| Upplýsingavefur um háspennuloftlínur og jarðstrengi |
|
|
| Þriðjudagur, 22. Nóvember 2011 |
|
Samfara vaxandi umhverfismeðvitund Íslendinga hafa umræður aukist á síðustu árum um notkun jarðstrengja í stað loftlína til að minnka sjónræn áhrif raforkuflutningskerfisins en stefnumótandi ákvarðanir hafa ekki verið teknar í þessum efnum hérlendis, eins og t.d. í Noregi. Landsnet hefur hins vegar kallað eftir slíkri stefnumótun, nú síðast í tengslum við umræðu um jarðstrengjalögn í gegnum sveitarfélagið Voga. Lagning jarðstrengja á hárri spennu eru enn mun dýrari framkvæmd en lagning háspennulína. Forsvarsmenn Landsnets telja því ekki réttlætanlegt að ráðast í slíkar framkvæmdir – sem hefðu í för með sér hækkun á raforkuflutningum til bæði fyrirtækja og almennings – nema að undangenginni stefnumörkun þar um af hálfu yfirvalda. Þar til stefnumörkun stjórnvalda liggur fyrir hefur fyrirtækið markað sér þá vinnureglu að kanna ávallt bæði mögulegar jarðstrengja- og línulausnir, með tilliti til kostnaðar og samfélagslegra áhrifa. Til að meta þessa hluti frekar hefur Landsnet lagt lagt lið rannsóknum á samfélagslegum kostnaði raforkulína og m.a. stutt fjárhagslega bæði verkefni í hagfræðideild Háskóla Íslands og rannsóknir á vegum Stofnunar Sæmundar fróða. Upplýsingar og samanburður Vefurinn er vistaður á heimasíðu Landsnets; www.landsnet.is/linurogstrengir og helstu efnisflokkar hans eru: • Línur og strengir: Yfirlit yfir stöðuna í dag og ýmis konar samanburður. • Tæknin: Samaburður á mismunandi tæknilegum eiginleikum lína og strengja. • Umhverfið: Samanburður á mismunandi umhverfislegum áhrifum lína og strengja. • Kostnaður: Samanburður á kostnaði við strenglögn annars vegar og loftlínur hins vegar og stöðu mála á Íslandi annars vegar og í samanburði við ESB lönd. • Ísland og útlönd: Samantekt á tenglum hérlendis og víða erlendis varðandi stefnumótun. • Fjölmiðlaumfjöllun á Íslandi um loftlínur og jarðstrengi. Á vefnum er einnig hægt að nálgast ýmsar skýrslur og önnur gögn, koma með ábendingar og senda fyrirspurnir og leita frekari svara ef þess gerist þörf með því að senda póst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Athygli ehf. og Skýrr aðstoðuð við gerð vefsins.
|