
Þrettán flutningatæknar útskrifast úr Flutningaskóla Samskipa
Þrettán nemendur útskrifuðust sem flutningatæknar úr Flutningaskóla Samskipa í gær og var nemendahópurinn fjölþjóðlegri en nokkru sinni fyrr því auk Íslendinga stunduðu nú nám við skólann þrír Pólverjar, Marokkóbúi og Filippseyingur. Alls hafa 50 nemendur útskrifast frá skólanum frá því hann var settur á laggirnar haustið 2008. Boðið er upp á tvíþætt fagnám og starfsnám í flutningum í skólanum sem starfræktur er í samstarfi við Mími símenntun.
Raforkuafhending skert fyrir norðan og austan vegna lélegs vatnsbúskapar
Síðustu daga hefur Landsnet þurft að skerða afhendingu rafmagns til nærri allra kaupenda svokallaðrar skerðanlegrar raforku á Norður- og Austurlandi og er allt útlit fyrir að það ástand muni vara áfram í þessum landshlutum næstu vikurnar. Ástæðan er lélegur vatnsbúskapur stærstu vatnsaflsvirkjana í landshlutunum og takmörkuð flutningsgeta Byggðalínu til að flytja rafmagn frá Suðvesturlandi til Norðausturlands.
Nýr fostöðumaður hagdeildar Samskipa
Ingólfur Rúnar Ingólfsson hefur verð ráðinn forstöðumaður hagdeildar hjá Samskipum. Ingólfur er viðskiptafræðingur með Cand oecon gráðu frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Instituto De Empresa (IE) í Madrid. Hann er einnig löggiltur verðbréfamiðlari frá Háskóla Íslands.






