Samskip með „geðveikasta jólalagið“ 2012
Frá ljósanna hásal, jólalag Samskipa, er „geðveikasta jólalagið 2012“ en Samskip söfnuðu mestu fé til styrktar Geðhjálp í jólalagakeppninni Geðveik jól 2012 eða einni milljón 126 þúsund og 600 krónum. Lag Samskipa var einnig valið sem það besta í keppninni af sérstakri átta manna dómnefnd. Heildarupphæðin sem safnaðist í átaki Geðhjálpar nemur alls um 4,9 milljónum króna.


Athygli gaf í dag út blaðið Akureyri, 56 síðna kynningarblað sem helgað er verslun, þjónustu og aðventuviðburðum á Akureyri. Í blaðinu er að finna viðtöl við verslunareigendur og forsvarsmenn þjónustufyrirtækja, yfirlit um dagskrárliði á aðventuævintýri á Akureyri og margt fleira.
Samskip hafa breytt nafninu á gámaflutningafyrirtækinu Samskip Multimodal Container Logistics BV í Samskip Multimodal BV. Engar breytingar verða á starfsemi félagsins eða merki Samskipa, enda fyrst og fremst verið að stytta enska heitið til þægindaauka fyrir viðskiptavini.
Athygli gaf í dag út blaðið Sóknarfæri sem er helgað jólagleði, hönnun og nýsköpun ííslensku atvinnulífi. Rætt er við á 5. tug þjónustuaðila og framleiðenda og sagt frá viðburðum á aðventu sem efla og næra jólaandann. Sóknarfæri er 40 síður að stærð og var því dreift um land allt með Morgunblaðinu í dag.