira...
 
Pappírslaus viðskipti hjá Byr Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 30. Júní 2009

Byr Frá og með mánaðamótunum júlí - ágúst hættir Byr sparisjóður að senda út með pósti yfirlit reikninga og kreditkorta ásamt greiðsluseðlum lána og kreditkorta. Viðskiptavinir Byrs fá eftir sem áður öll yfirlit rafrænt í gegnum heimabankann sinn.

Þegar tekið er dæmi af viðskiptavini sem hingað til hefur fengið yfirlit launareiknings fjórum sinnum á ári, kreditkortayfirlit mánaðarlega og einn annan greiðsluseðil á mánuði, þá er hann með nýja fyrirkomulaginu, þ.e. að fá þessar upplýsingar eingöngu í heimabankann sinn, að spara sér um 12.000 krónur á ári

Lesa meira...
 
Ríkislögreglustjóri tekur við ábendingum Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 25. Júní 2009

Frá undirskrift samnings milli barnaheilla og ríkislögreglustjóraBarnaheill, Save the Children á Íslandi, hafa starfrækt ábendingalínu frá árinu 2001 þar sem fólk getur komið fram með upplýsingar ef það verður vart við kynferðislegt ofbeldi gegn börnum á Netinu. Er það hluti af verkefni Barnaheilla „Stöðvum barnaklám á Netinu“ sem styrkt hefur verið af ESB. Nú eru Barnaheill og ríkislögreglustjóri að undirrita samning um að slíkar ábendingar fari framvegis beint til ríkislögreglustjóra.

Lesa meira...
 
Lífshættir hafa afgerandi áhrif á krabbameinstíðni Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 24. Júní 2009
Niðurstöður viðamikillar rannsóknar á nýgengi krabbameina hjá starfshópum á Norðurlöndum sýna að þrátt fyrir tiltölulegt jafnræði þegnanna hafa lífshættir, menntun og aðrar aðstæður starfshópa afgerandi áhrif á krabbameinstíðnina. Engu að síður eru vinnutengdir þættir einnig mikilvægir varðandi tilurð krabbameina. Dæmi um slíkt sem staðfest eru í þessari rannsókn eru t.d. asbestmengun (fleiðrukrabbamein), viðarryk (krabbamein í nefi) og útfjólubláir geislar sólar (krabbamein í vörum).
Lesa meira...
 
Byr og HR í samstarf um fjármálalæsi Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 23. Júní 2009
Frá undirritun samnings milli Byrs og Háskólans í Reykjavík.  Þorlákur Karlsson frá HR og Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðsstjóri Byrs skrifa undir. Á bak við þá eru þau Gyða Hlín Björnsdóttir, markaðsfulltrúi hjá Byr og Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi. Byr sparisjóður og Stofnun um fjármálalæsi við Háskólann í Reykjavík hafa gert með sér samstarfssamning sem miðar að því að efla fjármálalæsi Íslendinga. Byr verður aðalstyrktaraðili stofnunarinnar en á hennar vegum verða stundaðar rannsóknir og efnt til námskeiða sem miða að bættu fjármálalæsi þjóðarinnar.
Lesa meira...
 
Skógræktarfélag Íslands skapar allt að 1000 ný störf Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 23. Júní 2009

Skógrækt ríkisinsSkógræktarfélag Íslands hefur að eigin frumkvæði ráðist í það verkefni að skapa störf fyrir allt að 1000 manns í tengslum við uppgræðslu á grænum svæðum skógræktarfélaga landsins. Verkefnið er unnið í samstarfi við Vinnumálastofnun, ríkissjóð og sveitarfélögin. Tilgangurinn með þessu átaksverkefni er að skapa sumarstörf fyrir atvinnulaust fólk sem er tilbúið til að eyða sumrinu við fjölbreytt og skemmtileg störf sem tengjast skógrækt, gróðursetningu, stígagerð og uppbyggingu á grænum útivistarsvæðum.

Lesa meira...
 
Kvennahlaupið í samstarfi við Krabbameinsfélagið Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 20. Júní 2009

KvennahlaupsbolurHið árlega Kvennahlaup Sjóvá og ÍSÍ fer fram í 20. skipti laugardaginn 20. júní næstkomandi og er hlaupið að þessu sinni í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands. „Við erum stolt og ánægð að taka þátt í þessu merka hlaupi sem hvetur konur á öllum aldri til aukinnar hreyfingar og heilsueflingar, ekki aðeins þennan eina dag heldur sem flesta daga ársins,“ segir Sigríður Snæbjörnsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Íslands.

Lesa meira...
 
Horfin barnæska Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 19. Júní 2009

barnaheill_horfinbarnaeskaSamtökin Barnaheill, Save the Children á Íslandi, leita eftir Heillavinum til að styðja við verkefni samtakanna bæði innanlands og erlendis. Að þessu sinni er í brennidepli alþjóðlegt menntaverkefni Save the Children, Bætum framtíð barna, (e. Rewrite the Future) sem hófst árið 2006 og miðar að því að bæta aðstæður milljóna barna í 20 stríðshrjáðum löndum.  þremur árum hafa samtökin náð að veita einni milljón barna menntun sem ekki höfðu verið í skóla áður og bæta menntun 9 milljón barna til viðbótar.

Lesa meira...
 
