Forsíða Fréttir Fréttir 2011 Sameining háskóla -kostir og gallar
Sameining háskóla -kostir og gallar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 11. Nóvember 2011

fraedagardurKostir og gallar mögulegra sameininga háskólanna í kjölfar kreppu verða í brennidepli á ráðstefnu sem Fræðagarður, eitt af aðildarfélögum Bandalags háskólamanna, efnir til á Grand hótel næstkomandi þriðjudag undir yfirskriftinni: Gildi háskólamenntunar – sameining háskólanna, kostir og gallar.

Nokkur umræða hefur verið um sameiningu háskóla í kjölfar kreppunnar en lítið hefur farið fyrir umræðu um hvað eigi að ráða ferðinni við ákvarðanir þar um. Til að fjalla um þessa - og fleiri áleitnar spurningar tengdar sameiningu háskóla á Íslandi stendur Fræðslu- og ráðstefnusjóður Fræðagarðs fyrir ráðstefnu í Gullteigi B á Grand hóteli, kl. 13-16, þriðjudaginn 15. nóvember 2011.

Helga B. Kolbeinsdóttir, formaður Fræðslu- og ráðstefnusjóðs Fræðagarðs, setur ráðstefnuna og erindi flytja:

  • Jón Atli Benediktsson, aðstoðarrektor vísinda og kennslu við Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands er í senn virtur rannsóknarháskóli og öflug menntastofnun sem hefur þjónað íslensku þjóðinni í 100 ár.

  • Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri.

Mikilvægði háskólamenntunar á landsbyggðinni og samstarf háskólastofnana.

  • Dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík.

Mikilvægi óháðs gæðamats í háskólastarfi. Gæði og ávinningur grundvöllur skipulags háskóla.

  • Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Opna háskólans.

Lífstíðarlærdómur – þekking í þágu þjóðar.

  • Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra.

Inntak háskólastarfsemi og fjölda stofnana.

 

Fundarstjóri er Sr. Bragi Skúlason, formaður Fræðagarðs. Allir eru velkomnir á ráðstefnuna, aðgangur er ókeypis og hægt er að skrá þátttöku á netfanginu www.bhm.is/fraedagardur/fraedsla.

 Af óviðráðanlegum ástæðum þurfti að fresta ráðstefnu sem Fræðagarður ætlaði að halda fimmtudaginn 10. nóvember um Gildi háskólamenntunar og fækkun starfa. Fyrirhugað er að halda hana í janúar 2012.