| Samskip dyggur bakhjarl UNICEF á Íslandi |
|
|
| Fimmtudagur, 08. Desember 2011 |
|
Fjölmennt var að venju í hátíðarmat Samskipa, enda til siðs að bjóða einnig fyrrverandi starfsfólki sem komið er á eftirlaun, og glatt á hjalla þegar rauðu nefin voru sett upp og kræsingar bornar á borð. Með kaupum á rauðum nefjum fyrir starfsfólkið vilja Samskip leggja sitt af mörkum til söfnunar UNICEF. „Samskip hafa frá upphafi verið dyggur bakhjarl UNICEF, “ sagði Ásbjörn Gíslason forstjóri m.a. við þetta tækifæri. Hann kynnti síðan til leiks Stefán Inga Stefánsson, framkvæmdastjóra UNICEF, sem upplýsti viðstadda um starfsemi samtakanna, sérstaklega heimsforeldra, en starfsmenn Samskipa þekkja reyndar vel til þeirra því allmargir starfsmenn eru nú þegar heimsforeldrar - og hafa verið um árabil. |