Þjóðkunnir íslendingar glíma við hindranir í hjólastólaralli MND félagsins Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 15. Júní 2009

Dansararnir Steven Fenech & Mandy Ghio frá Möltu hafa hlotið margvísleg verðlaunuð fyrir hjólastóladans.Sunnudaginn 21. júní munu þjóðþekktir Íslendingar taka þátt í hjólastólaralli á Thorsplani í Hafnarfirði og leysa þrautir sem fólk sem bundið er við hjólastóla þarf að glíma við alla daga ársins. Hjólastólarallið er liður í fjölbreyttri skemmtidagskrá sem MND félagið heldur í miðbæ Hafnarfjarðar í tilefni af alþjóða MND deginum 21.júní.

Lesa meira...
 
Nýtt fasteignamat Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 12. Júní 2009

FasteignamatAllt íbúðarhúsnæði landsmanna er metið með nýjum og endurbættum aðferðum í fasteignamati ársins 2010 sem tekur gildi um næstu áramót. Fasteignaskrá Íslands mun í næstu viku senda út tilkynningar til fasteignaeigenda um allt land þar sem nýja matið er kynnt. Fasteignamat ársins 2010 miðast við verðlag fasteigna í febrúar 2009 og er frestur til að gera athugasemdir við nýja fasteignamatið til 24. júlí 2009.

Lesa meira...
 
Fjórða inflúensutilfellið greint, hið fyrsta sem smitast innanlands Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 12. Júní 2009
Fjórða tilfelli inflúensu A(H1N1) hefur greinst á Íslandi. Þar á í hlut kona á miðjum aldri og allt bendir til þess að hún hafi smitast af hjónum sem komu hingað frá Bandaríkjunum 3. júní síðastliðinn og greindust bæði með veikina. Þetta síðasta tilfelli má því rekja til smits hér innanlands en þeir þrír, sem áður höfðu greinst með inflúensuna hérlendis, smituðust allir í Bandaríkjunum og veiktust eftir komuna til Íslands.
Lesa meira...
 
Bleiki Toppbikarinn fyrir bæði kynin Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 11. Júní 2009

Í sumar verður Bleiki Toppbikarinn haldinn fimmta árið í röð en það eru Krabbameinsfélag Íslands og Vífilfell sem standa fyrir mótaröðinni í samvinnu við Golfsamband Íslands. Allur ágóði verður nýttur til eflingar leitarstarfs á vegum Krabbameinsfélagsins.  Markmið Bleika Toppbikarsins er tvíþætt. Í fyrsta lagi er konum og körlum í golfklúbbum landsins boðið að taka þátt í skemmtilegu móti sem miðar að því að styrkja baráttuna gegn brjóstakrabbameini. Í öðru lagi má ætla að þátttaka í slíku móti hvetji konur til árvekni um eigin heilsu og mætingu í brjóstakrabbameinsleit.

Lesa meira...
 
Þriðja inflúensutilfellið greint á Íslandi Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 10. Júní 2009
Þriðja tilfelli inflúensu A (H1N1) greindist á Íslandi í gærkvöld. Þar er um að ræða eiginkonu karlmannsins sem greindist með veikina í fyrradag og sagt var frá í tilkynningu sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar í gærmorgun. Fullvíst er talið að hjónin hafi smitast í Bandaríkjunum. Þaðan komu þau til Íslands fyrir réttri viku, miðvikudaginn 3. júní. Þau veiktust bæði en ekki alvarlega.
Lesa meira...
 
Íslensk verðbréf taka við rekstri og vörslu sjóða Rekstrarfélags SPRON hf Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 09. Júní 2009
Íslensk verðbréfBráðabirgðastjórn SPRON hefur gert samkomulag við Íslensk verðbréf (ÍV) um að taka að sér þjónustu á sviði vörslu og eignastýringar við viðskiptavini sem áður voru hjá SPRON og SPRON Verðbréfum.

Samhliða hefur verið samið um að Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV hf. taki við rekstri sjóða sem áður voru starfræktir af Rekstrarfélagi SPRON hf. Markmið samkomulagsins, sem þegar hefur tekið gildi, er að koma þjónustu við viðskiptavini SPRON og SPRON Verðbréfa í eðlilegt horf sem fyrst.

Lesa meira...
 
Annað tilfelli inflúensu A (H1N1) staðfest á Íslandi Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 09. Júní 2009
Sextugur karlmaður á höfuðborgarsvæðinu hefur greinst með inflúensu A (H1N1) og er það annað tilfelli veikinnar sem staðfest er hér á landi. Hann er á batavegi. Fylgst er með fjölskyldu og fleirum sem viðkomandi hefur umgengist eftir heimkomuna en smit hjá öðrum hefur ekki verið staðfest.
Lesa meira...
 
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga kaupir 15% hlut í Íslenskum verðbréfum Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 03. Júní 2009
Íslensk verðbréfLífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga hefur keypt tæplega 15% hlut í Íslenskum verðbréfum á Akureyri. Þar með eiga þrír lífeyrissjóðir tæplega 45% hlutafjár í félaginu, en hinir sjóðirnir eru Stapi lífeyrissjóður og Lífeyrissjóður Vestfirðinga. Íslensk verðbréf eru meðal elstu starfandi fjármálafyrirtækja á Íslandi en félagið var stofnað árið 1987.
Lesa meira...
 
