Forsíða Fréttir Fréttir 2010 Fimm hönnunarteymum boðin þátttaka í samkeppni um nýjan Landspítala
Fimm hönnunarteymum boðin þátttaka í samkeppni um nýjan Landspítala Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 22. Febrúar 2010
Björn Zoëga, forstjóri Landspítala var viðstaddur athöfnina í dag.

Nú er ljóst að yfir 700 íslenskir sérfræðingar á byggingarsviði og flestar stærstu arkitekta- og verkfræðistofur landsins taka þátt í hönnunarsamkeppni nýs Landspítala við Hringbraut. Tilkynnt var um niðurstöður forvals samkeppninnar á kynningarfundi sem verkefnisstjórn nýs Landspítala efndi til í dag að viðstöddum heilbrigðisráðherra.


Alls bárust sjö umsóknir um þátttöku í forvali hönnunarsamkeppninnar og uppfylltu sex teymi tilskyldar hæfniskröfur. Fimm stigahæstu teymunum verður nú boðið að taka þátt í hönnunarsamkeppninni en ábyrgðaraðilar þeirra eru Mannvit hf., Almenna verkfræðistofan hf., TBL arkitektar ehf., Verkís hf. og Efla hf.


Keppnislýsing hönnunarsamkeppninnar verður tilbúin 5. mars næstkomandi en skilafrestur er í byrjun júní 2010 og úrslit eiga að liggja fyrir mánuði seinna, eða í byrjun júlímánaðar.


Sjá nánar á www.haskolasjukrahus.is

 
Senda á Facebook