
Lífeyrissjóðaforingjar í ísköldu steypibaði
„Íslensk stjórnmál snúast nú um markmið sem mörg hver eru í mótsögn hvert við annað,“ sagði Ásgeir Jónsson hagfræðingur við fulltrúa á aðalfundi Landssamtaka lífeyrissjóða í dag. Hann er sannfærður um að gjaldeyrishöft verði hér næstu árin, þrátt fyrir að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafi sagt fundarmönnum fáeinum mínútum fyrr að það væri meðal forgangsverkefna stjórnvalda að afnema höftin. Ræðu Ásgeirs var annars helst að líkja við ískalt steypibað yfir fundarmenn.
Landhelgisgæslan heiðruð á Sjómannadaginn í Bolungarvík
Landhelgisgæslan hlýtur heiðursviðurkenningu Sjómannadagsins í Bolungarvík í ár vegna frækilegs björgunarafreks við Vestfirði. Hópsigling varðskipsins Þórs og skipa og báta í Bolungarvík verður einn af hápunktum hátíðarhaldanna sem standa frá föstudeginum 31. maí til sunnudagsins 2. júní 2013.
Ævintýralandið - ferðalag um Ísland 2013
Athygli gaf í dag út blaðið Ævintýralandið - ferðalag um Ísland 2013. Blaðið kom nú út í 8. sinn og var dreift til kaupenda Morgunblaðsins. Því er auk þess dreift til upplýsingamiðstöðva vítt og breitt um land. Blaðið er 80 síður í dagblaðsbroti.