Svæðisáætlanir um viðbrögð vegna inflúensufaraldurs ræddar á fundum um allt land Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 03. Júní 2009

Fulltrúar sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra hitta sóttvarnalækna, lögreglustjóra, forystumenn sveitarfélaga og heilbrigðisstarfsmenn á alls fimmtán fundum víðs vegar um landið núna í júní til að ræða svæðisáætlanir um viðbrögð vegna inflúensufaraldurs. Þannig á að samræma aðgerðir í héraði og á landsvísu ef inflúensa A (H1N1) breiðist út hérlendis.

Lesa meira...
 
11 flutningatæknar útskrifast úr Flutningaskóla Samskipa Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 29. Maí 2009
Útskriftarnemarnir 11 ásamt forstjóra Samskipa, Ásbirni Gíslasyni, Báru Mjöll Ágústsdóttur mannauðsstjóra, Auði Þórhallsdóttur fræðslustjóra og Huldu Ólafsdóttur og Jónu Margréti Ólafsdóttur frá Mímí-símenntun. Mynd. Jón Svavarsson Ellefu flutningatæknar voru útskrifaðir úr Flutningaskóla Samskipa við hátíðlega athöfn í gær að viðstöddum forseta Íslands og fleiri góðum gestum. Skólinn, sem starfræktur er í samstarfi við Mími-símenntun, er sérhæfður fyrir bílstjóra Samskipa og starfsfólk í vöruhúsum og á gámavelli félagsins.
Lesa meira...
 
Stúlkur í Landakotsskóla styrkja Krabbameinsfélag Íslands Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 27. Maí 2009

Stúlkur í Landakotsskóla berjast gegn reykingumHægt er að koma hollráðum og góðum skilaboðum til fólks með ýmsum ráðum. Það vita bekkjarsystur í 7. bekk í Landakotsskóla en þær tóku nýverið þátt í verkefninu „Reyklaus bekkur“, sem Lýðheilsustöð stendur fyrir á ári hverju.

Lesa meira...
 
Forseta Íslands afhent fyrsta eintak hljóðbókar MND félagsins Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 25. Maí 2009

Forseti Íslands tekur við hljóðbók MND„Björt framtíð“ er safn greina eftir 49 höfunda sem komin er út á hljóðbók á vegum MND félagsins. Höfundar greinanna koma úr ýmsum áttum en meðal þeirra eru: forseti og biskup Íslands, bæjarstjórar, húsmóðir, prófessorar, verkstjórar, iðnaðarmaður, forstjórar, klæðskeri og prestar. Í tilefni af útgáfunni bauð MND félagið greinahöfundum og aðstandendum verksins til fundar í Fjörugarðinum í Hafnarfirði í hádeginu í dag þar sem Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands var afhent fyrsta eintakið af hljóðbókinni.

Lesa meira...
 
Zontaklúbbur styrkir Krabbameinsfélag Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 25. Maí 2009

zontaZontaklúbbur Reykjavíkur færði Krabbameinsfélag Íslands nýverið veglegan styrk úr Margrétarsjóði félagsins til eflingar kynningarstarfsemi um krabbameinsleit fyrir konur af erlendum uppruna. Ágústa G. Sigfúsdóttir og Auður Andrésdóttir afhentu gjöfina en Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, tók við henni fyrir hönd Krabbameinsfélagsins.

Lesa meira...
 
Inflúensa A (H1N1) ekki greind í sýnum frá sex einstaklingum sem grunur lék á að hefðu smitast Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 25. Maí 2009
Útbreiðsla A (H1N1) veirunnar 25. maí 2009Niðurstöður úr alls sex sýnum, sem tekin voru til rannsóknar síðastliðinn föstudag og laugardag frá einstaklingum sem grunur lék á að hefði smitast af inflúensu A (H1N1), sýna að þeir eru ekki sýktir af hinni nýju inflúensu. Allir í viðkomandi hópi tengdust manninum, sem greindist með inflúensuna fyrir helgi, fjölskylduböndum. Fylgst verður áfram með heilsufari sexmenninganna næstu daga og tekin ný sýni til rannsóknar ef vart verður inflúensulíkra einkenna hjá einhverjum þeirra. Ekki er ástæða til að gera aðrar ráðstafanir.
Lesa meira...
 
Niðurstöður rannsókna á sýnum væntanlegar á morgun Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 24. Maí 2009
Gert er ráð fyrir að niðurstöður rannsókna á sýnum vegna gruns um sex tilfelli inflúensu A (H1N1) liggi fyrir á morgun, mánudag. Viðkomandi einstaklingar tilheyra fjölskyldu mannsins sem greindist með inflúensuna fyrir helgi. Enginn viðkomandi er alvarlega veikur.
Lesa meira...
 
Fyrsta tilfelli inflúensu A (H1N1) greint á Íslandi Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 23. Maí 2009
Eitt tilfelli inflúensu A (H1N1) hefur verið staðfest hér á landi og grunur leikur á að fjórir til viðbótar séu smitaðir. Sýni þar að lútandi verða send til rannsóknar. Viðkomandi tilfelli eru á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi.
Lesa meira...
 
Skipað að nýju í stjórnir Portusar og Situsar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 22. Maí 2009

TR3Austurhöfn-TR, sem er félag í eigu ríkis og borgar um byggingu Tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar við Reykjavíkurhöfn, hefur í samráði við eigendur sína skipað nýjar stjórnir í eignarhaldsfélaginu Portusi og systurfélagi þess, Situsi, sem orðin eru dótturfélög Austurhafnar-TR eftir að félagið yfirtók verkefnið.

