Forsíða Fréttir Fréttir 2006
Athygli almannatengsl - Fréttir 2006
Aukin umsvif Samskipa í Mið-Ameríku Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 27. Desember 2006
Samskip - Mið-AmeríkaVegna aukinna umsvifa Samskipa í Mið-Ameríku hefur verið samið við flutningafélagið Container Transport Solutions Inc. í Panama um að vera umboðsaðili félagsins í þessum heimshluta.
Lesa meira...
 
Glæsileg ferðaáætlun Útivistar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 15. Desember 2006
Glæsileg ferðaáætlun ÚtivistarÍ dag kom út ferðaáætlun Útivistar fyrir árið 2007 en um er að ræða 36 síðna blað sem dreift var til áskrifenda Morgunblaðsins á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum. Athygli er útgefandi ritsins og annaðist jafnframt auglýsingaöflun og umbrot. Þetta er í fjórða sinn sem Athygli hefur þetta verkefni með höndum.
Lesa meira...
 
Samskip opna nýja skrifstofu í Svíþjóð Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 12. Desember 2006
Samskip hafa opnað söluskrifstofu í Helsingjaborg í Svíþjóð og er það jafnframt þriðja skrifstofa félagsins þar í landi. Fyrir voru Samskip með söluskrifstofur í Gautaborg og Varberg.
Lesa meira...
 
Veglegt Akureyrarblað komið út Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 07. Desember 2006
Veglegt AkureyrarblaðÍ dag var dreift til áskrifenda Morgunblaðsins og í öll hús á Akureyri blaðinu Akureyri -  eins og í útlöndum!, sem Athygli og Kaupmannafélag Akureyrar gefa út.
Lesa meira...
 
Njörður P. Njarðvík fær Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 01. Desember 2006

Njörður P. NjarðvíkNjörður P. Njarðvík, rithöfundur og fyrrverandi prófessor, hlýtur Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna árið 2006 fyrir ómetanlegt starf til hjálpar munaðarlausum börnum í Afríku. Verðlaunaféð, fjórar milljónir króna, verður nýtt til frekari uppbyggingar á heimilum fyrir munaðarlaus börn á vegum hugsjónafélagsins SPES.

Lesa meira...
 
AT tímarit komið út Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 30. Nóvember 2006
AT tímaritAnnað tölublað AT tímarits 2006 er komið út en það er gefið út af Athygli ehf. í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og Félag íslenskra landslagsarkitekta. Blaðið er stútfullt af áhugaverðu efni um arkitektúr, skipulag og landmótun.
Lesa meira...
 
Athygli gefur út jólablað Hafnarfjarðar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 24. Nóvember 2006
Jólablað HafnarfjarðarBlaðið Hafnarfjörður - Velkomin í Jólaþorpið kom út í vikunni. Eins og nafnið ber með sér er Jólaþorpið á Thorsplani og fjölbreytt dagskrá á aðventunni tilefni þessar útgáfu. Starfsfólk Athygli ehf. hafði umsjón með útgáfu blaðsins, sá um efnisöflun, sölu auglýsinga og umbrot.
Lesa meira...
 
Heiðursverðlaunahafi Myndstefs 2006 Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 21. Nóvember 2006
Heiðursverðlaun Myndstefs afhentValgerður Bergsdóttir er handhafi heiðursverðlauna Myndstefs árið 2006 sem forseti Íslands afhenti við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands í dag. Viðurkenninguna hlýtur Valgerður fyrir hönnun og gerð steindra glugga í Reykholtskirkju og fyrir sýningarnar Teikn og hnit og AND-LIT í Gerðarsafni fyrr á þessu ári. Jafnframt er Valgerður heiðruð fyrir fjölþætt störf á vettvangi íslenskrar myndlistar sem kennari, stjórnandi og myndlistarmaður.
Lesa meira...
 
HYDRO opnar skrifstofu í Reykjavík Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 17. Nóvember 2006
Hydro opnar skrifstofu í ReykjavíkHydro hefur opnað skrifstofu á Íslandi með það að markmiði að leita uppi og þróa ný umhverfisvæn viðskiptatækifæri á sviði ál- og orkuframleiðslu. Norður-Atlantshafsskrifstofan er til húsa að Smiðshöfða 1 í Reykjavík og þjónar bæði Íslandi og Kanada.
Lesa meira...
 
