Fréttir 2006

Print

Aukin umsvif Samskipa í Mið-Ameríku

þann .

Samskip - Mið-AmeríkaVegna aukinna umsvifa Samskipa í Mið-Ameríku hefur verið samið við flutningafélagið Container Transport Solutions Inc. í Panama um að vera umboðsaðili félagsins í þessum heimshluta.
Print

Glæsileg ferðaáætlun Útivistar

þann .

Glæsileg ferðaáætlun ÚtivistarÍ dag kom út ferðaáætlun Útivistar fyrir árið 2007 en um er að ræða 36 síðna blað sem dreift var til áskrifenda Morgunblaðsins á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum. Athygli er útgefandi ritsins og annaðist jafnframt auglýsingaöflun og umbrot. Þetta er í fjórða sinn sem Athygli hefur þetta verkefni með höndum.
Print

Veglegt Akureyrarblað komið út

þann .

Veglegt AkureyrarblaðÍ dag var dreift til áskrifenda Morgunblaðsins og í öll hús á Akureyri blaðinu Akureyri -  eins og í útlöndum!, sem Athygli og Kaupmannafélag Akureyrar gefa út.
Print

Njörður P. Njarðvík fær Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna

þann .

Njörður P. NjarðvíkNjörður P. Njarðvík, rithöfundur og fyrrverandi prófessor, hlýtur Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna árið 2006 fyrir ómetanlegt starf til hjálpar munaðarlausum börnum í Afríku. Verðlaunaféð, fjórar milljónir króna, verður nýtt til frekari uppbyggingar á heimilum fyrir munaðarlaus börn á vegum hugsjónafélagsins SPES.

Print

AT tímarit komið út

þann .

AT tímaritAnnað tölublað AT tímarits 2006 er komið út en það er gefið út af Athygli ehf. í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og Félag íslenskra landslagsarkitekta. Blaðið er stútfullt af áhugaverðu efni um arkitektúr, skipulag og landmótun.
Print

Athygli gefur út jólablað Hafnarfjarðar

þann .

Jólablað HafnarfjarðarBlaðið Hafnarfjörður - Velkomin í Jólaþorpið kom út í vikunni. Eins og nafnið ber með sér er Jólaþorpið á Thorsplani og fjölbreytt dagskrá á aðventunni tilefni þessar útgáfu. Starfsfólk Athygli ehf. hafði umsjón með útgáfu blaðsins, sá um efnisöflun, sölu auglýsinga og umbrot.
Print

Heiðursverðlaunahafi Myndstefs 2006

þann .

Heiðursverðlaun Myndstefs afhentValgerður Bergsdóttir er handhafi heiðursverðlauna Myndstefs árið 2006 sem forseti Íslands afhenti við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands í dag. Viðurkenninguna hlýtur Valgerður fyrir hönnun og gerð steindra glugga í Reykholtskirkju og fyrir sýningarnar Teikn og hnit og AND-LIT í Gerðarsafni fyrr á þessu ári. Jafnframt er Valgerður heiðruð fyrir fjölþætt störf á vettvangi íslenskrar myndlistar sem kennari, stjórnandi og myndlistarmaður.
Print

HYDRO opnar skrifstofu í Reykjavík

þann .

Hydro opnar skrifstofu í ReykjavíkHydro hefur opnað skrifstofu á Íslandi með það að markmiði að leita uppi og þróa ný umhverfisvæn viðskiptatækifæri á sviði ál- og orkuframleiðslu. Norður-Atlantshafsskrifstofan er til húsa að Smiðshöfða 1 í Reykjavík og þjónar bæði Íslandi og Kanada.
Print

Viðræður um tvöföldun ganganna og þjóðvegarins á Kjalarnesi

þann .

Gísli Gíslason í ræðustóli, Jónas Aðalsteinsson fundarstjóri og Guðlaugur Hjörleifsson fundarritari.„Það verður verkefni stjórnar Spalar á komandi mánuðum að taka upp viðræður við samgönguyfirvöld um hvernig tryggja megi að Hvalfjarðargöng og aðliggjandi umferðarmannvirki afkasti þeirri umferð sem fyrirsjáanleg er á komandi árum,“ sagði Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, meðal annars í skýrslu stjórnar félagsins á aðalfundi þess á Akranesi í dag.