Lesa meira...
 
VÍS færir lögreglu stafrænar myndavélar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 20. Maí 2009
VIS_logreglanVÍS færði lögreglu höfuðborgarsvæðisins í dag að gjöf 10 stafrænar myndavélar til að hafa í útkallsbílum  lögreglunnar.  Umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur nýlega verið skipt í fimm svæði og er ein lögreglustöð í hverju þeirra. Hverri stöð fylgja tveir útkallsbílar og er gert ráð fyrir að myndavélarnar verði hluti af búnaði þessara lögreglubíla.
Lesa meira...
 
Frummatsskýrsla um umhverfisáhrif Suðvesturlína til Skipulagsstofnunar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 20. Maí 2009

eflaskyrslaFrummatsskýrsla vegna fyrirhugaðrar styrkingar og endurbyggingar raforkuflutningskerfisins á Suðvesturlandi hefur verið send Skipulagsstofnun til athugunar og verða niðurstöður hennar kynntar hagsmunaðilum og almenningi á næstu vikum. 

 

Lesa meira...
 
Ríflega 10 þúsund staðfest tilfelli af inflúensu A (H1N1) Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 20. Maí 2009

Ríflega 10 þúsund staðfest tileflli af inflúensu A (H1N1) 20. maí 2009Samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB voru staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) alls 10.215 í morgun í 42 ríkjum í heiminum (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti). Langflest flensutilfellanna eru í Bandaríkjunum eða 5.469 en í þeirri tölu eru einnig líkleg flensutilfelli þar í landi.

 

Lesa meira...
 
Ekki varað lengur við ferðalögum til Mexíkó og dregið úr viðbúnaði í Leifsstöð Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 15. Maí 2009

Útbreiðsla A (H1N1) veirunnar á heimsvísu 15. maí 2009Samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB voru staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) alls 7.743 í morgun í 34 ríkjum í heiminum (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti). Langflest flensutilfellanna eru í Bandaríkjunum eða 4.298 og í þeirri tölu eru einnig líkleg flensutilfelli þar í landi.

Lesa meira...
 
Rúrí sýnir við aðalstöðvar OSRAM Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 15. Maí 2009

Hluti af verki Rúríar Aqua-Silence við höfuðstöðvar OSRAM í München.Í lok apríl síðast liðinn var myndbandsverk eftir íslensku listakonuna, Rúrí, tekið til sýninga á Stólpunum sjö (SEVEN SCREENS) en þeir eru hluti af listaverkefnum OSRAM (OSRAM ART PROJECTS) í München. Verkið, sem kallast „Aqua - Silence" birtist á LED skjáum fyrir framan höfuðstöðvar OSRAM en í því má berja augum ýmsar birtingarmyndir vatns: haföldur, fossa og jökla. Þetta er sjöunda verkið sem sýnt er á Stólpunum sjö síðan þeir voru settir upp árið 2006. Um mikilvægan boðskap er að ræða af hálfu Rúríar, en í verki sínu kannar hún hið viðkvæma samband milli manns og náttúru.

Lesa meira...
 
Ný stjórn Byrs Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Fréttatilkynning frá Byr sparisjóði   
Miðvikudagur, 13. Maí 2009
Byr sparisjóðurNý stjórn var kjörin á aðalfundi Byrs sparisjóðs sem haldinn var í dag á Hilton Nordica í Reykjavík. Tveir listar voru í kjöri og hlaut B-listi undir forystu Jóns Kr. Sólnes 48,73% atkvæða en A-listi, undir forystu Sveins Margeirssonar hlaut 46,13% atkvæða. Í stjórn Byrs sparisjóðs fyrir næsta starfsár voru því kjörnir Jón Kr. Sólnes, (B), Sveinn Margeirsson (A), Guðmundur Geir Gunnarsson (B), Arnar Bjarnason (A) og Matthías Björnsson (B). Í varastjórn voru kjörnir Þorsteinn Ólafur Þorsteinsson (B) og Stefán Franklín (A).
Lesa meira...
 
Meiri smithæfni en í „venjulegri“ inflúensu Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 13. Maí 2009
Útbreiðsla A (H1N1) 13. maí 2009Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 5.935 í morgun í 31 ríki í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti). Þar á meðal eru tvö staðfest tilfelli í Finnlandi og þar með hefur flensan stungið sér niður alls staðar á Norðurlöndum nema á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum.
Lesa meira...
 
Rúmlega fimm þúsund staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) í heiminum Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 11. Maí 2009
Útbreiðsla A (H1N1) að morgni 11. maí 2009Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 5.132 í morgun í 30 ríkjum í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti). Þar á meðal eru tvö staðfest tilfelli í Noregi, tvö í Svíþjóð og eitt í Danmörku. Staðfest dauðsföll vegna flensunnar eru 53 talsins, flest í Mexíkó eða 48, þrjú dauðsföll eru staðfest í Bandaríkjunum, eitt í Kanada og eitt í Kosta Ríka.
Lesa meira...
 
