|
Fjárhagslegri endurskipulagningu S. Helgasonar ehf. lokið |
|
|
|
Miðvikudagur, 04. Ágúst 2010 |
|
Fjárhags- og rekstrarlegri endurskipulagningu S. Helgasonar ehf. er lokið, félags sem rekur stærstu og elstu steinsmiðju landsins og einnig verslun með afurðir sínar að Skemmuvegi 48 í Kópavogi. Jafnframt endurskipulagningunni hefur Eignarhaldsfélagið Björg slhf., sem er í eigu Sparisjóðabanka Íslands, eignast fyrirtækið að fullu og tekið við rekstri þess. Með þeim ráðstöfunum, sem gripið var til, er rekstur þess tryggður.
|
|
Lesa meira...
|
|
Lagfæringar á glerhjúp seinka ekki opnun Hörpu |
|
|
|
Miðvikudagur, 04. Ágúst 2010 |
|
Rannsóknir á álagsþoli sexstrendinganna, sem mynda glerhjúp suðurhliðar Tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu, hafa leitt í ljós að veggurinn stenst ekki mesta vindálag sem búast má við á næstu 50 árum. Að dómi aðalverktaka hússins, ÍAV, er nauðsynlegt að taka vegginn niður og endurbyggja. Að þeirra mati mun þessi framkvæmd ekki seinka opnun hússins í maí á næsta ári.
|
|
Lesa meira...
|
|
SPITAL hópurinn sigurvegari í samkeppni um hönnun nýs Landspítala við Hringbraut |
|
|
|
Föstudagur, 09. Júlí 2010 |
|
Hönnunarteymið SPITAL varð hlutskarpast í samkeppni um áfangaskipt heildarskipulag fyrir nýtt háskólasjúkrahús við Hringbraut og frumhönnun 1. áfanga nýja spítalans og tengdrar háskólastarfsemi. Niðurstaða dómnefndar var kynnt við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi í dag. Í SPITAL teyminu eru ASK arkitektar, Bjarni Snæbjörnsson arkitekt, Kanon arkitektar, Medplan, Teiknistofan Tröð, Landark, Efla verkfræðistofa, Lagnatækni og Norconsult.
|
|
Lesa meira...
|
|
Athygli gefur út "Akureyri" |
|
|
|
Fimmtudagur, 01. Júlí 2010 |
|
Í dag, fimmtudaginn 1. júlí, er dreift með Morgunblaðinu blaðinu Akureyri, sem eins og nafnið gefur til kynna hefur að geyma efni um höfuðstað Norðurlands. Athygli gefur blaðið út í samvinnu við Kaupmannafélag Akureyrar og Akureyrarstofu. Efni blaðsins var unnið að stærstum hluta af skrifstofu Athygli á Akureyri og fyrirtækið annaðist einnig umbrot og auglýsingaöflun.
Blaðið berst öllum áskrifendum Morgunblaðsins og er þar að auki dreift í öll hús á Akureyri.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ragnheiður I. Margeirsdóttir hannar Bleiku slaufuna 2010 |
|
|
|
Mánudagur, 28. Júní 2010 |
|
Nýverið efndu Krabbameinsfélag Íslands og Hönnunarmiðstöð Íslands til samkeppni um hönnun á bleiku slaufunni 2010, tákni Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Fjölmargir tóku þátt í keppninni og dómnefnd fór yfir á áttunda tug tillagna. Það var einróma niðurstaða dómnefndar að hönnun Ragnheiðar I. Margeirsdóttur bæri af og verður slaufan hennar því fjöldaframleidd og seld til styrktar Krabbameinsfélaginu í október.
|
|
Lesa meira...
|
|
Umhverfisráðherra opnar Snæfellsstofu á Skriðuklaustri |
|
|
|
Fimmtudagur, 24. Júní 2010 |
|
Í dagtók Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra formlega í notkun Snæfellsstofu á Skriðuklaustri, nýja gestastofu fyrir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Við þetta tækifæri var einnig opnuð í Snæfellsstofu umhverfisfræðslusýningin „Veraldarhjólið“ sem fjallar um hringrás náttúrunnar með áherslu á samspil gróðurs og dýralífs á svæðinu. Auk sýningarinnar hýsir Snæfellsstofa upplýsinga- og þjónustumiðstöð fyrir ferðafólk og minjagripaverslun auk þess sem þar verða skrifstofur og vinnuaðstaða fyrir starfsfólk þjóðgarðsins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Bílaleiga Akureyrar fjölgar Kia bílum í flotanum |
|
|
|
Miðvikudagur, 16. Júní 2010 |
|
Bílaleiga Akureyrar hefur samið við Bílaumboðið Öskju um kaup á liðlega 30 nýjum Kia bifreiðum sem afhentar verða á næstu vikum. Eins og fram hefur komið í sölutölum Bílgreinasambandsins hefur sala á nýjum bílum tekið að glæðast undanfarið og má meðal annars rekja það til þess að bílaleigurnar hafa verið að endurnýja flota sína fyrir sumarið. Forsvarsmenn Bílaleigu Akureyrar eru bjartsýnir á ferðasumarið 2010 og segja að eftirspurn eftir bílaleigubílum sé nú aftur að færast í eðlilegt horf eftir talsverðan samdrátt í bókunum í apríl og maí vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
|
|
Lesa meira...
|
|
Spor þúsunda kvenna |
|
|
|
Fimmtudagur, 10. Júní 2010 |
|
Fimmtudaginn 10. júní kl. 16:00 verður opnuð myndlistarsýningin „ Spor þúsunda kvenna“ í göngugötunni á Garðatorgi. Hluti verksins, sem skapað var í Kvennahlaupinu 2009, hefur verið bútaður niður í litlar myndir sem verða til sýnis og sölu frá 10.- 20. júní , en allur ágóði rennur óskiptur til Krabbameinsfélags Íslands. Hinn hluti verksins hefur verið keyptur af Garðabæ og mun forstjóri Krabbameinsfélagsins, Ragnheiður Haraldsdóttir, afhenda bænum verkið í dag.
