Fréttir 2008

Print

Hvassafell í erfiðleikum í Rotterdam

þann .

samskip_291208_1000Við losun Hvassafells – leiguskips Samskipa – í Rotterdam í gær kom í ljós að talsverður sjór hafði komist í eina lest skipsins þar sem m.a. voru gámar sem innihalda efnið „Aluminium Dross“, sem við snertingu við vatn hvarfast og veldur þá hita og jafnvel íkveikju.

Print

Yfirlýsing frá KPMG

þann .

Í tilefni af fréttaskýringu í Morgunblaðinu laugardaginn 20. desember og Staksteinum blaðsins sunnudaginn 21. desember lýsir stjórn KPMG á Íslandi yfir furðu sinni á þessum skrifum blaðsins og spyr sig hvort Morgunblaðið sé í ófrægingarherferð á hendur félaginu. Stjórn KPMG sér sig því knúna til að senda frá sér yfirlýsingu þar sem órökstuddum ásökunum og dylgjum Morgunblaðsins er harðlega mótmælt. Við lýsum ábyrgð á hendur Morgunblaðinu, einum virtasta fjölmiðli landsins og furðum okkur á svo óvandaðri blaðamennsku.

Print

Styrktarsjóðurinn Faðmur fær jólastyrk Lyfjavers

þann .

Frá afhendingu jólastyrks Lyfjavers. Frá vinstri Birgir Henningsson stjórnarmaður í Faðmi, Katrín Júlíusdóttir formaður Faðms og Aðalsteinn Steinþórsson framkvæmdastjóri Lyfjavers.Katrín Júlíusdóttir alþingismaður og formaður styrktarsjóðsins Faðms tók í gær við jólastyrk Lyfjavers í húsakynnum apóteksins að Suðurlandsbraut 22. Faðmur, sem er styrktarsjóður á vegum samtakanna Heilaheilla, styrkir foreldra sem hafa fengið heilablóðfall og sem eru með börn 18 ára og yngri á framfæri sínu.

Print

15 milljónir ökutækja undir Hvalfjörð frá upphafi

þann .

Alls hafa um 15 milljónir ökutækja farið um Hvalfjarðargöng á tíu árum eða frá því þau voru opnuð sumarið 1998. Umferðin jókst jafnt og þétt ár frá ári en í efnahagsþrengingunum nú fækkar bílum á þjóðvegum landsins og þar með í göngunum.
Print

Nýir stjórnarmenn Spalar

þann .

Aðalfundur SpalarBreytingar urðu í stjórnum beggja Spalarfélaganna á aðalfundum þeirra nú og vel að merkja: tvö félög er til um Hvalfjarðargöng og heita bæði Spölur. Upprunalega félagið, stofnað á Akranesi í janúar 1991, varð að eignarhaldsfélagi í desember 1995 og hefur það hlutverk að eiga eina hlutabréfið í einkahlutafélaginu Speli sem þá var stofnað. Þetta var gert á sínum tíma til að auðvelda veðsetningu hlutafjár í Speli (eitt hlutafjárskírteini í stað margra).

Print

Samskip útskrifa starfsfólk úr íslenskunámi

þann .

Samskip útskrifa starfsfólk úr íslensku námiÁ fjórða tug starfsmanna af erlendum uppruna hjá Samskipum luku í vikunni námskeiði í íslensku sem félagið stendur fyrir og hefur notið styrks frá menntamálaráðuneytinu. Þetta er þriðja önnin sem markvisst íslenskunám fer fram í vinnutíma fyrir alla erlenda starfsmenn Samskipa.

Print

Samskip virkja auð kvenna

þann .

Samskip virkja auð kvenna

Hjá Samskipum, sem á dögunum hlutu Starfsmenntaverðlaunin 2008 í hópi fyrirtækja, er nýlokið 10 vikna leiðtoganámskeiði fyrir konur til að bæta hæfni í mannlegum samskiptum og efla sjálfstraust og tengslanet. 

Print

Athygli sér um Okkar mál

þann .

Athygli sá um útgáfu á Okkar málum, blaði Geðhjálpar, sem fylgdi DV sl. laugardag. Efni blaðsins sem er 24 síður var fjölbreytt að vanda. Aðalviðtalið að þessu sinni er við Garðar Sölva Helgason, sem hefur barist við geðklofa í áratugi, en náð býsna góðum árangri í baráttunni við sjúkdóm sinn.