Hvergi slegið af gæðakröfum hjá LKÍ Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 11. Maí 2009
Guðrún AgnarsdóttirLeitarstöð Krabbameinsfélags Íslands (LKÍ) hefur gert breytingar á starfsemi sinni í kjölfar innleiðingar nýs stafræns tækjabúnaðar og tölvukerfa til að auka hagræðingu og lækka rekstrarkostnað. Breytingarnar, sem tóku gildi 1. maí, munu hvorki koma til með að skerða öryggi skjólstæðinga Leitarstöðvarinnar né gæði þeirrar þjónustu sem hún býður upp á. 
 „Krabbameinsfélagið verður að huga að sparnaði rétt eins og aðrir á þessum tímum. Við búum hins vegar svo vel að hafa gert verulegar tæknibreytingar á síðasta ári, fyrir söfnunarfé einstaklinga og fyrirtækja, sem gera okkur kleift að hagræða án þess að draga úr þjónustu við skjólstæðinga okkar,“ segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands. 
Lesa meira...
 
Staðfestum tilfellum inflúensu A (H1N1) fjölgar nú hægar en áður Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 08. Maí 2009

Útbreiðsla inflúensu A(H1N1) að morgni 8. maí 2009Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 2.489 í morgun í 24 ríkjum í heiminum og hafði fjölgað um 272 á síðastliðnum sólarhring samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).

 

Lesa meira...
 
Staðfestum inflúensutilfellum fjölgar mest í Bandaríkjunum Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 07. Maí 2009

Útbeiðsla inflúensu A (H1N1) 7. maí 2009Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 2.217 í morgun í 24 ríkjum í heiminum og hafði fjölgað um 568 á síðastliðnum sólarhring samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).


Inflúensan hefur nú verið staðfest í fyrsta sinn í Svíþjóð og Póllandi (eitt tilfelli í hvoru landi) en sem fyrr er ástandið alvarlegast í Mexíkó þar sem staðfest tilfelli eru ríflega 1.100 og 42 dauðsföll eru rakin til veikinnar.

Lesa meira...
 
Flest staðfest inflúensutilfelli í Evrópu eru á Spáni Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 06. Maí 2009
Útbreiðsla A(H1N1) inflúensunnar á heimsvísu 6. maí 2009Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 1.652 í morgun í 22 ríkjum í heiminum og hafði fjölgað um 380 á síðastliðnum sólarhring samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).

Staðfestum tilfellum fjölgar mest sem fyrr í Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada og dauðsföll af völdum veikinnar eru nú talin vera 30, þar af 29 í Mexíkó.

Lesa meira...
 
Byr tekur að sér greiðslumiðlun fyrir sparisjóðina Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 06. Maí 2009

BYRByr sparisjóður hefur undanfarið unnið með Fjármálaeftirlitinu og Seðlabanka Íslands að uppbyggingu erlendrar greiðslumiðlunar fyrir Byr og aðra sparisjóði í landinu. Sparisjóðabankinn annaðist áður alla erlenda greislumiðlun sparisjóðanna. Byr hefur í framhaldi af þessu ráðið til sín 9 fyrrum starfsmenn Sparisjóðabankans til að annast þessi nýju verkefni.

Lesa meira...
 
Flestir sem greinast með inflúensu A (H1N1) eru ungt fólk Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 05. Maí 2009

Utbreiðsla svinaflensuvirusins Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 1.269 í morgun í 22 ríkjum í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).

Staðfestum tilfellum fjölgar enn. Þannig voru þrettán ný tilfelli staðfest á Spáni á síðastliðnum sólarhring og utan Evrópu fjölgaði staðfestum tilfellum einkum í Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada. Engin ný, alvarleg tilfelli hafa verið tilkynnt nema í Mexíkó. Dauðsföll sem rakin eru til veikinnar eru 27 þar af 26 í Mexíkó og eitt í Bandaríkjunum.

Lesa meira...
 
Yfir 1.000 staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 04. Maí 2009

Útbreiðsla A (H1N1) vírussins 4.5.2009Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) - „svínainflúensunnar“ - voru í morgun alls 1.008 í nítján ríkjum í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar Evrópusambandsins (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu).

Einkenni veikinnar eru enn sem komið er væg nema í Mexíkó. Dauðsföll sem rakin eru til veikinnar eru 23, þar af 22 í Mexíkó og eitt í Bandaríkjunum.

Lesa meira...
 
Staðfest 481 svínainflúensutilfelli í 11 löndum Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 01. Maí 2009

Staðfestum tilvikum svínainflúensu í heiminum fjölgar áfram. Þau voru alls 481 í morgun, þar af 312 í Mexíkó. Alls hafa þrettán látist úr veikinni þar af tólf í Mexíkó og einn í Bandaríkjunum. Þetta eru nýjustu upplýsingar Sóttvarnastofnunar Evrópu.

Lesa meira...
 
Stærsta blað Athygli! Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 29. Apríl 2009

Ævintýralandið ÍslandÍ dag urðu þau tíðindi, í miðri kreppunni, að Athygli ehf. gaf út stærsta auglýsinga- og kynningarblað sem fyrirtækið hefur gefið út. Um er að ræða Ævintýralandið Ísland, fjölbreytt blað um ferðaþjónustuna á Íslandi, 72 síður að stærð, dreift með Morgunblaðinu um land allt. Blaðið er alfarið fjármagnað með sölu auglýsinga og áhuginn á því að vera með var slíkur að færri komust að en vildu.

Lesa meira...
 
Kyrrsetningu eigna Glitnis aflétt Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 28. Apríl 2009

GlitnirbankÍ síðustu viku var aflétt kyrrsetningu á eignum Glitnis í Noregi sem staðið hefur frá falli bankans í byrjun október í fyrra. Með þessari niðurstöðu fær skilanefnd bankans óskorað forræði yfir eignum hans í Noregi, sem eru að andvirði um eitt hundrað milljarðar íslenskra króna.