Allir eru velkomnir á opnunina en veitingar verða í boði Vífilfells og Góu.
Fjölmennasti listgjörningur sem gerður hefur verið á Íslandi
Í Kvennahlaupinu 2009, sem haldið var í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands, tóku þúsundir kvenna þátt í sköpun á listaverki er þær hlupu yfir renning við startlínu hlaupsins og mótuðu þannig með sporum sínum glæsilegt listaverk sem skiptist í tvo 10x2 m striga sem endurspegla hvorn annan. Listgjörningurinn var framinn af sautján listakonum frá Garðabæ og Álftanesi sem í kjölfarið hafa stofnað samtökin Grósku.
|
|
Lesa meira...
|
|
Stefnt að stórauknum hlut innlendrar orku í samgöngum |
|
|
|
Fimmtudagur, 03. Júní 2010 |
|
Á ráðstefnu um visthæfar samgöngur sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík í dag afhjúpaði Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra nýtt merki áætlunar um orkuskipti í samgöngum. Áætlunin kallast „Græna orkan, Vistorka í samgöngum“ og er markmið hennar að byggja upp klasasamstarf þar sem ráðuneyti, stofnanir, sveitarfélög og fyrirtæki geta unnið saman að því sameiginlega markmiði að auka nýtingu á innlendu vistvænni orku.
|
|
Lesa meira...
|
|
Útivera komin út! |
|
|
|
Fimmtudagur, 27. Maí 2010 |
Nú er fyrsta tölublaðið af Útiveru, gefið út af Athygli ehf., runnið frá prentvélunum og er verið að bera það út til áskrifenda. Einnig fæst Útivera á sölustöðum N1 um land allt, í Hagkaupsverslunum og hjá Pennanum Eymundsson.
„Útivera var stofnuð árið 2003 af nokkrum áhugamönnum um útgáfu og fjallamennsku og við ætlum að halda okkur við þær línur sem þar voru lagðar. Í blaðinu verður fjallað um ferðalög innanlands og til fjarlægari landa, hvort sem er á tveimur jafnfljótum eða með farartækjum. Áhersla verður lögð á leiðarlýsingar með góðum ljósmyndum og birt verða viðtöl við fólk sem tengist ferðamennsku - allt þetta á erindi í Útiveru,“ segir Valþór Hlöðversson framkvæmdastjóri Athygli sem jafnframt verður ritstjóri blaðsins, a.m.k. framan af.
|
|
Lesa meira...
|
|
Úthlutun styrkja í tilefni Evrópuársins 2010 |
|
|
|
Miðvikudagur, 19. Maí 2010 |
Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur samþykkt tillögur matsnefndar um úthlutun styrkja til 21 verkefnis og rannsókna sem munu koma til framkvæmda á þessu ári. Samtals var þrjátíu milljónum króna úthlutað úr sjóði sem stofnaður var í tilefni af Evrópuárinu 2010 sem tileinkað er baráttunni gegn fátækt og félagslegri einangrun. Í matsnefndinni sátu fulltrúar frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu, dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu, heilbrigðisráðuneytinu, mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Sjóðurinn er fjármagnaður að jöfnu af stjórnvöldum og Evrópusambandinu, en alls bárust 85 umsóknir fyrir ríflega 208 milljónir króna.
Árið 2010 er tileinkað baráttunni gegn fátækt og félagslegri einangrun í Evrópu. Á Íslandi er lögð áhersla á að styrkja verkefni sem auka fjölbreytni við úrræði og námskeið til að bæta aðstæður tekjulágra hópa og fjölskyldna, atvinnulausra og fólks með skerta starfsgetu, verkefni sem vinna gegn fordómum sem einstaklingar upplifa vegna aðstæðna sinna og sem ýta undir félagslega virkni fólks sem hætt er við einangrun vegna langtímaatvinnuleysis eða bágra aðstæðna. Auk þess er lögð áhersla á að raddir þeirra sem búa við fátækt og félagslega einangrun heyrist í samfélaginu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Öryggismál sjómanna í forgang |
|
|
|
Þriðjudagur, 18. Maí 2010 |
VÍS og Slysavarnaskóli sjómanna hafa skrifað undir þriggja ára samstarfssamning sem felur í sér formlegt samstarf um bætta öryggismenningu um borð í fiskiskipum og um auknar forvarnir gegn slysum meðal sjómanna. Liður í samstarfinu er að VÍS mun afhenda Slysavarnaskóla sjómanna 10 flotgalla árlega næstu þrjú árin til að nota við kennslu í sjóbjörgun. Ennfremur verður tekið upp samstarf við útgerðir sem tryggja hjá VÍS með það að markmiði að sporna við slysum meðal sjómanna á fiskiskipum þeirra.
|
|
Lesa meira...
|
|
Magma eignast hlut Geysis Green Energy í HS Orku |
|
|
|
Mánudagur, 17. Maí 2010 |
|
Dótturfyrirtæki kanadíska jarðhitafyrirtækisins Magma Energy og Geysir Green Energy hafa náð samkomulagi um að Magma kaupi öll hlutabréf Geysis í HS Orku og verður Magma þar með aðaleigandi félagsins. Kaupverðið er um 16 milljarðar króna. Forsvarsmenn Magma ætla sér að efla starfsemi HS Orku til muna á næstu misserum og fá jafnframt til liðs við sig sterka kjölfestufjárfesta, t.d. íslenska lífeyrissjóði.
