Útivist í 90.000 eintökum
Ferðaáætlun Útivistar fyrir árið 2012 er komin út í nýjum búningi en Athygli er útgefandi ritsins í samvinnu við Ferðafélagið Útivist. Blaðið var að þessu sinni prentað í um 90.000 eintökum í dagblaðsbroti og dreift með Finni Morgunblaðsins inn á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu nema þau sem hafa beðist undan fjölpósti. Þá fékk Útivist þúsundir eintaka til eigin dreifingar. Blaðið er stærra en nokkru sinni fyrr, 40 bls. og að mestu fjármagnað með sölu auglýsinga eins og undanfarin ár.



Samskip hafa verið styrktaraðili UNICEF á Íslandi frá upphafi og í tilefni dags rauða nefsins á morgun gaf félagið öllu starfsfólki rauð nef sem sett voru upp í dag, í árlegum hátíðarmat félagsins. Með kaupum á rauðum nefjum fyrir starfsfólkið vilja Samskip leggja sitt af mörkum til söfnunar UNICEF.
VR hefur hrint af stað herferð til að mótmæla óásættanlegu atvinnuleysi meðal félagsmanna sinna en það hefur nánast fimmfaldast á þremur árum. Til að vekja athygli á atvinnuleysinu hefur VR látið útbúa endurskinsborða fyrir hvern atvinnulausan VR félaga og voru borðarnir hengdir upp við Kringlumýrarbraut í gærkvöldi.
Birna Þórarinsdóttir stjórnmálafræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastýra Evrópustofu – upplýsingamiðstöðvar ESB, sem opnuð verður eftir áramótin. Markmið Evrópustofu er að veita hlutlægar upplýsingar og auka umræðu, þekkingu og skilning á eðli og starfsemi ESB.
Landsnet hefur opnað upplýsingavef um háspennuloftlínur og jarðstrengi. Markmiðið er að þar geti allir sem áhuga hafa fundið á einum stað helstu staðreyndir um kosti og galla lína og strengja, stefnumótun í þessum efnum, bæði heima og erlendis, sem og fjölmiðlaumfjöllun hérlendis um þetta umdeilda málefni.
Ef þú ert framleiðandi, dreifingaraðili eða innflytjandi er nauðsynlegt fyrir þig að þekkja reglurnar um CE merkingar sem nú er verið að uppfæra og skerpa. CE merking sem gerð er samkvæmt reglum EES felur einnig í sér mikil tækifæri því hún opnar greiða leið fyrir vörur inn á Evrópumarkaðinn. Merkingunni fylgja hins vegar einnig ýmsar skyldur sem þarf að uppfylla áður en CE merkt vara er sett á markað.