Lesa meira...
 
Tekk-Company opnar á ný í Kringlunni Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 24. Apríl 2009
Tekk Company opnar á ný í KringlunniTekk-Company opnar á ný glæsilega verslun á neðri hæð Kringlunnar við hliðina á Byggt og búið laugardaginn 25.apríl.
Verslunin verður að miklu leyti með nýju sniði þar sem boðið verður upp á skemmtilegar nýjungar.  Má þar nefna að verslunin mun hefja sölu á hollenska vörumerkinu „Riviera Maison“   www.rivieramaison.com sem er vel þekkt í evrópu fyrir fallegar verslanir sem byggja á einstökum hlutum í fallegu umhverfi.
Lesa meira...
 
Sótt um lóð undir olíubirgðastöð á Reyðarfirði Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 22. Apríl 2009

Mannvit sækir um lóðMannvit hefur sótt um lóð fyrir 244.000 rúmmetra olíubirgðastöð á Reyðarfirði, fyrir hönd Atlantic Tank Storage og var fjallað um umsóknina í umhverfisnefnd Fjarðarbyggðar í dag. Birgðastöðin er hönnuð fyrir geymslu á almennum olíuvörum þ.m.t.  bensíni, gasolíu og jarðolíu og er gert ráð fyrir að í stöðinni verði um 13 geymar. Áætlaður byggingartími er 15-18 mánuðir og er gert ráð fyrir 120 til 150 ársverkum við byggingu stöðvarinnar. Þegar byggingunni er lokið munu þrír til fimm starfsmenn annast reksturinn.

Lesa meira...
 
Ávinningur af því að sameina rekstur Landspítala metinn á 19 milljarða króna Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 21. Apríl 2009

Frá kynningafundi um skýrslu norsku sérfræðingannaSérfræðingar norsku hönnunar- og ráðgjafarfyrirtækjanna Momentum Arkitekter AS og Hospitalitet AS telja ávinninginn af því að sameina rekstur Landspítala vera um 19 milljarða króna á núvirði til næstu 40 ára, mun dýrara fyrir íslenskt samfélag að reka Landspítalann áfram við núverandi aðstæður í Fossvogi og við Hringbraut en að sameina reksturinn, hagkvæmast er að byggja við núverandi Landspítala við Hringbraut í fyrsta áfanga og nýta áfram flest hús sem fyrir eru á lóðinni og unnt er að áfangaskipta verkefninu í heild þannig að viðráðanlegra verði að hrinda því í framkvæmda og spara 6% í rekstri spítalans strax að loknum fyrsta áfanga, sem svarar til ríflega tveggja milljarða króna á ári.

Lesa meira...
 
Fagfélagið styrkir Karlmenn og krabbamein Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 07. Apríl 2009

Finnbjörn afhendir Ragnheiði styrkinn Fagfélagið afhenti Ragnheiði Alfreðsdóttur, forstöðumanni Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, eina milljón króna til styrktar átakinu Karlmenn og krabbamein á aðalfundi Fagfélagsins þann 6. apríl. „Karlmenn eru í miklum meirihluta í Fagfélaginu og krabbamein er sjúkdómur sem herjar á karla. Þrátt fyrir það er krabbamein hálfgerður feimnissjúkdómur, sem menn tala almennt ekki um,“ segir Finnbjörn Hermannsson, formaður Fagfélagsins við tilefnið.

Lesa meira...
 
Framhald framkvæmda tryggt Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 02. Apríl 2009

austurhofn-byggingAusturhöfn-TR hefur eignast félögin Portus og Situs, sem höfðu með höndum uppbyggingu Tónlistar – og ráðstefnuhússins (TR), ásamt byggingarrétti á allri lóðinni að Austurbakka 2 eftir að samningsskilmálar þar um hafa nú verið undirritaðir af Austurhöfn, NBI hf., skilanefnd Landsbanka Íslands hf., menntamálaráðherra, fjármálaráðherra, borgarstjóra og Nýsi hf. 

 

Lesa meira...
 
Öflugt ráðgjafarfyrirtæki verður til Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 31. Mars 2009

Starfsfólk CapacentCapacent Glacier er nýtt ráðgjafarfyrirtæki þar sem marga ára reynsla starfsmanna Capacent á sviði fjármálaráðgjafar og þekking og tengsl fyrrum starfsmanna Glitnis í ráðgjöf til alþjóðlegra fyrirtækja í sjávarútvegi og jarðvarma hefur verið sameinuð með samstarfi við ráðgjafarfyrirtækin Glacier Partners í Bandaríkjunum og Pritchard Capital, sem er sérhæft verðbréfafyrirtæki á orkusviði. Capacent Glacier er með 12 starfsmenn á Íslandi og Glacier Partners er með sex starfsmenn í Bandaríkjunum. Félagið er að helmingi í eigu Capacent og að helmingi í eigu stjórnenda. 

Lesa meira...
 
Aldrei meira en 10% eignarhlutur Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 26. Mars 2009

ByrÍ Morgunblaðinu í dag, 26. mars, birtist fréttaklausa undir fyrirsögninni: „Íslandsbanki gæti eignast Byr í júní.“  Af henni má ráða að einn aðili geti eignast sparisjóðinn.