Samkomulagið felur í sér að Magma Energy Sweden AB, sem er að fullu í eigu Magma Energy Corp. sem skráð er í kauphöllinni í Toronto, eignist 52,3% hlut Geysis í HS Orku hf. og yfirtaki jafnframt nýlegar skuldbindingar Geysis um kaup á viðbótarhlutafé sem nemur 3% hlutafjár HS Orku. Magma verður þar með langstærsti hluthafi félagsins með 98,53% hlut en aðrir hluthafar í HS Orku eru sveitarfélögin Garður, Grindavík, Reykjanesbær og Vogar - með samanlagt 1,47% hlut en skv. samþykktum HS Orku eiga hluthafar félagsins forkaupsrétt að viðskiptum með hluti í félaginu, í réttu hlutfalli við eignarhlut sinn.
Heildarfjárfesting Magma á Íslandi 32 milljarðar króna Kaupverðið á hlut Geysis í HS Orku er um 16 milljarðar króna og verður það greitt með reiðufé og yfirtöku skuldabréfa. Hluti greiðslunnar getur þó verið í formi hlutabréfa í kanadíska móðurfélaginu. Eftir viðskiptin nemur heildarfjárfesting Magma í íslensku atvinnulífi samtals rúmum 32 milljörðum króna.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ráðherra fær rafbíl frá HEKLU |
|
|
|
Föstudagur, 14. Maí 2010 |
|
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra hefur fengið afhentan nýjan fjögurra manna i MiEV rafbíl frá Mitsubishi og mun ráðuneytið hafa afnot af bílnum næstu tvö árin. Orkuveita Reykjavíkur og Landsvirkjun fengu annan bíl til umráða og verða báðir bílarnir nýttir til ýmissa rannsóknarverkefna hjá fyrirtækjunum og á vegum Orkuseturs og Íslenskrar NýOrku. Hjörleifur B. Kvaran forstjóri OR afhenti jafnframt iðnaðarráðherra lykil að nýjum orkupósti sem settur hefur verið upp framan við ráðuneytið við Lindargötu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samkeppni um bleiku slaufuna 2010 |
|
|
|
Miðvikudagur, 12. Maí 2010 |
Krabbameinsfélag Íslands og Hönnunarmiðstöð Íslands efna til samkeppni um hönnun á bleiku slaufunni 2010, tákni Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini kvenna. Vinningshafi hlýtur verðlaun að verðmæti 500 þúsund krónur en það eru Arion banki, Leonard og Sölufélag garðyrkjumanna sem styðja við keppnina.
|
|
Lesa meira...
|
|
Fátækt rædd á jafnræðisgrundvelli |
|
|
|
Sunnudagur, 09. Maí 2010 |
|
Sunnudaginn 9. maí var haldinn fundur þar sem fólk úr ýmsum hópum samfélagsins ræddi um fátækt og félagslega einangrun og hvaða leiðir séu færar til að vinna gegn slíkri stöðu. Fundurinn, sem var með þjóðfundarsniði, var haldinn í tilefni af Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun og er skipulagður af stýrihópi á vegum félags- og tryggingamála-ráðuneytisins.
Yfir 30.000 Íslendingar undir lágtekjumörkum Meginmarkmið Evrópuársins 2010 er að vinna gegn fátækt og félagslegri einangrun. Öll ríki Evrópusambandsins taka þátt í árinu auk Íslands og Noregs. Fátækt er vandamál í allri Evrópu en alls lifa um 17% Evrópubúa undir lágtekjumörkum. Séu sömu viðmið notuð hér á landi er talið að um 10,2% þjóðarinnar, eða vel yfir 30.000 manns, séu undir lágtekjumörkum en um er að ræða niðurstöður úr samræmdri lífskjararannsókn Evrópusambandsins frá árinu 2008.
|
|
Lesa meira...
|
|
Stærsta markaðsátak til þessa |
|
|
|
Þriðjudagur, 04. Maí 2010 |
|
Skrifað var undir samning um eitt mesta markaðsátak sem ráðist hefur verið í til kynningar á Íslandi erlendis á Ferðamálaþingi 2010 í dag. Alls verður varið um 700 milljónum króna til átaksins. Ríkið leggur til 350 milljónir og Reykjavíkurborg, Icelandair, Iceland Express, Útflutningsráð og Samtök ferðaþjónustunnar leggja fram annað eins til átaksins. Í ávarpi Katrínar Júlíusdóttur ferða- og iðnaðarráðherra á Ferðamálaþingi í dag kom m.a. fram að um væri að ræða stærsta markaðsátak Íslands þar sem allir landsmenn yrðu fengnir til að leggja sitt lóð á vogarskálarnar. Valþór Hlöðversson, framkvæmdastjóri Athygli, hélt einnig erindi en þar fjallaði hann um vinnu starfsmanna Athygli með samráðshópi stjórnvalda og hagsmunaaðila í ferðaþjónustu í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli.
