| Útivist í 90.000 eintökum |
|
|
| Föstudagur, 16. Desember 2011 |
|
Ferðaáætlun Útivistar fyrir árið 2012 er komin út í nýjum búningi en Athygli er útgefandi ritsins í samvinnu við Ferðafélagið Útivist. Blaðið var að þessu sinni prentað í um 90.000 eintökum í dagblaðsbroti og dreift með Finni Morgunblaðsins inn á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu nema þau sem hafa beðist undan fjölpósti. Þá fékk Útivist þúsundir eintaka til eigin dreifingar. Blaðið er stærra en nokkru sinni fyrr, 40 bls. og að mestu fjármagnað með sölu auglýsinga eins og undanfarin ár. Í ferðaáætluninni er nákvæmt yfirlit yfir allar ferðir á vegum Útivistar á árinu 2012 og annað fróðleiksefni um fjölmarga staði sem Útivistarfólk sækir. Bryddað er upp á ýmsum nýjungum, m.a. ferðapakkanum Áfram Everest með 15 göngum á spennandi fjöll. Þá má nefna Fjallarefi en þar er í einum pakka skemmtileg göngudagskrá, þrekþjálfun og námskeið í útivist. Dagskrá Útivistar á næsta ári er að öðru leyti afar fjölbreytt og þar er að finna flokka eins og Sunnudagsferðir, Fræðslu- og ljósmyndaferðir, Skíðaferðir, Sumarleyfisferðir, Helgarferðir, Jeppaferðir, Hjólaferðir og Útivistarræktina, stuttar ferðir, tvisvar í viku um höfuðborgarsvæðið og er þátttaka ókeypis Skúli Skúlason, framkvæmdastjóri Útivistar, hafði umsjón með útgáfu ferðaáætlunarinnar 2012 fyrir hönd félagsins og er hann jafnframt ábyrgðarmaður blaðsins. Inga Ágústsdóttir annaðist sölu auglýsinga og Guðmundur Þorsteinsson, útlitshönnuður hjá Athygli, hannaði blaðið og braut um af alkunnri smekkvísi. |