|
Fréttabréf og kynningarrit |
|
|
Þrátt fyrir tilkomu öflugs upplýsingamiðils eins og Netsins hefur útgáfa bæklinga, kynningarrita og fréttabréfa síst glatað gildi sínu. Rit sem þessi sitja enn í öndvegi og mynda grundvöll að markvissri ímyndarsköpun, séu þau unnin á faglegan hátt. Því er mikilvægt að til þeirra sé vandað, ekki aðeins hvað varðar útlit heldur ekki síður efnistök, framsetningu og málfar.
Athygli hefur oftast heildarumsjón með útgáfu slíkra prentgripa, vinnur hugmyndir og texta og útvegar sérhæfða aðila til að annast ljósmyndun, prófarkalestur, hönnun, umbrot, prentun og dreifingu þeirra.
|