|
Trausti Hafsteinsson vann fjölmiðlasamkeppni Evrópuársins 2010 |
|
|
|
Föstudagur, 10. Desember 2010 |
|
„Sá enga aðra leið en að svipta sig lífi“ er yfirskrift vinningsgreinar Trausta Hafsteinssonar blaðamanns á DV og birtist hún í blaðinu þann 4. desember 2009. Það var mat íslensku dómnefndarinnar að greinin væri vel ígrunduð og kannaði vandamál skuldara af mikilli dýpt. Fanga væri víða leitað og góð mynd gefin af vandasamri stöðu skuldara. Greinin þótti vel skrifuð auk þess að grípa vel athygli lesandans og endurspegla lausn á vandamálinu. Fjölmiðlasamkeppni Evrópuársins 2010 – gegn fátækt og félagslegri einangrun, var opin öllum blaða- og fréttamönnum sem fjallað höfðu um fátækt og/eða félagslega einangrun á árinu, hvort sem er í prent – eða ljósvakamiðlum. Grein Trausta hefur nú verið send í Evrópuhluta keppninnar, en tilkynnt verður um sigurvegara hennar við athöfn í Brussel, 17. desember 2010.
„Fátækt og félagsleg einangrun er vandamál sem við viljum útrýma. Til að finna raunverulegar lausnir þurfum við skilja rætur vandans og að gefa þeim rödd sem kljást við hann, og þar er starf fjölmiðla gríðarlega mikilvægt. Vönduð fjölmiðlun er nauðsynleg fyrir samfélagið okkar í heild og því er það sérlega ánægjulegt að veita Trausta þessi verðlaun,“ segir Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra, sem afhenti verðlaunin í dag. „Evrópuárið 2010 er baráttuár gegn fátækt og félagslegri einangrun, en þó að því sé brátt að ljúka þá heldur vinnan áfram og lítum við á árið fremur sem upptakt að því starfi sem framundan er.“
László Andor, framkvæmdastjóri Evrópunefndar um atvinnu- og félagsmál tekur í sama streng: „Fjölmiðlafólk gegnir lykilhlutverki í þessari umræðu og það var þess vegna sem við efndum til þessarar keppni fyrir bestu umfjöllunina tengda fátækt og baráttu gegn félagslegri einangrun.“
Í öðru sæti í Íslandshluta blaðamannasamkeppninnar var greinin „Velkomin í fátækt“ eftir Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur og Viktoríu Hermannsdóttur, og birtist í DV, og í þriðja sæti var greinin „Kvennasmiðjan var opinberun“ eftir Sigurð Boga Sævarsson á Morgunblaðinu. Ekki voru veitt verðlaun í ljósvakahluta íslensku samkeppninnar enda þátttaka mjög dræm.
Evrópuárið 2010 Fréttamannasamkeppnin er einn af lykilviðburðum yfirstandandi Evrópuárs og er markmið samkeppninnar að efla umfjöllun um málefni er varða fátækt og félagslega einangrun og auka þannig vitund almennings. Aðrir lykilviðburðir sem efnt hefur verið til á Íslandi er ljósmyndasýning sem n ú stendur yfir hjá Samhjálp Í Reykjavík, í samstarfi nema LHÍ og fólks sem upplifað hefur fátækt/félagslega einangrun. Jafnframt hefur verið efnt til fjölda ráðstefna um tiltekin málefni, s.s. fátækt barna, fátækt og félagslega einangrun og hlutverk hjálparstofnana eða þriðja geirans svokallaða.
Um Trausta Trausti Hafsteinsson er fæddur 1973 og ólst upp í Grjótaþorpinu í Reykjavík. Hann hóf störf sem blaðamaður árið 2006, fyrst hjá Blaðinu og síðar á DV. Hann er kennari að mennt en hefur auk þess lokið námskeiði í rannsóknarblaðamennsku hjá Háskólanum í Reykjavík þar sem hann var tilnefndur fyrir besta lokaverkefnið sem fjallaði um ólögmætt framkvæmdaleyfi vegna virkjanaframkvæmda. Þá var hann tilnefndur til Íslensku blaðamannaverðlaunanna 2008 - besta rannsóknarblaðamennska ársins, fyrir greinaflokk um kynþáttafordóma á Suðurnesjum. Trausti er giftur Rún Kormáksdóttur og eiga þau tvær dætur, Tönju Líf og Matthildi.
Nánari upplýsingar um keppnina er að finna á heimasíðu Evrópuárs 2010 og smella á undirsíðuna „Journalist Award“.
Bakgrunnsupplýsingar Evrópuárinu 2010 er ætlað að auka vitund fólks um ástæður og afleiðingar fátæktar í Evrópu – bæði meðal almennings og valdhafa. Árinu er ætlað að virkja sem flesta í baráttunni gegn fátækt; auka félagslega samþættingu og hvetja stjórnvöld, bæði í hverju landi og með samstarfi milli Evrópulandanna, til að skuldbinda sig að takast á við fátækt og félagslega einangrun. 84 milljónir Evrópubúa – eða um 17% íbúa innan Evrópusambandsins – lifa undir fátæktarmörkum. Samkvæmt nýlegri Eurobarometer könnun á viðhorfum gagnvart fátækt telur meirihluti Evrópubúa (73%) að fátækt sé víðtækt vandamál í þeirra landi og 89% kalla eftir bráðaaðgerðum stjórnvalda til að takast á við þetta vandamál. Á meðan flestir telja að ríkisstjórn hvers lands beri höfuðábyrgð á vandanum, telja 74% að Evrópusambandið eigi þar einnig hlut að máli. |