Samfélagsverkefni
Athygli hefur á liðnum árum styrkt ýmis samtök með vinnu fyrir þau á afsláttarkjörum. Þannig hefur starfsfólk Athygli lagt sitt af mörkum til samfélagsmála.
Þjóðþrifasamtök á borð við Barnaheill - Save the Children á Íslandi og Krabbameinsfélag Íslands hafa notið ráðgjafar Athygli um almannatengsl og útgáfuþjónustu samkvæmt slíkum samningum. Þá hafa ráðgjafar Athygli unnið að ýmsum kynningarverkefnum fyrir Háskóla Íslands í tilefni af 100 ára afmæli skólans.

