|
Þótt Athygli starfi fyrst og fremst á innanlandsmarkaði höfum við byggt upp góð tengsl við erlenda samstarfsaðila - einkum í Evrópu. Í gegnum þetta samstarf vinna sérfræðingar Athygli fyrir erlend fyrirtæki hér heima en sinna einnig ráðgjöf fyrir íslensk fyrirtæki í þeim löndum sem eftir er óskað.
 Aðalsamstarfsaðili okkar á meginlandi Evrópu er MEDIA CONSULTA (MC) sem er leiðandi markaðs- og almannatengslafyrirtæki í álfunni. Media Consulta er með aðalskrifstofur í Berlín en á að auki í náinni samvinnu við MC fyrirtæki í 49 löndum um allan heim - þar á meðal Athygli á Íslandi.
Þegar kemur að norrænu frændþjóðunum hefur Athygli átt gott samstarf við norræna almannatengslafyrirtækið Geelmuyden Kiese. GK er með höfuðstöðvar í Osló en er einnig með skrifstofur í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn.
|