| VR krefst aðgerða gegn atvinnuleysi |
|
|
| Miðvikudagur, 07. Desember 2011 |
|
VR hefur hrint af stað herferð til að mótmæla óásættanlegu atvinnuleysi meðal félagsmanna sinna en það hefur nánast fimmfaldast á þremur árum. Til að vekja athygli á atvinnuleysinu hefur VR meðal annars látið útbúa endurskinsborða fyrir hvern atvinnulausan VR félaga og voru borðarnir hengdir upp á áberandi stað við Kringlumýrarbraut í gærkvöldi. Alls voru 2465 félagsmenn VR á atvinnuleysisskrá í september síðast liðnum sem samsvarar 8,8% af fjölda félagsmanna þann mánuð. Í september árið 2008, einum mánuði áður en bankarnir hrundu, var þetta hlutfall 1,9% eða rúmlega 500 félagsmenn. Skráð atvinnuleysi meðal félagsmanna VR hefur því aukist um meira en 370% á þremur árum sem er óásættanlegt að mati félagsins. Skráð atvinnuleysi meðal félagsmanna VR, sem hlutfall af félagafjölda, er umtalsvert meira en landsmeðaltalið. Samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar var skráð atvinnuleysi í september sl. 6,6%, og er miðað við mannafla á vinnumarkaði, samanborið við 8,8% hjá VR eins og fram kemur hér að framan. Í september fyrir þremur árum var atvinnuleysi meðal félagsmanna VR einnig meira en skráð atvinnuleysi á landinu sem var 1,3%, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar en 1,9% hjá VR. Krefjast breyttra áherslna Það er krafa félagsmanna VR og launafólks alls að gripið verði til aðgerða til að þessari þróun verði snúið við hið fyrsta. VR er tilbúið til að leggja sitt af mörkum og hefur blásið til herferðar. Auk endurskinsborðanna sem voru hengdir upp í kvöld verða birtar auglýsingar í fjölmiðlum. Með þessu vill VR ekki bara vekja athygli á málefninu heldur fyrst og fremst hvetja til breyttra áherslna í atvinnumálum.
|