Outdoors í annað sinn!
Athygli ehf. hefur öðru sinni gefið út tímaritið OUTDOORS – exploring the blue island á ensku en það er ætlað ferðmönnum og öðrum sem hingað koma og fýsir að vita sem mest um landið okkar bláa. Blaðinu er dreift á allar helstu ferðamannamiðstöðvar og aðra áfangastaði ferðamanna og fæst á endurgjalds.
„Það var í fyrrasumar sem Athygli hóf þessa útgáfu og voru viðtökur gríðalega góðar, bæði hjá auglýsendum en ekki síður ferðafólki sem bókstaflega reif blaðið úr höndum okkar. Í þessu tölublaði er rætt er við fjölda ferðaþjóna og sagt frá þjónustu þeirra og áherslum í markaðsstarfi. Þá er þar að finna margvíslegan fróðleik um landið og náttúruna sem svo margir vilja sækja heim,“ segir Valþór Hlöðversson framkvæmdastjóri Athygli ehf. og ritstjóri blaðsins.
Margir starfsmanna Athygli komu að vinnslu blaðsins en hönnun þess annaðist Guðmundur Þorsteinsson og söfnun auglýsinga var í höndum Ingibjargar Ágústsdóttur eins og áður.
OUTDOORS er prentað í Odda, 112 bls að stærð, prýtt fjölda ljósmynda.