|
|
Lesa meira...
|
|
Hægt að tilkynna nafnlaust um vátryggingasvik á vis.is |
|
|
|
Mánudagur, 03. Maí 2010 |
Vátryggingafélag Íslands hf. hefur komið upp sérstakri tilkynningasíðu á vef félagsins þar sem hægt er að láta vita nafnlaust um meint vátryggingasvik en ný könnun Capacent Gallup sýnir að meira en helmingur landsmanna er tilbúinn að tilkynna um slík svik, ef hægt er að gera það nafnlaust.
|
|
Lesa meira...
|
|
Bein vefútsending frá gosinu í Eyjafjallajökli |
|
|
|
Föstudagur, 16. Apríl 2010 |
|
Mobotix vefmyndavélin sem Securitas setti upp í samstarfi við Mílu á toppi Valahnúks nær góðri mynd af gosinu í Eyjafjallajökli. Hægt er að fylgjast með gosinu í beinni útsendingu á heimasíðu Mílu en hundruðir þúsunda manna um allan heim hafa nýtt sér þá þjónustu.
„Securitas og Míla hófu samstarf nokkuð fyrir gosið í mars þegar skoðaður var sá möguleiki að setja upp myndavélar á ákveðnum stöðum víðsvegar um landið. Eyjafjallajökull var einn af þessum stöðum, sérstaklega vegna möguleikans á eldgosi. Því má segja að samstarfið hafi byrjað á hárréttum tíma,” segir Hörður Ágústsson, markaðssérfræðingur hjá Mílu. Myndavélinni á Valahnúk var upphaflega beint að gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi en hefur nú verið vísað að eldgosinu í Eyjafjallajökli. Þegar aðstæður leyfa stendur til að koma fyrir frekari myndavélum umhverfis það gos.
|
|
Lesa meira...
|
|
Flugur Breka og Ingvars sigruðu |
|
|
|
Föstudagur, 09. Apríl 2010 |
Ingvar Ingvarsson og Breki Sigurjónsson báru sigur úr bítum í silungafluguhnýtingakeppni sem Krabbameinsfélag Íslands efndi til í samvinnu við Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Veiðihornið og Veiðikortið. Keppt var í tveimur flokkum, almennum flokki og unglingaflokki, og voru glæsileg verðlaun í boði fyrir þær flugur sem hrepptu þrjú efstu sætin.
„Við erum ánægðir með hvernig til tókst því áhuginn reyndist vera gríðarlegur og fjölmargar „girnilegar“ flugur bárust í keppnina. Þess má geta að vinningsflugurnar úr keppninni verða nú settar í framleiðslu og seldar hér í Veiðihorninu til stuðnings Krabbameinsfélagi Íslands,“ segir Ólafur Vigfússon, veiðimaður og framkvæmdastjóri Veiðihornsins. Haraldur Eiríksson hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur tekur undir þetta og bætir við að sérstaklega hafi verið ánægjulegt að sjá góða þátttöku í unglingaflokki. „Þetta framtak Krabbameinsfélagsins er vel til fundið og rétt að beina því til stangaveiðimanna að gefa vinningsflugunum góðan gaum.“
|
|
Lesa meira...
|
|
Nýr framkvæmdastjóri bílaumboðsins ÖSKJU |
|
|
|
Miðvikudagur, 31. Mars 2010 |
Jón Trausti Ólafsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri ÖSKJU, umboðsaðila Mercedes-Benz og KIA á Íslandi, og tekur hann við starfinu af Leifi Erni Leifssyni.
„Ég hlakka til að taka við framkvæmdastjórastarfinu hjá ÖSKJU og tel mig þekkja vel til starfseminnar því ég tók þátt í stofnun fyrirtækisins á sínum tíma,“ segir Jón Trausti Ólafsson sem starfað hefur við sölu-, þjónustu-, og markaðsmál hjá bifreiðaumboðinu Heklu frá árinu 1998, þar af sem markaðsstjóri frá árinu 2002. ASKJA hóf starfsemi 1. mars 2005 og er sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz og KIA á Íslandi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Arion banki sigrar í liðakeppni Mottumars |
|
|
|
Fimmtudagur, 25. Mars 2010 |
Hart var barist í liðakeppni Mottu-mars en lokað var fyrir söfnun áheita kl. 14:00 í dag. Örar sviptingar hafa verið í toppsætunum en sigurlið Arion banka skaust upp fyrir lið Actavis ONE á bókstaflega síðustu mínútu og safnaði einni og hálfri milljón króna, en þriðja sætið hnepptu Innnes mottur.
Gríðarleg þátttaka hefur verið í vefleik Krabbameinsfélagsins en alls skráðu yfir 2.400 menn sig í einstaklingskeppnina og tæp 500 lið, og söfnuðu þessir aðilar 26.033.833 krónum til styrktar átakinu Karlmenn og krabbamein: Mottu-mars. „Það hefur verið gríðarlega mikil stemming meðal okkar manna hér í Arion banka, en yfir hundrað karlmenn hafa tekið þátt í átakinu og skartað glæsilegum mottum sl. vikur. Þá er ótalinn stuðningur þeirra sem kyns síns vegna hefur ekki getað látið sér vaxa grön. Þar sem Arion banki er bakhjarl átaksins fannst okkur mikilvægt að taka þetta alla leið og sigur var það eina sem kom til greina. Þetta sýnir að þegar allir leggjast á eitt er allt mögulegt,“ segir Einar Þór Einarsson sem valinn var „duglegasta mottan“ hjá Arion banka.
