Blaðamannafundir
Frá því blaðamannafundur er boðaður þar til efni hans kemst til skila, hvort sem er til samfélagsins í heild eða afmarkaðs hóps, er lengra og viðkvæmara ferli en margan grunar. Mikilvægt er að aðstandendur fundarins stilli sína strengi við aðra sem að fundinum koma.
Ekki er sama hvernig upplýsingar eru látnar af hendi til fjölmiðla og því þarfnast þessi þáttur almannatengsla sérstakrar ígrundunar. Þótt fundurinn sjálfur sé afstaðinn er oft og tíðum heilmikil vinna eftir við að tryggja að boðskapurinn skili sér til þeirra sem hann er ætlaður. Einnig þarf að huga vel að framsetningu efnis fundarins til að vekja áhuga fjölmiðla á því.
Athygli getur haft umsjón með öllu ferlinu sem tengist blaðamannafundum; frá því að pantað er húsnæði, háborði er stillt upp á staðnum þar til fréttatilkynningu er fylgt eftir til fjölmiðla.