Almannatengsl snúast öðru fremur um að varðveita orðspor og treysta ímynd fyrirtækis, félags eða samtaka með markvissum boðskiptum við alla hlutaðeigandi.
Áföll gera ekki boð á undan sér. Þau hafa tilhneigingu til að dynja yfir þegar verst stendur á. Við erum sérfræðingar í að takast á við slíkar uppákomur.
Netið og snjallsímar hafa nú tekið við sem einhver mikilvægasti farvegur samskipta á milli fólks. Á sama tíma hefur notkun hefðbundinna miðla dregist saman.
Með því að fela Athygli gerð fréttabréfs, kynningarrits eða bæklings geta viðskiptavinir gengið að því vísu að verkið mótast af fagmennsku frá A til Ö.
Þegar boðað er til blaðamannafundar er samræming lykilatriði. Stilla þarf saman strengi allra sem koma að undirbúningi fundarins og meitla þarf lykilskilaboð.
Í kynningarherferð þarf að virkja með samræmdum og markvissum hætti alla þá fjölbreyttu flóru fjölmiðla sem almenningi stendur til boða.