Evrópustofa var opnuð að Suðurgötu 10 á laugardaginn var að viðstöddu fjölmenni. Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra og Timo Summa, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, ávörpuðu gesti í tilefni dagsins og hleypt var af stokkum ljósmyndasamkeppnin Ísland og Evrópa.