|
Bílaleiga Akureyrar fjölgar Kia bílum í flotanum |
|
|
|
Miðvikudagur, 16. Júní 2010 |
|
Bergþór Karlsson framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar og Jón Trausti Ólafsson (th)framkvæmdastjóri Öskju innsigla samning um að fjölga stórlega Kia bílum í flota Bílaleigu Akureyrar. Með þeim á myndinni er Kjartan Baldursson, sölustjóri Kia hjá bílaumboðinu Öskju.
Bílaleiga Akureyrar hefur samið við Bílaumboðið Öskju um kaup á liðlega 30 nýjum Kia bifreiðum sem afhentar verða á næstu vikum. Eins og fram hefur komið í sölutölum Bílgreinasambandsins hefur sala á nýjum bílum tekið að glæðast undanfarið og má meðal annars rekja það til þess að bílaleigurnar hafa verið að endurnýja flota sína fyrir sumarið. Forsvarsmenn Bílaleigu Akureyrar eru bjartsýnir á ferðasumarið 2010 og segja að eftirspurn eftir bílaleigubílum sé nú aftur að færast í eðlilegt horf eftir talsverðan samdrátt í bókunum í apríl og maí vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
„Bílaleiga Akureyrar hefur mjög góða reynslu af bílum frá Kia en við höfum boðið upp á þá undanfarin ár. Við förum alltaf varlega í sakirnar þegar nýjar tegundir eru annars vegar en eftir þá góðu reynslu sem við höfum af Kia bílum erum við nú tilbúnir til að stórfjölga þeim í flotanum okkar,“ segir Bergþór Karlsson framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar í Reykjavík.
„Við hjá Öskju erum ánægðir með að Bílaleiga Akureyrar heldur áfram að fjölga Kia bílum í flota sínum en Kia er sá framleiðandi sem er í hvað mestum vexti í bílaheiminum í dag,“ segir Jón Trausti Ólafsson framkvæmdastjóri Öskju. Flestir bílanna sem Bílaleiga Akureyrar kaupir að þessu sinni eru Kia cee‘d fólksbílar en einnig Kia jeppar og sendibílar. Jón Trausti segir að vinsældir Kia bílanna á Íslandi megi meðal annars rekja til þess að þeir hafi reynst mjög vel en auk þess bjóði Askja nú alla Kia bíla með 7 ára ábyrgð. Hann segir Kia cee´d með sparneytnari og umhverfismildari bílum á markaðinum í dag og að þeir hafi fengið fimm stjörnur fyrir öryggi og þá spilli gott verð ekki fyrir.
|