Fjölbreytt Útivera komin út!
Annað tölublað Útiveru þessa árs er komið út og innheldur gnótt gæðaefnis eftir fjölmarga höfunda. Verið er að dreifa blaðinu til áskrifenda og á sölustaði. Um leið og við fylgjum þessu blaði úr hlaði hvetjum við lesendur og aðra velunnara til að senda okkur efni, ýmist gegnum netfangið
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
" eða með því að hafa samband við Athygli ehf. í síma 515 5200.
Við hvetjum jafnframt alla sem sjá blaðið til að gerast áskrifendur ef þeira hafa ekki þegar tryggt sé þá ódýru og einföldu leið til að fá þetta eina íslenska fagrit um útivist og ferðalög heim til sín. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði og kostar hvert tölublað einungis 950 krónur ef greitt er með korti. Útivera fæst einnig á sölustöðum Olís og Skeljungs víða um land, í Hagkaupsverslunum og hjá Pennanum Eymundsson.
Meðal efnis í 2. tölublaði Útiveru 2012:
Suðurskautið kannað
Haustið 2010 fór tveir Íslendingar um Suðurskautið á sérútbúnum bifreiðum. Ekið var frá strönd til strandar á Suðurskautslandinu og hér segir frá ferðinni í máli og myndum.
Hafið heillaði
Páll Gestsson, formaður Kayakklúbbsins prófaði fyrst að róa sjókajak fyrir 12 árum og eftir það varð ekki aftur snúið. Hafið einfaldlega heillaði.
Sveinn Pálsson náttúrufræðingur
Á þessu voru voru 250 ár liðin frá fæðingu Sveins Pálssonar læknis og náttúrufræðings en hann er einn merkasti brautryðjandinn í íslenskri sögu. Gerður Steinþórsdóttir skrifar um Svein og segir þar m.a. frá ferð hans á Öræfajökul árið 1794.
Næring á fjöllum
Steinar B. Aðalbjörnsson næringarfræðingur gefur lesendum Útiveru hollráð um hvað best sé að hafa í nestispokanum þegar haldið er á fjöll.
Svifið um loftin blá
Um eitt hundrað manns stunda flug á svifvæng hér á landi og frá því sporti segir okkur Róbert Bragason sem víða hefur svifið og séð landið úr lofti.
Á vit ævintýranna
Kristíana Baldursdóttir fór fyrir hópi Íslendinga sem setti stefnuna á Everest Base Camp í Nepal sem er í meira en 5.300 m yfir sjávarmáli. Við fræðumst um þetta fjarlæga land og fylgjum hópnum eftir.
Átaksverkefni ritstjórans
Reynir Traustason ritstjóri DV hefur breytt um lífsstíl og leggur nú stund á fjallgöngur samfara hollu mataræði. Við tökum hús á Reyni sem segir okkur frá „þessari nýju fíkn“ eins og hann kemst að orði.
Setur sér háleit markmið
Halldóra Gyða Matthíasdóttir, útibússtjóri Íslandsbanka í Garðabæ sýslar með tölur og peninga dags daglega en leggur í frístundum stund á hlaup, sund, fjallgöngur, siglingar, hjólreiðar og skotveiði – svo fátt eitt sé nefnt!
Tíbet í ævintýraljóma
Landið minnir okkur á eitthvað fjarlægt og framandlegt. Inga Ragnarsdóttir segir okkur frá Tíbet sem hún hefur heimsótt þrisvar sinnum þar sem hún hitti Dalai Lama, hirðingja og fleira gott fólk.
Ísklifur og ljósmyndun
Blaðamaður Útiveru vildi fræðast um ísklifur en það er ein leiðin að komast á fjöll. Guðmundur Freyr Jónsson stundar þessa íþrótt af miklum móð og hann er alltaf með myndavélina með í för.