|
|
Lesa meira...
|
|
Athygli kaupir Útiveru |
|
|
|
Miðvikudagur, 24. Mars 2010 |
|
Athygli ehf. hefur fest kaup á ferðatímaritinu Útiveru en það var síðast gefið út af Fjölvaútgáfunni síðla árs 2008. Nú er ætlunin að blása nýju lífi í þetta vinsæla tímarit og verða fjögur tölublöð gefin út á þessu ári og þeim fjölgað á næsta ári ef vel gengur. Að sögn Valþórs Hlöðverssonar framkvæmdastjóra Athygli hefur fyrirtækið mikla trú á Útiveru enda um að ræða sérhæft tímarit um útivist og ferðalög sem margir bíði eftir.
|
|
Lesa meira...
|
|
Evrópuár gegn fátækt og félagslegri einangrun hefst |
|
|
|
Þriðjudagur, 23. Mars 2010 |
Evrópuárið 2010 – gegn fátækt og félagslegri einangrun – hefst formlega hérlendis með ráðstefnu á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins í Iðnó 25. mars 2010 þar sem fjallað verður um fátækt á Íslandi og í Evrópulöndum og kynnt úrræði sem hafa gefist vel til að bæta aðstæður fólks og rjúfa félagslega einangrun.
Berjumst gegn fátækt er yfirskrift Evrópuársins sem Ísland tekur fullan þátt í, ásamt Evrópusambandslöndunum 27 og Noregi, og hefur félags- og tryggingamálaráðuneytið umsjón með átakinu af Íslands hálfu. Stýrihópur hefur verið settur á laggirnar, skipaður fulltrúum sveitarfélaga, félagasamtaka, aðila vinnumarkaðarins og hjálparstofnana, og hefur hann til úthlutunar 35 milljóna króna sjóð sem fjármagnaður er til helminga af íslenskum stjórnvöldum og Evrópusambandinu en alls er varið 42 milljónum króna til átaksins hér á landi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Bílaleigan Hertz kaupir Skodabifreiðar af HEKLU |
|
|
|
Fimmtudagur, 18. Mars 2010 |
Undirritaður hefur verið samningur milli HEKLU og Bílaleigunnar Hertz um kaup á 50 nýjum Skoda Octavia og Skoda Yeti bifreiðum sem verða afhentar á vormánuðum en bílaleigan stefnir að því að vera búin að endurnýja allan bílaflota sinn haustið 2011. Von er á enn frekari samningum um tugi bíla til viðbótar.
|
|
Lesa meira...
|
|
Bílaleiga Akureyrar kaupir 200 nýja Volkswagen og Skoda |
|
|
|
Þriðjudagur, 16. Mars 2010 |
Bílaleiga Akureyrar -Höldur ehf. hefur samið við HEKLU um kaup á 200 nýjum Volkswagen og Skoda bifreiðum sem afhentir verða á vormánuðum.Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds segir fyrirtækið leggja áherslu á að bjóða nýja og örugga gæðabíla sem eru hagkvæmir í rekstri.
|
|
Lesa meira...
|
|
ALP bílaleigan kaupir 160 Volkswagen Golf og Polo |
|
|
|
Laugardagur, 13. Mars 2010 |
Gengið hefur verið frá samningi milli HEKLU og bílaleigunnar ALP, umboðsaðila AVIS og BUDGET á Íslandi, um kaup bílaleigunnar á 160 nýjum Volkswagen Golf og Volkswagen Polo. Hekla mun afhenda bílana á vormánuðum. Volkswagen bílarnir hafa reynst mjög áreiðanlegir og hafa unnið til fjölda viðurkenninga á undanförnum árum og áratugum. Þannig var Volkswagen Golf nýlega valin öruggasti bíllinn af óháðum samtökum um árekstraprófanir í Evrópu og þá hefur Volkswagen Polo meðal annars verið valinn bíll ársins 2010 af bílatímaritinu AutoBild.
|
|
Lesa meira...
|
|
Tangómaraþonið í Iðnó og Ráðhúsi Reykjavíkur helgina 19.-21. mars |
|
|
|
Föstudagur, 12. Mars 2010 |
- Tangómaraþonið í Iðnó og Ráðhúsi Reykjavíkur helgina 19.-21. mars
- Kennsla fer fram mán. 15. og miðv. 17. mars ásamt skráningu í maraþonið
- Allur ágóði til styrktar átakinu Karlmenn og krabbamein.
Tangófélagið efnir til veglegs tangómaraþons til styrktar átaki Krabbameinsfélags Íslands, Karlmenn og krabbamein: Mottu-mars.
|
|
Lesa meira...
|
|
Keppnislýsing afhent og dómnefnd skipuð í samkeppni um nýjan Landspítala |
|
|
|
Föstudagur, 12. Mars 2010 |
|
Heilbrigðisráðherra hefur skipað dómnefnd vegna samkeppni um nýjan Landspítala sem hófst formlega í dag þegar Ríkiskaup afhentu keppnisgögn hönnunarteymunum fimm sem urðu hlutskörpust í forvali um verkefnið. Keppnistillögurnar eiga að liggja fyrir 10. júní 2010 og niðurstaða dómnefndar verður kynnt 9. júlí 2010. Samkeppnin tekur annars vegar til áfangaskipts skipulags lóðar Landspítala við Hringbraut í heild og hins vegar til útfærslu á 66 þúsund fermetra nýbyggingu spítalans. Hluti af verkefninu verður einnig að skoða frumhönnun á 10.000 fermetra byggingu fyrir Háskóla Íslands.
