Lokaráðstefna Evrópuárs í Ráðhúsinu
Senn lýkur Evrópuári 2010 – gegn fátækt og félagslegri einangrun og af því tilefni var haldin vegleg lokaráðstefna í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Þar voru kynnt helstu verkefni og rannsóknir er hlutu styrki í tilefni Evrópuársins. Einnig voru kynntar helstu niðurstöður fundar með þjóðfundarsniði sem haldinn var í maí og fjallaði um fátækt og félagslega einangrun. Í ávarpi sínu á ráðstefnunni lagði félags- og tryggingamálaráðherra áherslu á að þrátt fyrir að Evrópuárinu væri nú að ljúka héldi baráttan gegn fátækt og félagslegri einangrun áfram.


rfisstefnu og sjálfbæran rekstur. Katrín Júlíusdóttir, ráðherra ferðamála, afhendi verðlaunin við athöfn á Grand Hótel Reykjavík. Við sama tækifæri var einnig kynnt nýtt gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar sem hlotið hefur nafnið VAKI.
„Heildarniðurstaða rannsóknarinnar er að starfsendurhæfingin leiðir til þess að staða mikils meirihluta þátttakenda batnar, erfiðleikar minnka, færni og aðlögun styrkist, virkni eykst og þá helst í vinnu og námi,“ segir Halldór Sigurður Guðmundsson, lektor við félagsráðgjafardeild HÍ, sem kynnti nýverið niðurstöður umfangsmikillar rannsóknar á áhrifum starfsendurhæfingar á fátækt, félagslega einangrun og virkni þátttakenda á Akureyri.
„Sá enga aðra leið en að svipta sig lífi“ er yfirskrift vinningsgreinar Trausta Hafsteinssonar blaðamanns á DV og birtist hún í blaðinu þann 4. desember 2009. Það var mat íslensku dómnefndarinnar að greinin væri vel ígrunduð og kannaði vandamál skuldara af mikilli dýpt. Fanga væri víða leitað og góð mynd gefin af vandasamri stöðu skuldara. Greinin þótti vel skrifuð auk þess að grípa vel athygli lesandans og endurspegla lausn á vandamálinu.
Nýtt fyrirtæki í mjólkuriðnaði er nú að hasla sér völl á markaðinum og eru fyrstu afurðir þess, ostarnir Öðlingur og Ljúflingur, að koma í verslanir þessa dagana. Þetta er fyrirtækið KÚ ehf. sem er í eigu fjölskyldunnar að Eyjum 2 í Kjós, sem áður stofnaði og rak Mjólku og Vogabæ. Undirbúningur að stofnun hins nýja fyrirtækis hefur staðið yfir í nokkurn tíma en fjölskyldan seldi hlut sinn í Mjólku og Vogabæ og dró sig alfarið út úr rekstri þessara fyrirtækja í upphafi árs.
Í tilefni Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun hefur stýrihópur Evrópuársins í samstarfi við Rauða Kross deild Ísafjarðar og Vesturport ákveðið að sýna myndina Börn eftir Ragnar Bragason í Alþýðuhúsinu á Ísafirði þann 11. desember. Myndin hefur hlotið afburðadóma en Nína Dögg Filippusdóttir, sem fer með eitt aðalhlutverka í myndinni, er einn af sendiherrum Evrópuársins 2010 á Íslandi.
Heyrnarhjálp og hópur erlendra kvenna sem stendur að veitingahúsinu Veröldin okkar – Mömmueldhús á Akranesi sameinuðust í áhugaverðu verkefni á dögunum þar sem fólk frá ólíkum menningarheimum fékk tækifæri til að hittast og deila reynslu, skemmtun og fræðslu sín á milli. Verkefnið kallaðist Við byggjum brýr og var hluti af Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun.
Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður Íþróttasambands fatlaðra, fær Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna árið 2010 fyrir öflugt starf í þágu ungmenna. Verðlaunaféð, tvær milljónir króna, verður nýtt til að efla enn frekar starfsemi ÍF. Samtals nema styrkirnir sem afhentir voru úr Velferðarsjóði barna í dag um sjö milljónum króna.
Laugardaginn 4. desember opnaði ljósmyndasýning í húsnæði Samhjálpar, en það eru listnemar úr LHÍ sem setja upp sýninguna í samstarfi við fólk sem upplifir fátækt eða félagslega einangrun. Verkefnið er samstarfsverkefni Listaháskóla Íslands og Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun en auk þeirra komu Hlutverkasetur, Hjálparstofnun kirkjunnar og Kvennasmiðjan að framkvæmd verkefnisins. Sýningin stendur fram yfir áramát og eru allir velkomnir.
Þann 1. desember var ný brú yfir Hvítá við Bræðratungu opnuð fyrir almennri umferð, en brúin styttir vegkaflann á milli Flúða og Reykholts um 26 km og verður hann nú rétt rúmir 20 kílómetrar. Stytting vegkaflans skiptir miklu máli fyrir íbúa svæðisins og alla sem eiga þar leið um. Grænmetisbændur sitt hvorum megin við ána ákváðu að gefa grunnskólum hvors annars ferskt grænmeti í desembermánuði til að halda upp á samgöngubótina.