Fréttir 2009

Print

Kristínarsjóður gefur Barnaspítala Hringsins

þann .

Jakob, Sigrún og hressir krakkar á dagdeild

Stjórn Kristínarsjóðs, minningarsjóðs í vörslu Krabbameinsfélags Íslands, hefur ákveðið að gefa Barnaspítala Hringsins veglega jólagjöf; sex sjónvarpsflatskjái ásamt DVD spilurum og Playstation leikjatölvum að andvirði um ein milljón króna, í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá fæðingu Kristínar Björnsdóttur, fyrrverandi starfsmanns Sameinuðu þjóðanna, sem lagði sjóðnum til fjármagn.

Print

Maður vikunnar og ófriður við Reykjavíkurhöfn

þann .

hafnarsAUGL_mynd_litilBinni í Vinnslustöðinni í Eyjum er maður dagsins í DV í dag vegna humars, sem VSV gaf hjálparsamtökum á höfuðborgarsvæðinu í vikunni og vegna myndarlegs jólabónuss sem starfsmenn VSV hreppa fyrir hátíðar. Starfsmenn Faxaflóahafna fengu yfir sig holskeflu fyrirspurna í kjölfar auglýsinga um verbúðir til leigu við Reykjavíkurhöfn. Í öllum tilvikum kom Athygli ehf. að því að kveikja eldana....

Print

Krabbameinsleit á Selfossi í febrúar

þann .

slaufan09Eins og tilkynnt var um í haust verður leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum í Hveragerði og Selfossi sameinuð, og fer leitin fram í Heilsugæslustöð Selfoss 15.-23. febrúar næstkomandi. Krabbameinsfélag Íslands hefur í fjölda ára leitast við að auðvelda öllum konum að mæta reglulega í leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum, óháð búsetu. Vegna erfiðs efnahagsástands hefur félagið þó þurft að grípa til ýmissa hagræðinga í rekstri, en þar á meðal er að fækka skoðunarstöðum úti á landi úr 42 í 30. Í október var tilkynnt að leit að krabbameini fyrir íbúa Hveragerðis og Selfoss væri frestað um óákveðinn tíma.

 

Print

KPMG styrkir Geðhjálp

þann .

KPMG styrkir GeðhjálpFulltrúar KPMG á Íslandi og Geðhjálpar hafa undirritað styrktarsamning um að KPMG gerist aðalstyrktaraðili Geðhjálpar næstu tvö árin. Styrkur KPMG nemur samtals 3 milljónum króna og vill félagið með því stuðla að eflingu geðheilbrigðis og gera Geðhjálp kleift að auka aðstoð við þá er kljást við geðræn vandamál.

Print

Magma Energy með 40,94% hlut í HS Orku

þann .

Kanadíska jarðhitafyrirtækið Magma Energy (Magma), Orkuveita Reykjavíkur (OR), Hafnarfjarðarbær og Sandgerðisbær hafa lokið viðskiptum vegna kaupa Magma á 32,32% hlut í HS Orku. Magma á nú 40,94% hlut í HS Orku og þess er vænst að samningum um kaup fyrirtækisins á 2,16% hlut til viðbótar í HS Orku ljúki í mars á næsta ári. Ennfremur á Magma kauprétt á frekari hlut í HS Orku með hlutafjáraukningu að upphæð 15 milljón dollarar fyrir 1. nóvember 2011.

Print

2.000 humarpokar frá VSV til Fjölskylduhjálpar og Mæðrastyrksnefndar

þann .

Vinnslustöðin í Vestmannareyjum afhenti í dag Fjölskylduhjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur að gjöf samtals 900 kg af humri til dreifingar meðal skjólstæðinga samtakanna fyrir jólin. Humarinn er frosinn í 450 gramma pokum. Hvor samtök fengu 1.000 poka til ráðstöfunar. Fulltrúar samtakanna tveggja þökkuðu fyrir sendinguna og báðu fyrir góðar kveðjur til Eyja. Samtökin hafa ekki áður dreift humri til skjólstæðinga sinna.

