|
Á hverju ári gefur Athygli út tugi prentgripa fyrir hönd sinna viðskiptavina. Um getur verið að ræða hefðbundin fréttabréf, bæklinga, skýrslur og markpóst sem fyrirtækin senda frá sér.
Athygli gefur út fjölda innskotsblaða með Morgunblaðinu á hverju ári, oftast í samvinnu við fyrirtæki, skóla eða félög. Athygli fjármagnar útgáfuna að mestu leyti með söfnun auglýsinga í samstarfi við sérfróða aðila s.s. Augljósa miðlun ehf. og fleiri.
Þegar Athygli aðstoðar við útgáfu er meginreglan sú að við tökum allt ferlið að okkur: Ritun texta, hönnun og umbrot, prófarkalestur, ljósmyndun, prentun og dreifingu. Þannig felur verkkaupi okkur heildarumsjón með verkinu og öll samskipti við undirverktaka.
Yfirumsjón með útgáfu á vegum Athygli hefur:
Valþór Hlöðversson framkvæmdastjóri Sími 515 5200 GSM 894 7252 Netfang
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|