| Athygli ehf. |
|
|
|
Almannatengslafyrirtækið Athygli ehf. var stofnað 15. mars 1989. Lengst af voru starfsmenn fjórir til fimm talsins en á síðustu árum hefur fyrirtækið þróast í alhliða ráðgjafar- og útgáfufyrirtæki sem þjónustar einkum fyrirtæki, félagasamtök, sveitarfélög og ríkisstofnanir. Auk þess að þjónusta viðskiptavini sína er Athygli með umsvifamikla útgáfu, ýmist á eigin vegum eða í samstarfi við aðra. Athygli ehf. á 50% hlut í Athygli ráðstefnum á móti þeim Birnu B. Berndsen og Þórunni Dögg Árnadóttur sem þar starfa. Athygli er með höfuðstöðvar að Suðurlandsbraut 30 í Reykjavík en rekur einnig starfsstöð að Hafnarstræti 82 á Akureyri. Kennitala Athygli er: 600389-1229. Framkvæmdastjóri Athygli er Valþór Hlöðversson. |