Forsíða Þjónustan Áfallastjórnun
Áfallastjórnun Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Ráðgjafar Athygli eru oft kallaðir til þegar áföll í rekstri fyrirtækja dynja yfir. Slíkar uppákomur geta verið af margvíslegum toga og gera oftast ekki boð á undan sér. Þá skiptir máli að bregðast hratt og vel við vilji menn eiga möguleika á að hafa áhrif á þá umræðu sem kemur í kjölfarið.

Því miður vill það oft vera svo að forsvarsmenn fyrirtækja eru seinir að bregðast við vondum fréttum og vona í lengstu lög að umræðan fjari út á sem skemmstum tíma. Slík viðbrögð eru vanhugsuð. Besti kosturinn er að leita til ráðgjafa á borð við Athygli, fara yfir málið, vega og meta aðstæður og taka svo um það meðvitaða ákvörðun hvort og með hvaða hætti skuli brugðist við.

Kjarninn er þessi: Ekki reyna að fela það sem áfallinu veldur eða hagræða sannleikanum heldur vinna málið opið og heiðarlega með fjölmiðlafólki og öðrum þeim sem móta umræðuna í samfélaginu.