Forsíða Þjónustan Kynningaherferðir
Kynningarherferðir Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Kynningarherferð hentar fyrirtækjum, félagasamtökum og stofnunum þegar nýrri vöru eða þjónustu er hleypt af stokkunum eða þegar þarf að kynna umsvifamiklar breytingar eða framkvæmdir. Hér þarf meira til en staka útgáfu kynningarrita eða auglýsingar. Kynningarherferð felur í sér samræmingu þeirra verkfæra sem notuð eru við almannatengsl yfir ákveðið tímabil, svo sem ýmiss konar útgáfu, auglýsingar í blöðum, útvarpi og sjónvarpi, blaðamanna- og kynningarfundi og fleira mætti nefna.

Athygli hefur annast skipulagningu og framkvæmd margra kynningarherferða á þeim áratug sem fyrirtækið hefur starfað. Kynningarherferðir fyrir fyrirtæki, félagasamtök og stofnanir eru byggðar upp frá minnsta smáatriði til heildaryfirsýnar með verkefninu. Sértækum aðferðum er beitt til að koma sjónarmiðum á framfæri við almenning í gegnum fjölmiðla. Við sjáum um markmiðasetningu, gerum kostnaðar- og framkvæmdayfirlit. Í stuttu máli: Við tryggjum árangur.