|
|
Lesa meira...
|
|
Blásið til sóknar á alþjóðleg ráðstefnumið! |
|
|
|
Fimmtudagur, 11. Mars 2010 |
|
Aðstandendur Ráðstefnuskrifstofu Íslands og Portusar ehf. boðuðu í dag fulltrúa 300 stærstu fyrirtækja landsins og ýmissa fagaðila til samkomu í nýbyggingu nýja tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu við Reykjavíkurhöfn til að kynna þeim möguleika sem Harpa skapar til alþjóðlegs ráðstefnuhalds hérlendis. Með samkomunni er í raun blásið til stórsóknar í þágu ráðstefnuhússins á alþjóðlegum ráðstefnumarkaði.
|
|
Lesa meira...
|
|
HEKLA og Volkswagen gefa tvo nýja veltibíla |
|
|
|
Fimmtudagur, 04. Mars 2010 |
|
Forstjóri HEKLU afhenti í dag tvo nýja veltibíla sem Volkswagenverksmiðjurnar í Þýskalandi hafa gefið hingað til lands til að stuða að auknu umferðaröryggi. HEKLA, umboðsaðili Volkswagen hér á landi, annast alla þjónustu við veltibílana sem verða í eigu Forvarnahússins annars vegar og Brautarinnar – bindindisfélags ökumanna, Sjóvár og Umferðarstofu hins vegar.
|
|
Lesa meira...
|
|
„Mottu-mars“ – árvekniátak um karlmenn og krabbamein |
|
|
|
Mánudagur, 01. Mars 2010 |
Karlmenn hvattir til að safna yfirvararskeggi og áheitum í marsmánuði til styrktar baráttunni gegn krabbameini
- Landssala á barmmerkjum fer fram laugardaginn 6. mars 2010
- Verulega vantar upp á árvekni karla gagnvart krabbameini en hægt er að koma í veg fyrir þriðjung krabbameinstilfella með breyttu mataræði og lífsstíl
„Mottu-mars“ er yfirskrift mánaðarlangs átaks Krabbameinsfélags Íslands um karlmenn og krabbamein sem hófst formlega í dag þegar úrvalslið allra helstu sérsambanda landsins í boltaíþróttum skoruðu á hvert annað í mottukeppni – söfnun yfirvaraskeggs. Sala á barmmerkjum fer einnig fram laugardaginn 6. mars 2010 og verður öllum ágóða af söfnunarstarfi átaksins varið til rannsókna, fræðslu, ráðgjafar og stuðnings við krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra.
|
|
Lesa meira...
|
|
Leggja þarf meiri áherslu á heildarmyndina í skipulagsmálum |
|
|
|
Fimmtudagur, 25. Febrúar 2010 |
Mjög góð mæting var á fund um þróun og framtíð miðborgarinnar sem haldinn var í Hafnarhúsinu í morgun. Fundurinn var hluti af fundarröð um endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur sem hleypt var af stokkunum í haust og sökum góðrar mætingar hefur Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar nú ákveðið að halda fleiri fundi á næstunni um skipulagsmálefni.
|
|
Lesa meira...
|
|
Bólusetningarátak gegn svínainflúensu |
|
|
|
Þriðjudagur, 23. Febrúar 2010 |
|
Heilbrigðisyfirvöld hvetja landsmenn eindregið til þess að láta bólusetja sig gegn svínainflúensu A(H1N1) og verjast á þann hátt nýju áhlaupi veikinnar sem búast má við síðar á þessu ári eða því næsta. Bólusetning er besta vörnin gegn svínainflúensunni og það sem fyrst. Nóg er til af bóluefni í landinu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Fimm hönnunarteymum boðin þátttaka í samkeppni um nýjan Landspítala |
|
|
|
Mánudagur, 22. Febrúar 2010 |
Nú er ljóst að yfir 700 íslenskir sérfræðingar á byggingarsviði og flestar stærstu arkitekta- og verkfræðistofur landsins taka þátt í hönnunarsamkeppni nýs Landspítala við Hringbraut. Tilkynnt var um niðurstöður forvals samkeppninnar á kynningarfundi sem verkefnisstjórn nýs Landspítala efndi til í dag að viðstöddum heilbrigðisráðherra.
|
|
Lesa meira...
|
|
Vefsíðan thjodaratkvaedi.is opnuð |
|
|
|
Fimmtudagur, 18. Febrúar 2010 |
|
Vefsíðan thjodaratkvaedi.is hefur verið opnuð í tilefni af þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars um lög nr. 1/2010. Þar eru útskýrð á hlutlausan hátt meginatriði máls sem varða atkvæðagreiðsluna, ástæður hennar og mögulegar afleiðingar. Athygli ehf. sá um hönnun og tæknivinnu vegna vefjarins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Framför gefur bókasöfnum gjöf |
|
|
|
Mánudagur, 08. Febrúar 2010 |
|
Krabbameinsfélagið Framför hefur gefið öllum 40 almenningsbókasöfnum á landinu eintak af bókinni Bragð í baráttunni: Matur sem vinnur gegn krabbameini auk DVD disks sem félagið gaf nýlega út.