Samkvæmt lögum um sparisjóði má enginn einn aðili eiga meira en 10% hlut eða fara með meira en 5% atkvæða á fundum.  Með svo dreifðu eignarhaldi og takmörkun á atkvæðagreiðslu er tryggt að enginn einn stofnfjáreigandi geti haft ráðandi hlut. Lögum samkvæmt gæti því Íslandsbanki aldrei átt nema í mesta lagi 10% í Byr.

Lesa meira...
 
Flestir karlmenn eru læknaðir á Íslandi Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 24. Mars 2009

Guðrún AgnarsdóttirFjöldi þeirra sem læknast alveg af krabbameini – en ná ekki bara að lifa fyrstu 5 ár eftir greiningu  - eykst stöðugt. Þegar öll krabbamein eru tekin saman kemur í ljós að hlutfall karla sem læknast er hæst á Íslandi.  Þetta kemur fram í niðurstöðum langtíma faraldsfræðirannsóknarinnar EUROCARE-4 sem birtust nýlega í European Journal of Cancer. 

Lesa meira...
 
Rekstur Byrs tryggður Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 23. Mars 2009

ByrYfirtaka FME á Sparisjóðabankanum mun ekki hafa áhrif á rekstur Byrs þar sem eign Byrs í Sparisjóðabankanum hafði þegar verið færð niður í uppgjöri Byrs fyrir árið 2008. Byr átti ekki hlut í SPRON og því hefur yfirtaka hans ekki fjárhagsleg áhrif á Byr.

Í frétt frá Byr í morgun segir m.a.: „Hugur starfsmanna Byrs er hjá starfsfólki SPRON og Sparisjóðabankans enda hafa samskiptin verið góð og ánægjuleg í gegnum tíðina. Starfsfólk Byrs vill koma á framfæri hlýjum kveðjum til starfsmanna fyrirtækjanna.“

Lesa meira...
 
Tryggingarfelagið Føroyar boðar komu sína á íslenskan tryggingamarkað Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 10. Mars 2009

Höfuðstöðvar tryggingafélagsins Føroyar í Þórshöfn í FæreyjumTryggingarfelagið Føroyar (TF) stefnir að því að hefja starfsemi á Íslandi fyrir árslok 2009.

Edvard Heen, framkvæmdastjóri félagsins, tilkynnti þetta á fréttamannafundi í Reykjavík í dag.  Hann sagði jafnframt að ráðamenn TF hefðu frá því snemma árs 2007 kannað möguleika á að koma inn á íslenska markaðinn. Veruleg hreyfing hafi komist á málið í ágúst 2008 og formleg ákvörðun um starfsemi á Íslandi síðan verið tekin á stjórnarfundi fyrirtækisins fyrir réttum tveimur vikum, 24. febrúar 2009.

Lesa meira...
 
Sparisjóðirnir vinsælastir! Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 04. Mars 2009

Gísli Jafetsson, til vinstri, frá sparisjóðunum tekur við viðurkenningunni úr hendi Einars Þórs Bjarnasonar frá Stjórnvísi.Viðskiptavinir sparisjóðanna eru ánægðustu viðskiptavinir íslenskra fyrirtækja samkvæmt niðurstöðum mælinga Íslensku ánægjuvogarinnar sem kynnt var í morgun. 

Vörumerki sparisjóðanna, Sparisjóðurinn, Byr og SPRON raða sér í þrjú efstu sætin í hópi fjármálafyrirtækja og er þetta 10. árið í röð sem sparisjóðirnir hreppa þá viðurkenningu.  

Lesa meira...
 
Ráðherrum afhentar slaufur og bindi Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 04. Mars 2009

„Karlmenn og krabbamein - lífsstíll, heilsa og mataræði“ er yfirskrift átaks Krabbameinsfélags Íslands sem hófst á sunnudaginn.Guðrún Agnarsdóttir afhendir ráðherrum bindi Í tilefni af því afhenti forstjóri Krabbameinsfélagsins, Guðrún Agnarsdóttir, ráðherrum í ríkisstjórn Íslands slaufur og þrílit bindi í litum átaksins í morgun. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, tók við gjöfinni og þakkaði vel fyrir auk þess að hrósa Krabbameinsfélaginu fyrir þarft átak. 

Lesa meira...
 
Átakið Karlmenn og krabbamein hefst með sögulegum leik Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 01. Mars 2009

Karlmenn og krabbamein Pétur Ormslev og Guðrún Agnarsdóttir opna átak„Karlmenn og krabbamein - lífsstíll, heilsa og mataræði“ er yfirskrift tveggja vikna átaks Krabbameinsfélags Íslands sem hófst formlega um helgina með keppni leikmanna úr A og B liði íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu og stjörnuliðs eldri landsliðsmanna í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Þetta er í annað sinn sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir sérstöku átaki um karlmenn og krabbamein hér á landi og verður öllum ágóða af sölu styrktarmiða, herrabinda og slaufa varið til fræðslu og ráðgjafar við krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra.

Lesa meira...
 
Þjóðlendukröfur ríkisins eru hluti af græðgisvæðingu samfélagsins Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 23. Febrúar 2009

Landssamtök landeigenda - stofnfundur„Þjóðlendumálið er einn angi græðgisvæðingar sem á endanum leiddi mikla ógæfu yfir þjóðina. Ríkisvaldið réðst að sjálfum eignarréttinum, einum af hornsteinum samfélagsins með öfgafullum og siðlausum kröfum án þess að spyrja um afleiðingar og herkostnað. Landeigendur eru margir hverjir í sárum eftir þá viðureign.“

Lesa meira...
 
