Samið um sölu á 150 þúsund OSRAM perum
Nýlega var gengið frá samningi milli Volta hf, umboðsaðila fyrir OSRAM á Íslandi og fyrirtækja innan Samorku, sem eru samtök orku- og veitufyrirtækja, um sölu á um 50 þúsund OSRAM ljósaperum árlega næstu þrjú árin. Samningurinn sem gildir til 31. des. 2010 var gerður í kjölfar útboðs sem efnt var til fyrr á þessu ári en alls bárust þá 8 tilboð frá 7 fyrirtækjum.


Samskip og Sjóvá hafa gert með sér samning um að Sjóvá annist allar vátryggingar Samskipa hér á landi. Jafnframt sameina félögin krafta sína á sviði forvarna með það að markmiði að fækka enn frekar slysum á þjóðvegum landsins og auka öryggi vegfarenda.
Stefnumót við safneign, - listir, leikur og lærdómur er heiti nýrrar sýningar í Listasafni Árnesinga sem hefst laugardaginn 24. nóvember nk. kl. 15. Á sýningunni eru valin verk úr eigu safnsins, að mestu leyti úr gjöf Bjarnveigar Bjarnadóttur og sona.
Hreinn Friðfinnsson myndlistarmaður er handhafi heiðursverðlauna Myndstefs árið 2007 sem forseti Íslands afhenti við athöfn í Listasafni Íslands í dag. Edda Jónsdóttir í Gallerí I8 veitti verðlaununum viðtöku í fjarveru Hreins.
Sex myndhöfundar keppa að þessu sinni um heiðursverðlaun Myndstefs, myndhöfundasjóðs Íslands, sem forseti Íslands úthlutar. Þetta er í þriðja sinn sem verðlaununum er úthlutað en þau eru veitt fyrir afburða framlag til myndlistar, framúrskarandi myndverk eða sýningu.
Verkfræðistofan VGK-Hönnun og Háskólinn í Reykjavík hafa gert með sér samkomulag til þriggja ára sem felur í sér fjárhagslegan stuðning að upphæð 22,5 milljónir króna til tækni- og verkfræðideildar HR.