Viðræður um tvöföldun ganganna og þjóðvegarins á Kjalarnesi Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 17. Nóvember 2006
Gísli Gíslason í ræðustóli, Jónas Aðalsteinsson fundarstjóri og Guðlaugur Hjörleifsson fundarritari.„Það verður verkefni stjórnar Spalar á komandi mánuðum að taka upp viðræður við samgönguyfirvöld um hvernig tryggja megi að Hvalfjarðargöng og aðliggjandi umferðarmannvirki afkasti þeirri umferð sem fyrirsjáanleg er á komandi árum,“ sagði Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, meðal annars í skýrslu stjórnar félagsins á aðalfundi þess á Akranesi í dag.
Lesa meira...
 
Sex tilnefnd til heiðursverðlauna Myndstefs Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 13. Nóvember 2006
MyndstefSex myndhöfundar, þrjár konur og þrír karlar, keppa um heiðursverðlaun Myndstefs, myndhöfundasjóðs Íslands, sem forseti Íslands úthlutar við hátíðlega athöfn þann 21. nóvember næstkomandi.
Lesa meira...
 
Sorpa fær afhenta sex nýja EcoFuel bíla frá HEKLU Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 26. Október 2006
Hekla afhendir Sorpu sex nýja ExoFuel bílaNý og endurbætt kynslóð metanbíla frá Volkswagen, EcoFuel, er komin á markað hér á landi og afhenti Knútur G. Hauksson, forstjóri HEKLU, fulltrúum Sorpu sex slíka bíla við athöfn í höfuðstöðvum HEKLU í dag. Með tilkomu nýju bílanna verða metanbílar á götum borgarinnar orðnir um 60 talsins en sex ár eru frá því að fyrstu bílarnir komu á markað hérlendis. HEKLA hefur flutt inn ríflega helming þessara bíla, eða alls 35 metanbíla.
Lesa meira...
 
Opinn fundur VÍS um forvarna- og öryggismál í hestamennsku Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 26. Október 2006
VÍSMikilvægt er að hestamenn noti öryggisbúnað og nýrrar hugsunar er þörf í reiðvegamálum. Þá eimir enn eftir af því viðhorfi að neysla áfengis og hestamennska fari saman, þó lítill hluti hestamanna eigi þar hlut að máli. Þetta var meðal þess sem fram kom í erindum framsögumanna á opnum fundi sem Vátryggingafélag Íslands hélt á Selfossi í gærkvöld um forvarnir í hestamennsku.
Lesa meira...
 
Sýningin KONAN 2006 vel sótt og komin til að vera Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 23. Október 2006
Sýningin Konan 2006Alls komu hátt í 8.000 gestir á sýninguna KONAN 2006 sem fram fór í Laugardalshjöll um helgina og ríkti mikil ánægja meðal bæði gesta og þátttakenda með sýninguna þar sem yfir 100 fyrirtæki sýndu og/eða kynntu vörur eða þjónustu sérstaklega ætlaða konum.
Lesa meira...
 
Guðrún Adolfsdóttir hlýtur Fjöreggið 2006 Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 20. Október 2006
 Guðrún Adolfsdóttir handhafi verðlauna Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands með Fjöreggið 2006.Guðrún Adolfsdóttir matvælafræðingur hlaut í dag Fjöreggið, verðlaun Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands.  Það var Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra sem afhenti Guðrúnu Fjöreggið við upphaf ráðstefnu sem haldin var í tilefni matvæladags MNÍ.
Lesa meira...
 
ÖBÍ gefur út afmælisblað Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 20. Október 2006
ÖBÍ gefur út afmælisblaðÖBÍ-fréttir, málgagn Öryrkjabandalags Íslands kom út í vikunni, en tilefnið var 45 ára afmæli bandalagsins. Starfsfólk Athygli ehf. hafði umsjón með útgáfu blaðsins, sá um efnisöflun, sölu auglýsinga og umbrot.
Lesa meira...
 
KONAN 2006 sett í Laugardalshöll í kvöld Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 20. Október 2006
Konan 2006Sýningin KONAN 2006, sem fram fer í Laugardalshöll um helgina, verður sett formlega í kvöld kl. 18:00. Við það tækifæri verður Mörtu Guðmundsdóttur, sem undirbýr nú ferðalag yfir Grænlandsjökul til að vekja athygli á baráttunni gegn brjóstakrabbameini, afhent fyrsta eintakið af sérmerktum grip sem fengið hefur nafnið Magnaða-Marta og verður seldur á sýningunni til að fjármagna ferðalagið. Marta verður einnig með aðstöðu á sýningunni og spjallar við gesti um ferðalagið og reynslu sína af að greinast með brjóstakrabbamein og meðferðina sem hún gekkst undir.
Lesa meira...
 


Senda á Facebook