Kvennaráðgjöfin opnar nýja heimasíðu Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 15. Febrúar 2009

KvennaráðgjöfinKvennaráðgjöfin hefur opnað nýja heimasíðu á slóðinni www.kvennaradgjofin.is. Kvennaráðgjöfin tók til starfa í febrúar 1984 og hefur starfað óslitið síðan. Var hún stofnuð af konum til að bæta aðgang kvenna að sérfræðiaðstoð. Spratt Kvennaráðgjöfin í raun upp úr þeim hræringum sem urðu meðal kvenna seint á sjöunda áratugnum og í byrjun hins áttunda og leiddu til stofnunar Kvennalistans, og síðar Kvennaráðgjafar, Kvennaathvarfs og Stígamóta.

Lesa meira...
 
Ásókn gæðanemenda í RES Orkuskólann á Akureyri Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 09. Febrúar 2009

bjorn_resRES Orkuskólinn á Akureyri (RES - the School for Renewable Energy Science) var settur á laugardag í annað sinn. Á komandi námsári munu yfir fjörtíu nemendur frá fjórtán löndum hefja meistaranám í vistvænni orkunýtingu við skólann. Um er að ræða eins árs meistaranám í endurnýjanlegum orkufræðum og vistvænni orkunýtingu í samstarfi við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Nemendurnir koma flestir frá erlendum háskólum og hafa þar lagt stund á verkfræði eða raunvísindi, margir á meistara- og doktorsstigi. Fyrstu þrír íslensku nemendurnir hefja nú nám við skólann, en auk þeirra stunda nú nám við RES í fyrsta skipti nemendur frá Mið og Suður Ameríku og Asíu.

Lesa meira...
 
Vel heppnuð kynning í Reykjanesbæ Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 07. Febrúar 2009

Árni Sigfússon bæjarstjóri var meðal gesta á opna húsinu í Reykjanesbæ í gær.Á fimmta tug gesta sóttu opið hús Landsnets í Reykjanesbæ í gær þar sem kynnt var tillaga að matsáætlun vegna fyrirhugaðar styrkingar raforkukerfisins á Suðvesturlandi, allt frá Hellisheiði að Reykjanesvirkjun. Opið hús um tillöguna verður í Vogum á Vatnsleysuströnd í dag og Hafnarfirði á morgun.

Lesa meira...
 
Gögn fyrir hönnunarsamkeppni um nýtt háskólasjúkrahús tilbúin en beðið eftir heimild til að hefja hönnunarvinnuna Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 30. Janúar 2009

Gögn fyrir hönnunarsamkeppni um nýtt háskólasjúkrahús tilbúinGögn fyrir hönnunarsamkeppni um nýtt háskólasjúkrahús eru nú tilbúin og er áætlað að samkeppnin, með dómnefndarstörfum og samningum, taki um 7-8 mánuði. Hönnun nýja spítalans gæti hafist af fullum krafti í september næstkomandi ef heimild verður veitt fljótlega fyrir samkeppninni. Allt að 100 hönnuðir fá vinnu við lokahönnun spítalans og þörf er á 500 manns í viðbót þegar framkvæmdir hefjast.

Lesa meira...
 
Steinar vinsæll á Facebook Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 29. Janúar 2009

Steinar vinsæll á FacebookNú styttist í að átakið Karlmenn og krabbamein hefjist, en Krabbameinsfélag Íslands er önnum kafið við undirbúninginn fyrir þetta tveggja vikna átak sem hefst í mars.   Eins og í fyrra hefur hann Steinar hafið störf sem talsmaður átaksins, en hann hefur hafið söfnun á vinum á samskiptavefnum Facebook, og nú þegar eignast tæpa 1400 vini. Steinar hvetur alla Facebook meðlimi til að heimsækja síðuna og styðja við gott málefni!

Lesa meira...
 
HEKLA hlýtur ISO gæðavottun fyrir sölu og þjónustu Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 27. Janúar 2009

Hekla hlýtur ISO gæðavottun fyrir sölu og þjónustu Bílaumboðið HEKLA hefur nú uppfyllt gæðakröfur ISO 9001:2000 staðalsins, en sú vottun var staðfest af TUV vottunaraðilanum í Þýskalandi, sem ber ábyrgð á vottun á sölu- og þjónustuneti Volkswagen samsteypunnar um allan heim. Vottunin nær til sölu og þjónustu á fólks- og atvinnubílum frá Volkswagen auk Audi og innan skamms lýkur sambærilegu vottunarferli fyrir Skoda með samsvarandi gæðavottun. Gæðakerfið tekur á öllum þáttum sölu, og þjónustu fyrir Volkswagen samsteypuna sem er stærsti bílaframleiðandi í Evrópu.

Lesa meira...
 
Samstarf Athygli og Krabbameinsfélagsins Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 13. Janúar 2009

Við undirritun samningsGengið hefur verið frá samningi milli Krabbameinsfélags Íslands og Athygli ehf. um samstarf á sviði kynningar- og upplýsingamála. Samningurinn tryggir Krabbameinsfélaginu aðgang að ráðgjöf Athygli á sérstökum afsláttarkjörum. Með samningnum vill stjórn og starfsfólk Athygli leggja sitt af mörkum til samfélagsmála.

Lesa meira...
 


Senda á Facebook