Öndunarfærasjúkdómar vangreindir í íslensku heilbrigðiskerfi
Átaksvikuna 24. júní til 1. júlí eru allir sem hafa öndunarfæraeinkenni hvattir til að fara í öndunarmælingu á næstu heilsugæslustöð.
Vikuna 24. júní til 1. júlí eru allir sem hafa öndunarfæraeinkenni eins og hósta, slímuppgang eða áreynslumæði hvattir til að fara í öndunarmælingu, hafi þeir ekki þegar fengið greiningu á þessum einkennum. Það er Landlæknisembættið í samvinnu við Félag lungnalækna, fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og Loftfélagið sem standa fyrir þessu átaki í tilefni af alþjóðlegum degi öndunarmælinga sem er þann 27. júní næst komandi. Starfsfólk heilsugæslunnar mun taka vel á móti þeim sem koma í öndunarmælingu.
Aukið algengi langvinnrar lungnateppu
Algengi langvinnrar lungnateppu (LLT) hefur aukist mikið á síðustu árum og árið 1990 var LLT talin sjötta algengasta dánarorsök í heiminum og var búist við að hún færi í þriðja sæti árið 2020. Langvinn lungnateppa veldur nú þegar miklum kostnaði í íslensku heilbrigðiskerfi og sá kostnaður heldur áfram að aukast.
Talið er að um helmingur þeirra sem hafa langvinna lungnateppu, jafnvel þeir sem hafa langt genginn sjúkdóm, hafi ekki verið greindir og hafi þar af leiðandi ekki fengið neina meðhöndlun. Lögð er mikil áhersla á að ná til þessa hóps og er tilgangur átaksins núna að vekja athygli á mikilvægi öndunarmælinga við greiningu lungnasjúkdóma og að minna á mikilvægi reykleysis og þess að þekkja helstu einkenni lungnasjúkdóma. Vert er að minna á að þrátt fyrir að mikið hafi dregið úr reykingum hér á landi undanfarin ár hefur meirihluti Íslendinga yfir 40 ára aldri einhvern tíma reykt og er lítið vitað um öndunarfæraeinkenni þessa hóps.
Astmi
Astmi er einn af algengastustu af langvinnum sjúkdómum hjá börnum og ungu fólki. Algengi astma er þó breytilegt eftir löndum en er almennt mun hærra (5-15%) í vestrænum löndum. Algengi astma á Íslandi er um 6-7%, en nýgengi sjúkdómsins er einnig á uppleið hér á landi sérstaklega hjá börnum og ungu fólki. Í flestum nágrannalöndum okkar er um 70% astmasjúklinga einnig greindir með ofnæmi en einungis um helmingur íslenskra astmasjúklinga hefur ofnæmi.Sjúkdómurinn einkennist af loftvegabólgu í öndunarvegi og aukinni auðreitni berkjuvöðvans sem dregur sig saman, þrengir öndunarveginn.
Tveir af hverjum þremur höfðu ekki greiningu
Í grein sem birtist í Læknablaðinu fyrr í þessum mánuði er greint frá niðurstöðum rannsóknar sem gerð var meðal skjólstæðinga heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri en hún leiddi í ljós að meðal þeirra sem höfðu sögu um reykingar voru 16% með langvinna lungnateppu og tveir af hverjum þremur þeirra vissu ekki um greininguna.
Mælingar sem boðið var upp á í tilefni af fyrsta alþjóðlega öndunarmælingadeginum þann 14. október 2010 benda í sömu átt en af 200 einstaklingum sem þá fengu öndunarmælingu reyndust 23% mælinga óeðlilegar og var viðkomandi vísað til frekari meðferðar í heilbrigðiskerfinu. Af þessu má sjá að lungnasjúkdómar eru mjög vangreindir i í íslensku heilbrigðiskerfi.
Nú þegar Evrópukeppninni í knattspyrnu stendur sem hæst og Ólympíuleikar eru framundan er vert að hafa í huga gildi íþrótta fyrir öndunina og þá staðreynd að astmi er tvöfalt algengari hjá íþróttafólki en öðrum og að margt íþróttafólkhefur komist í fremstu röð þrátt fyrir öndunarfærasjúkdóma. Benda má á að nýjar upplýsingar er að finna á heimasíðu Landlæknis um greiningu og meðferð astma hjá íþróttafólki. Hreyfingarleysi er hins vegar fjórði algengasti áhættuþáttur fyrir dánartíðni á heimsvísu og rannsóknir hafa sýnt að aukin hreyfing getur minnkað líkur á lungnakrabbameini um allt að 30%.
Landlæknisembættið
Félag íslenskra lungnalækna
Fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga í FÍH
Loftfélagið og GlaxoSmithKline

