| Evrópustofa opnuð |
|
|
| Mánudagur, 23. Janúar 2012 |
|
Evrópusambandið fjármagnar starfsemi Evrópustofu en Athygli ehf. og þýska fyrirtækið Media Consulta annast reksturinn. Nánari upplýsingar um Evrópustofu og starfsemina er að finna á vef hennar, evropustofa.is. Þarna verður unnt að fá svör við ýmsum spurningum um ESB og til dæmis um verkefni og sjóði ESB. Dyr Evrópustofu standa öllum opnar, hvaða skoðun sem viðkomandi hafa á ESB eða mögulegri aðild Íslands. Þetta var reyndar undirstrikað þegar stofan var opnuð. Þá var tekinn í gagnið trékassi sem gestir geta stigið upp á og ávarpað þá sem staddir eru á vettvangi hverju sinni. Ræðumenn voru frá Heimsýn annars vegar og Sterkara Íslandi og Ungum Evrópusinnum hins vegar. Eina skilyrðið er að ávarpendur á kassanum fylgi þeim skýru og einföldu fundarsköpum sem gilda og það er að tala í mesta lagi í þrjár mínútur. Andsvör eru óheimil. Engin samkoma stendur undir nafni nema þar sé borið fram kaffi og með'ðí. Bakarar stóðu daginn langan í Evrópustofu og steiktu belgískar vöfflur, þarna voru líka frönsk horn og síðast en ekki síst birtist stærðarinnar Evrópukaka sem fékk ljómandi góðar viðtökur gesta.
Ónefnt er tónlistaratriði á opnunarsamkomu Evrópustofu. Sigríðus Thorlacius og Guðmundur Óskar Guðmundsson úr hljómsveitinni Hjaltalín fluttu nokkur lög og náðu sannarlega að heilla áheyrendur. Markmið Evrópustofu er að stuðla að aukinni umræðu, þekkingu og skilningi á eðli og starfsemi Evrópusambandsins og verður hún opin kl. 10-18 á virkum dögum og kl. 10-14 á laugardögum.
|