Fimmtugsafmæli fagnað í ranni Mannvits

þann .

IMG 4645Starfsfólk verkfræðistofunnar Mannvits fagnaði því í dag að liðin er hálf öld frá stofnun einnar af þremur stoðum sem fyrirtækið stendur á sögulega séð, þ.e. Verkfræðistofu Guðmundar og Kristjáns – VGK. Þetta er samt einungis fyrsti áfangi afmælisársins 2013 því 19. ágúst nk. verður hálf öld liðin frá stofnun verkfræðistofunnar Hönnunar, sem einnig er sögustoð undir Mannviti. Sú þriðja er svo verkfræðistofan Rafhönnun sem stofnuð var 1969.

Sóknarfæri í sjávarútvegi dreift í dag

þann .

for sokn21febAthygli gefur í dag út blaðið Sóknarfæri í sjávarútvegi, 72 síður að stærð. Í blaðinu er fjallað um fjölbreytt málefni sem snerta sjávarútveginn, veiðar og vinnslu, nýjustu tækni, markaðsmál, vinnslutækni og gæðamál, nýja fiskveiðistjórnarfrumvarpið og svo mætti lengi telja. 
Ritstjóri blaðsins er Jóhann Ó. Halldórsson og auglýsingasölu annaðist Ingibjörg Ágústsdóttir. Blaðið var prentað hjá Landsprenti og var dreift með Morgunblaðinu í dag. 

Landsnet vill eignarnám vegna Suðurnesjalínu 2

þann .

landsnet 1webLandsnet hefur fullreynt samningaleiðina gagnvart nokkrum landeigendum á leið væntanlegra Suðurnesjalínu 2, háspennulínu sem fyrirtækið vill byrja að reisa núna í sumar til að styrkja dreifikerfi raforku á svæðinu. Fyrirtækið óskaði í eftir heimild Steingríms J. Sigfússonar, ráðherra atvinnumála og nýsköpunar, til að taka land eignarnámi, eins og lög mæla fyrir um að gert sé þegar almannahagsmunir kalla á slíkt.