Fréttir 2012

Print

Vísindarannsókn staðfestir virkni SagaPro við næturþvaglátum

þann .

Náttúruvaran SagaPro er framleidd úr íslenskri hvönn. Nú hefur verið staðfest með klínískri rannsókn að SagaPro virkar gegn tíðum næturþvaglátum.Náttúruvaran SagaPro er framleidd úr íslenskri hvönn. Nú hefur verið staðfest með klínískri rannsókn að SagaPro virkar gegn tíðum næturþvaglátum.Klínísk rannsókn sem nú er nýlokið hefur staðfest að náttúruvaran SagaPro sem unnin er úr íslenskri ætihvönn gagnast vel við næturþvaglátum. Samkvæmt rannsókninni felst virkni SagaPro einkum í því að auka blöðrurýmd. Þetta er í fyrsta skipti sem klínísk rannsókn fer fram á íslenskri náttúruvöru og birtist grein um rannsóknina í alþjóðlega ritrýnda læknatímaritinu Scandinavian Journal of Urology and Nephrology.

Það er fyrirtækið SagaMedica ehf. sem hefur þróað SagaPro en varan hefur verið á markaði síðan 2005 og er ein af mest seldu náttúruvörum á Íslandi. Hún er mjög vinsæl meðal þeirra sem stríða við tíð næturþvaglát en þau valda mikilli truflun á nætursvefni. Þetta vandamál er algengt á meðal karlmanna með stækkaðan blöðruhálskirtil og hjá fólki með ofvirka blöðru.

Aukin blöðrurýmd yfir nóttina
Rannsóknin á SagaPro var framkvæmd af Encode - Íslenskum lyfjarannsóknum ehf. og tók eitt ár. Sextíu og níu tóku þátt í rannsókninni, allt karlmenn með tiltekin einkenni í þvagfærakerfi. Þeir fengu ýmist SagaPro eða lyfleysu í átta vikur og héldu nákvæma þvaglátaskrá fyrir og eftir meðferð. Niðurstöður rannsóknarinnar voru marktækar hjá ýmsum undirhópum og var sýnt fram á að SagaPro hefur áhrif á blöðrurýmd og tíðni næturþvagláta sem eru mikilvægir þættir fyrir góðan nætursvefn.

„Niðurstöðurnar voru á margan hátt mjög áhugaverðar. Þær sýna að áhrif SagaPro felast fyrst og fremst í því að auka blöðrurýmdina yfir nóttina en upphaflega var talið að áhrifin mætti einkum tengja blöðruhálskirtlinum. Fyrir vikið hafa karlar fyrst og fremst nýtt sér SagaPro en þessar niðurstöður ríma vel við góða reynslu kvenna af vörunni. Þessi vitneskja er okkur mikilvæg fyrir frekari rannsóknir á SagaPro í framtíðinni,” segir Dr. Steinþór Sigurðsson, lífefnafræðingur hjá SagaMedica.

Gagnast konum og körlum
Rannsóknin varpaði ljósi á það hvernig SagaPro getur gagnast karlmönnum með góðkynja stækkun í blöðruhálskirtli. Meirihluti karlmanna yfir sextugu er með slíka stækkun og aukin þvaglátatíðni er eitt algengasta einkenni hennar. Þekkt er að SagaPro inniheldur blöðruslakandi efni og því lá nærri að álykta að varan hefði áhrif á þvagblöðruna. Konur hafa haft mikið gagn af SagaPro og eins hefur varan gagnast einstaklingum sem pissa undir á nóttunni. Klíníska rannsóknin sýnir að SagaPro hefur áhrif á rýmd þvagblöðrunnar og getur þannig hjálpað þeim sem glíma við tíð þvaglát.

Styður við alþjóðlega markaðssetningu á SagaPro
SagaPro er nú þegar selt í yfir tvö hundruð verslunum í Bandaríkjunum og Kanada og unnið er að markaðssetningu í Evrópu. Perla Björk Egilsdóttir, lífefnafræðingur og markaðsstjóri SagaMedica segir góðar niðurstöður úr klínísku rannsókninni mikilvægar fyrir erlenda markaðssetningu SagaPro. „Við gerum ráð fyrir að niðurstöðurnar muni stórauka söluna þar sem nú hefur verið staðfest í klínískri rannsókn að SagaPro er bæði örugg og gagnleg vara,“ segir Perla.

Víðtæk áhrif
Alþjóðlegur markaður fyrir náttúruvörur er stór og fer stækkandi en um leið eru vaxandi kröfur um rannsóknir og gæði í framleiðslu gerðar til framleiðanda náttúruvara. Það er hins vegar ekki auðsótt inn á þennan alþjóðlega markað fyrir lítil og óþekkt fyrirtæki. Þráinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri SagaMedica, segir að miklar vonir séu bundnar við að þessi klíníska rannsókn opni greiðari leið fyrir SagaPro inn á alþjóðlega markaði og gefi um leið nauðsynlegan trúverðugleika fyrir alla vörulínu fyrirtækisins. „Við sjáum jafnframt fyrir okkur að aðrir íslenskir náttúruvöruframleiðendur geti notið góðs af þessu brautryðjendastarfi en hér á landi er þegar kominn vísir að gróskumiklum náttúruvöruiðnaði sem stenst alþjóðlegar kröfur,“ segir Þráinn.

Frekari rannsóknir
Klíníska rannsóknin á SagaPro er framhald umtalsverðra rannsókna vísindamanna SagaMedica á íslenskum lækningajurtum. Greinin sem nú birtist er sjötta ritrýnda greinin sem gefin er út frá stofnun fyrirtækisins árið 2000. Höfundar greinarinnar eru læknarnir Guðmundur Geirsson og Hrefna Guðmundsdóttir ásamt starfsmönnum SagaMedica lífefnafræðingunum Steinþóri Sigurðssyni og Perlu B. Egilsdóttur ásamt prófessor Sigmundi Guðbjarnasyni. Greinin nefnist „A parallel, randomised, double blind, placebo controlled study to investigate the effect of SagaPro on nocturia in men“. Fyrri rannsóknir vísindamanna SagaMedica sem birtar hafa verið í ritrýndum tímaritum hafa meðal annars fjallað um áhrif á taugaboðefni, sem er mikilvægt fyrir minnið og fyrirbyggjandi áhrif hvannarefna á krabbamein. Klínískar rannsóknir á þessum eiginleikum eru á meðal framtíðarmarkmiða fyrirtækisins.

Heildarkostnaður við rannsóknina á SagaPro var vel á þriðja tug milljóna króna og var hún styrkt myndarlega af Tækniþróunarsjóði. Við undirbúning rannsóknarinnar kom í ljós veikleiki í íslensku reglugerðarumhverfi sem gerir ekki ráð fyrir klínískum rannsóknum á náttúruvörum. Því reyndist nauðsynlegt að framkvæma lyfjarannsókn á SagaPro með tilheyrandi viðbótarkostnaði.