Forsíða Fréttir Fréttir 2010 Fyrstu ostarnir frá KÚ á markað
Fyrstu ostarnir frá KÚ á markað Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 10. Desember 2010
Ku_nyr_osturNýtt fyrirtæki í mjólkuriðnaði er nú að hasla sér völl á markaðinum og eru fyrstu afurðir þess,  ostarnir Öðlingur og Ljúflingur, að koma í verslanir þessa dagana.  Þetta er fyrirtækið KÚ ehf. sem er í eigu fjölskyldunnar að Eyjum 2 í Kjós, sem áður stofnaði og rak Mjólku og Vogabæ.  Undirbúningur að stofnun hins nýja fyrirtækis hefur staðið yfir í nokkurn tíma en fjölskyldan seldi hlut sinn í Mjólku og Vogabæ og dró sig alfarið út úr rekstri þessara fyrirtækja í upphafi árs.

Ólafur M. Magnússon framkvæmdastjóri segir að ostarnir frá KÚ verði fyrst og fremst unnir úr mjólk sem framleidd er utan greiðslumarks á búi fjölskyldunnar á Eyjum í Kjós og sem fyrr munu þau ekki þiggja beingreiðslur frá hinum opinbera vegna mjólkurframleiðslunnar. Tryggð hafa verið kaup á viðbótar mjólk til ostagerðarinnar af öðrum mjólkurframleiðendum.

Nýju ostarnir frá KÚ eru þróaðir að danskri fyrirmynd og í samvinnu við ostagerðameistara frá Bornholms mejeri sem framleiðir sambærilega osta undir vörumerkinu St. Clemens en það er eitt þekktasta vörumerki í dönskum ostum og hefur á undanförnum árum unnið til fjölda verðlauna.

Ostarnir Ljúflingur og Öðlingur eru mygluostar og verða þeir settir á markað í 250 gr. pakkningum. Ljúflingur er hvítmygluostur en Öðlingur er blá- og hvítmygluostur. Tilraunaframleiðslu á ostunum var dreift til prufu í sumar og var henni mjög vel tekið. Að sögn Ólafs liggja nú þegar fyrir talsverðar pantanir og því má búast við að það takmarkaða magn sem kemur á markaðinn í upphafi verði fljótt að seljast upp.

Ýmsar fleiri afurðir eru væntanlegar frá KÚ á næstu vikum og mánuðum. Á næstunni er væntanlegur Port Salut ostur frá KÚ, en íslenskur Port Salut ostur hefur verið ófáanlegur undanfarið og í upphafi næsta árs verða fleiri nýjunar frá KÚ kynntar fyrir íslenskum neytendum.