Athygli ehf.
Almannatengslafyrirtækið Athygli ehf. var stofnað 15. mars 1989. Á síðustu árum hefur fyrirtækið þróast í alhliða ráðgjafar- og útgáfufyrirtæki sem þjónustar einkum fyrirtæki, félagasamtök, sveitarfélög og ríkisstofnanir.
Ráðgjafar Athygli eru sérfræðingar á sviði almannatengsla sem hafa nýtt menntun sína og reynslu til að bæta og byggja upp ímynd fjölda viðskiptavina Athygli á liðnum árum. Auk þess að þjónusta viðskiptavini sína er Athygli með umsvifamikla útgáfu, ýmist á eigin vegum eða í samstarfi við aðra.
Athygli er með höfuðstöðvar að Suðurlandsbraut 30 í Reykjavík en rekur einnig starfsstöð að Hafnarstræti 82 á Akureyri.
Kennitala Athygli er: 600389-1229.
Framkvæmdastjóri Athygli er Sigurður Sverrisson.
Formaður stjórnar er Valþór Hlöðversson.