Print

Forstjóraskipti hjá Geysi Green Energy

þann .

GGE

Stjórn Geysis Green Energy hefur, í samráði við viðskiptabanka félagsins, tekið ákvörðun um að vinna markvisst að lækkun skulda félagsins með sölu eigna þess á næstu misserum. Í tengslum við þá stefnumótun hefur Ásgeir Margeirsson ákveðið að hætta sem forstjóri félagsins. Alexander K. Guðmundsson, fjármálastjóri Geysis, hefur verið ráðinn í hans stað.

Print

Skoskur sigur í hugmyndasamkeppni fagfólks um Gömlu höfnina í Reykjavík

þann .

Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs og hafnarstjórnar og formaður dómnefndar óskar vinningshöfunum, Graeme Massie, Robin Sutherland til hamingju.  Myndir: Hreinn MagnússonArkitektastofa í Edinborg í Skotlandi, Graeme Massie Architects, hlaut fyrstu verðlaun í A-hluta hugmyndasamkeppni sem Faxaflóahafnir sf. efndu til vegna skipulags Gömlu hafnarinnar og Örfiriseyjar í Reykjavík. Samstarfsaðili hennar á Íslandi er ráðgjafarfyrirtækið Alta ehf. Úrslitin voru tilkynnt við athöfn í Víkinni sjóminjasafni nú síðdegis um leið og sigurlaunin voru afhent, 7,5 milljónir króna.

Print

Kolefnisspor Reykjavíkur 20 - 80 falt minna en annarra höfuðborga Norðurlanda

þann .

Fundur í HafnarhúsinuSvokallað kolefnisspor Reykjavíkur er 20-80 falt minna en annarra höfuðborga Norðurlanda og hitaveita sparar þjóðarbúinu um 40 milljarða króna á ári í gjaldeyri. Þetta kom fram á fundi um vistvæn hverfi og byggingar í Hafnarhúsinu í gær og var hann hluti af fundarröð með fagfólki, hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum um endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur.

Print

Nýrri sendingu bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) dreift til heilsugæslustöðva eftir helgi

þann .

Ný sending bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) berst heilsugæslustöðvum um land allt á mánudag og þriðjudag, 14. og 15. desember, og þá verður unnt að taka þráðinn upp að nýju og bólusetja fólk sem skráð hefur sig á biðlista.

  • Bólusetning hefst þannig á nýjan leik miðvikudaginn 16. desember og þá ganga þeir fyrir sem hafa skráð sig á biðlista.
  • Tekið er við nýjum pöntunum vegna bólusetningar frá og með mánudegi 14. desember, þ.e.a.s. á þeim heilsugæslustöðvum sem hafa ekki ráðstafað fyrir fram öllu bóluefninu í væntanlegri sendingu.
  • Bóluefni verður næst dreift um landið 6. janúar 2010 og verður tekið við pöntunum í þá sendingu eftir áramótin.
Print

Alls 8.685 kröfum lýst við slitameðferð Glitnis

þann .

GlitnirbankSlitastjórn Glitnis hefur birt skrá yfir lýstar kröfur við slitameðferð Glitnis á lokuðu vefsvæði sem kröfuhafar hafa aðgang að á heimasíðu bankans. Kröfuhafar sem lýst hafa kröfum geta einnig nálgast kröfuskrána á skrifstofu Glitnis í Sóltúni 26 í Reykjavík.

Frestur til að lýsa kröfum við slitameðferð Glitnis rann út þann 26. nóvember síðast liðinn og á fundi með kröfuhöfum þann 17. desember n.k. mun slitastjórn fara yfir kröfuskrána og gera grein fyrir þeim ákvörðunum sem þegar liggja fyrir.  Þá gefst kröfuhöfum jafnframt tækifæri til að andmæla afstöðu slitastjórnar til einstakra krafna.