Maritech í forsetaklúbb Microsoft „Microsoft Dynamics President’s Club 2012“
Maritech, einn af stærstu söluaðilum Dynamics NAV, hefur verið útnefnt í Microsoft Dynamics President’s Club fyrir árið 2012, í þriðja sinn í sögu fyrirtækisins. Þessi áfangi hefur náðst vegna framsækinna viðskiptalausna og framúrskarandi þjónustu fyrirtækisins við viðskiptavini. Tilkynnt var um viðurkenninguna á árlegri ráðstefnu samstarfsaðila Microsoft (e. Microsoft Worldwide Partner Conference), sem var að þessu sinni haldin í Toronto í Kanada þann 11. júlí 2012.
„Microsoft er stolt af því að veita Maritech þessa viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í sölu. Hún endurspeglar vinnu hinna framúrskarandi starfsmanna og stjórnenda Maritech sem geta verið stoltir af þessari viðurkenningu. Maritech gegnir mikilvægu hlutverki í vexti og árangri Microsoft Dynamics,“ segir Doug Kennedy, aðstoðarforstjóri Microsoft Dynamics Partners and Support Services.
Í Microsoft Dynamics President’s Club eru allra bestu samstarfsaðilar Microsoft Dynamics á heimsvísu (topp 5 prósent). Aðildin er veitt fyrir stöðuga viðleitni til að mæta þörfum viðskiptavina með lausnum og þjónustu sem henta þeim.
„Það er mikill heiður að komast í forsetaklúbbinn. Ég trúi því að lykillinn að árangri og vexti Maritech sé sú áhersla sem lögð hefur verið á viðskiptalausnir, lausnir fyrir sjávarútveginn, og viðskiptagreind, en Maritech hefur hefur lagt mikla vinnu í þróun á þessum sviðum. Lausnirnar er hægt að nota hverja í sínu lagi eða saman. Sterk markaðsstaða Maritech og gott samstarf við Microsoft gerir það að verkum að við getum útvegað viðskiptavinum okkar samþættar lausnir byggðar á Microsoft hugbúnaði ásamt okkar sérlausnum sem uppfylla þarfir viðskiptavina okkar,“ segir Jón Heiðar Pálsson, sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs Maritech.
Fjölbreyttar lausnir og ánægðir viðskiptavinir
Maritech hefur þróað fjölda sérkerfa sem eru samhæfð lausnum Microsoft Dynamics NAV. Má þar helst nefna Wise vörulínuna sem inniheldur viðskiptalausnir, lausnir fyrir sjávarútveginn ásamt öflugum greiningartólum sem nýtast stjórnendum vel til að hafa góða yfirsýn yfir reksturinn. Meðal viðskiptavina Maritech sem nota Wise lausnir má nefna: HB Granda, Össur og CCP.
Maritech er einn stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi og í fararbroddi í upplýsingatækni með sérstaka áherslu á ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingu hugbúnaðar ásamt öflugri og persónulegri þjónustu. Maritech er gullsamstarfsaðili Microsoft (Gold Certified Partner) og hefur einnig hlotið fjölda annarra viðurkenninga, t.d. má þar nefna samstarfsaðili ársins hjá Microsoft á Íslandi sl. tvö ár.
Maritech var stofnað árið 1995 og býður fjölbreyttar viðskiptalausnir fyrir alþjóðlegan markað. Hjá Maritech starfar öflugur hópur sérfræðinga með áralanga reynslu í Microsoft lausnum og þjónustar fyrirtækið um 500 viðskiptavini um allan heim. Traustar lausnir og áralöng reynsla starfsfólks Maritech tryggir viðskiptavinum forskot í samkeppni.

