Articles

Print

Netmiðlar

Markaðssetning og dreifing upplýsinga á Netinu hefur stóraukist á undanförnum árum og eðli hennar hefur jafnframt breyst nokkuð á sama tíma. Hefðbundin leið til að kynna vöru gegnum Netið hefur verið að auglýsa á vinsælum síðum eða senda markpóst, en að undanförnu hafa svokölluð tengslanet rutt sér til rúms og gjörbreytt stafrænni markaðssetningu.

Vefsíður á borð við Facebook og Myspace, þar sem hægt er að ná til afmarkaðs hóps með einföldum og ódýrum hætti, höfða vel til fyrirtækja jafnt sem einstaklinga. Vegna félagslegs eðlis tengslaneta verður þó að sýna aðgát hvernig efni er sett fram og gæta þess að misnota ekki aðgengi upplýsingaflæðis.

Athygli fylgist náið með breytingum á þessu sviði og aðstoðar viðskiptavini sína við að koma skilaboðum sínum áleiðis á Netinu.