Forsíða Samstarfsaðilar
Samstarfsaðilar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Starfsmenn Athygli eru fjölhæfir og með margháttaða menntun og reynslu. Þrátt fyrir það  taka þeir ekki að sér verkefni sem aðrir geta unnið betur. Þess vegna eru aðrir sérfræðingar oft kallaðir til: ljósmyndarar, auglýsingasalar, prófarkalesarar, þýðendur, lausapennar,  kvikmyndagerðarfólk, auglýsingastofur, markaðsfræðingar og  prentsmiðir. Og er þá fátt upp talið.

Þegar við veljum undirverktaka til að vinna með okkur að einstökum þáttum berum við samt alla ábyrgð á verkefnum gagnvart okkar viðskiptavinum.