Það var söfnunarátak hárgreiðslustofunnar 101 Hárhönnun sem gerði félaginu kleift að veita þessa gjöf en starfsmenn stofunnar söfnuðu alls 330.000 krónur þann 6. nóvember sl. með því að láta allan ágóða af klippingum renna til Krabbameinsfélagsins Framfarar.
Gjöfin var afhent við athöfn í Borgarbókasafninu í Grófarhúsi, föstudaginn 5. febrúar 2010, og var gestum boðið upp á súpu sem elduð var samkvæmt uppskrift úr Bragði í baráttunni að athöfn lokinni.
|
|
Lesa meira...
|
|
Endurbætt heimasíða Austurhafnar |
|
|
|
Mánudagur, 08. Febrúar 2010 |
|
Endurbætt heimasíða Austurhafnar –TR, framkvæmdafélags ríkis og borgar um byggingu tónlistar- og ráðstefnuhússins við Austurhöfn, hefur litið dagsins ljós en heimasíðan var upphaflega sett upp árið 2004.
Nú hefur útlit síðunnar verið endurhannað og hún sett upp í nýju vefumsjónarkerfi, Joomla 1.5, jafnframt því sem efni hennar hefur verið uppfært og aukið. Þar má nú finna ýmsan fróðleik um aðdraganda og framgang verkefnisins, bæði í máli og myndum en Athygli ehf. hafði umsjón með útlitshönnun, uppsetningu og textagerð. Vefslóðin er: www.austurhofn.is.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ríflegur helmingur þjóðarinnar orðinn ónæmur fyrir (svína)inflúensunni A(H1N1) |
|
|
|
Sunnudagur, 07. Febrúar 2010 |
|
Meira en helmingur þjóðarinnar er nú ónæmur fyrir svínainflúensunni A(H1N1). Búið er að bólusetja um 130.000 manns og ætla má að á bilinu 50-60.000 manns hafi fengið veikina í faraldrinum sem gekk yfir landið á síðari hluta árs 2009.
|
|
Lesa meira...
|
|
Þörungavinnsla til fyrirmyndar |
|
|
|
Föstudagur, 05. Febrúar 2010 |
|
Bílson bílaverkstæði, Strætó bs. og Þörungavinnslan á Reykhólum eru handahafar forvarnaverðlauna VÍS árið 2010 sem afhent voru i fyrsta sinn í gær á sameiginlegri ráðstefnu félagsins og Vinnueftirlitsins um forvarnarmál. Þörungavinnslan hlaut jafnframt nafnbótina fyrirmyndarfyrirtæki VÍS í öryggis- og forvarnarmálum og fékk afhentan veglegan farandgrip til varðveislu næsta árið.
Forvarnarverðlaun VÍS eru nú veitt í fyrsta skipti en þeim er ætlað að undirstrika mikilvægi þess að vinna skipulega að öryggis- og forvarnarmálum. Forvarnarverðlaunin verða veitt árlega, þeim viðskiptavinum VÍS sem þykja hafa skarað fram úr í öryggis- og forvarnarmálum, eins og fram kom í setningarávarpi Guðmundar Arnar Gunnarssonar, forstjóra VÍS, á ráðstefnunni í gær. Hann sagði verðlaunin þátt í breyttri forvarnarstefnu félagsins þar sem forvarnir væru orðnar mun sýnilegri hluti af starfseminni og í stað nokkurra forvarnafulltrúa áður væri allt starfsfólk VÍS nú forvarnafulltrúar.
|
|
Lesa meira...
|
|
Bættar forvarnir í atvinnurekstri geta sparað milljarða |
|
|
|
Þriðjudagur, 02. Febrúar 2010 |
|
Árlega þurfa um 9000 manns að leita aðstoðar vegna vinnuslysa hér á landi og rannsóknir sýna að enn fleiri verða fyrir heilsutjóni vegna atvinnusjúkdóma. Á árunum 2006 til 2008 létust að jafnaði 5 manns árlega í vinnuslysum hér á landi. Rannsóknir á Vesturlöndum benda til þess að 3-4% af landsframleiðslu glatist vegna heilsutjóns á vinnustöðum en það samsvarar 45-60 milljörðum króna á Íslandi.
Vinnueftirlitið og VÍS hafa tekið upp samstarf sem miðar að því að efla forvarnir en talið er að með tiltölulega einföldum og ódýrum fyrirbyggjandi aðgerðum megi fækka verulega óhöppum og slysum í atvinnurekstri og draga þannig verulega úr þeim útgjöldum sem af þeim hljótast. Samstarf Vinnueftirlits og VÍS verður innsiglað með sameiginlegri ráðstefnu um forvarnarmál sem haldin verður þann 4. febrúar næst komandi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Vísdómsperlur um land allt |
|
|
|
Föstudagur, 22. Janúar 2010 |
|
Í Evrópu deyja 25.000 konur á ári hverju úr leghálskrabbameini þrátt fyrir að auðvelt sé að koma í veg fyrir slík krabbamein með reglubundinni skoðun eða bólusetningu. Árleg árveknisvika, Evrópuvika gegn leghálskrabbameini, verður haldin 24.-30. janúar og af því tilefni verða seldar Vísdómsperlur í verslunum Lyfju, Apóteksins, Lyf og heilsu og Apótekarans um land allt. Ágóðinn rennur til styrktar leghálskrabbameinsleit Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins .
Átakinu er ætlað að auka árvekni fyrir leghálskrabbameini, hversu auðvelt sé að koma í veg fyrir það með reglubundnum skoðunum og til að hvetja konur til að mæta í slíkar skoðanir. Þá er Evrópuvikunni einnig ætlað að þrýsta á stjórnvöld í löndum þar sem ekki er boðað til reglulegrar skoðunar.
|
|
Lesa meira...
|
|
Stöðvum fátækt! |
|
|
|
Föstudagur, 22. Janúar 2010 |
|
Evrópuráðið o g Evrópusambandið hófu í gær Evrópuár gegn fátækt og félagslegri einangrun undir yfirskriftinni „Stöðvum fátækt!“. Evrópuárinu er ætlað að vekja athygli og leggja áherslu á baráttuna gegn fátækt og félagslegri einangrun um alla álfuna og er Ísland meðal þátttakenda. José Manuel Durao Barroso, forseti Evrópuráðsins, og José Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, hófu átakið formlega við hátíðlega athöfn í Madrid í dag.
„Baráttan gegn fátækt og félagslegri einangrun er mikilvægur hluti af því að komast upp úr efnahagskreppunni en það eru alltof oft hinir varnarlausu í samfélaginu sem verða verst fyrir barðinu á slíku ástandi. Með Evrópuárinu 2010 viljum við hvetja fólk til vitundar um þessi málefni og plægja akurinn fyrir sameinaðra samfélag, sem er hluti af framtíðaráætlun Evrópusambandsins 2020 sem ég hef lagt til,“ sagði Barroso, forseti Evrópuráðsins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Fyrnum fyrningarleiðina! |
|
|
|
Miðvikudagur, 20. Janúar 2010 |
|
Eyjamenn sigla flotanum til hafnar á baráttufund gegn fyrningarleið í sjávarútvegi, útflutningsálagi og afnámi sjómannaafsláttar
Fyrnum fyrningarleiðina! er yfirskrift baráttufundar sem boðað er til í Vestmannaeyjum annað kvöld, 21. janúar, gegn fyrningarleið í sjávarútvegi, útflutningsálagi á ísfiski, afnámi sjómannaafsláttar og aðför að landsbyggðinni. Stór hluti flota Eyjamanna siglir í land á morgun til að sjómennirnir geti tekið þátt í fundinum og sýnt stjórnvöldum hug sinn í verki.
|
|
Lesa meira...
|
|
Markviss kynning vestan hafs |
|
|
|
Þriðjudagur, 19. Janúar 2010 |
Stórar kynningarherferðir á íslenskum ferðaiðnaði, kynning á íslenskum sjávarafurðum, kynning á endurnýjanlegri orku og tækni, íslenskir úrvalskokkar sem elda fyrir almenning, tónleikar, kvikmynda- og listahátíðir eru meðal þeirra fjölmörgu viðburða sem Iceland Naturally hefur skipulagt vestanhafs fyrir árið 2010. „Í ár verðum við öflugri en nokkru sinni fyrr en jákvæð kynning á Íslandi er eitt af lykilatriðum endurreisnar íslensks efnahagslífs,” segir Pétur Þ. Óskarsson, formaður stjórnar Iceland Naturally verkefnisins, en verkefnaskrá þess fyrir árið 2010 var kynnt í dag.
„Iceland Naturally er ekki einungis vel heppnað markaðsverkefni á íslenskri vöru, þjónustu og menningu í Norður-Ameríku heldur er það einnig gott dæmi um hve miklu er hægt að áorka þegar ríki og einkafyrirtæki stilla saman strengi sína,” segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og bætir við að verkefnið hafi skilað gríðarlegum árangri í þann rúma áratug sem það hefur staðið.
|
|
Lesa meira...
|
|
Gott aðgengi að útivistarsvæðum eru lífsgæði |
|
|
|
Fimmtudagur, 14. Janúar 2010 |
Um 92% borgarbúa hafa aðgang að útivistasvæði innan 300 metra frá heimili sínu og opin svæði eru 28% af heildarstærð þéttbýlissvæðis borgarinnar, samanborið til dæmis við 14% í Kaupmannahöfn. Þetta er meðal þess sem fram kom á opnum fundi um skipulag útivistasvæða í Reykjavík í Hafnarhúsinu í morgun14. janúar og var hann hluti af fundarröð með fagfólki, hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum um endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur.
|
|
Lesa meira...
|
|
Nýr sparisjóðsstjóri Byrs |
|
|
|
Miðvikudagur, 13. Janúar 2010 |
|
Stjórn Byrs hefur ákveðið að framlengja ráðningu Jóns Finnbogasonar sem sparisjóðsstjóra Byrs. Jón hóf störf sem forstöðumaður lögfræðisviðs Byrs í ársbyrjun 2009. Ragnar Z. Guðjónsson hefur sagt upp störfum hjá Byr. Stjórn gerði ekki sérstakan starfslokasamning við Ragnar Z. Guðjónsson.
|
|
Lesa meira...
|
|
Höfuðstöðvar í nýtt húsnæði |
|
|
|
Mánudagur, 04. Janúar 2010 |
|
Athygli flutti höfuðstöðvar sínar í nýtt og glæsilegt húsnæði að Suðurlandsbraut 30 nú skömmu fyrir jól. Starfsmenn hafa notað hátíðarnar til að koma sér vel fyrir á nýja staðnum og er því stússi að mestu leyti lokið og ekkert að vanbúnaði að taka á móti viðskiptavinum.
|
|
Lesa meira...
|
|
|